Fjarðarpósturinn - 04.06.2015, Blaðsíða 11
www.fjardarposturinn.is 11FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015
Tjarnarvöllum 11 220 Hafnarfjörður apotekhfn.is
Hagstætt verð
í heimabyggð
Sími 555 6650
Siglinganámskeið
Í sumar mun Siglingaklúbburinn Þytur
bjóða upp á siglinganámskeið fyrir börn og
unglinga 10 ára og eldri, fædd 2005 og fyrr.
Kennt er eftir nýrri námsskrá sem Siglingasamband Íslands hefur látið þýða og
staðfæra. Þátttakendum er kennt að bregðast við síbreytilegum aðstæðum, siglingar
á kayak og seglbátum, siglingareglur og umgengni um báta og búnað þeirra.
Í lok námskeiða gerum við okkur
dagamun, hoppum í sjóinn, buslum og
endum á grillveislu.
Hvert námskeið er í tvær vikur hálfan daginn
kl. 9-12 eða kl. 13-16. Kennt er í aðstöðu Þyts,
Strandgötu 88 og við Hafnarfjarðarhöfn.
Innritun er hafin á
www.sailing.is
Verð: 15.500 kr. fyrir tveggja vikna námskeið.
Kennitala: 680978-0189
Bankanúmer: 0544-26-31871
Námskeiðsdagar:
8. júní - 19. júní (fyrir hádegi)
8. júní - 19. júní (eftir hádegi)
22. júní - 3. júlí (fyrir hádegi)
22. júní - 3. júlí (eftir hádegi)
6. júlí -17. júlí (fyrir hádegi)
6. júlí -17. júlí (eftir hádegi)
Tangó í Hafnarborg
Tónleikar í Hafnarborg á sjómannadaginn kl. 20
Alþjóðlegi tangóhópurinn leikur tangóa
eftir Astor Piazzolla og fleiri tangó-tónskáld.
Hljóðfæraleikarar eru: Guido Bäumer
saxófónn, Aladár Rácz píanó, Hávarður
Tryggvason kontrabassi og Krzysztof Olczak
harmónikka og útsetningar.
Miðaverð 2.000 kr.
en 1.000 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn.
Skólaráð og foreldrafélag
vilja ekki einkarekinn skóla
Telja starfsemi í Engidalsskóla ógnað
Skólaráð, foreldraráð og for-
eldrafélag Víðistaðaskóla telja
að þrengt sé að skólastarfi Víði-
staðaskóla í Engidal ef bæta eigi
5. og 6. bekk Hjalla stefnu skóla í
húsnæðið. Þá verði 4 stofnanir í
húsinu. Foreldra barna á miðstigi
furða sig á því að börn úr hverf-
inu geti ekki nýtt húsnæði sem
þeim var ætlað vegna plássleysis
á meðan einkarekinn skóli eigi
að fá þar inni. Þegar hafi verið
þrengt að leikskólanum og
frístundaheimilinu Álfahrauni.
Þá furða foreldrar sig á að málið
hafi ekkert verið kynnt.