Fjarðarpósturinn - 20.08.2015, Page 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 2015
Aðstæður voru góðar til
siglinga í Hafnarfirði, fyrir utan
Hraunsvíkina, þegar áhafnir á 7
seglbátum kepptu í flokki kjöl
báta til Íslandsmeistara. Keppni
hófst á fimmtudag í hressilegu
veðri og góðum byr og sigraði
áhöfnin á Skeglu í Siglinga
klúbbnum Þyt í Hafnarfirði í
fyrstu umferð en skipstjóri
Skeglu er Gunnar Geir Halldórs
son. Tíminn var góður og Skegla
áberandi fyrst bæði með og án
forgjafar. Skegla sigraði einnig
örugglega í annarri umferð. Á
föstudeginum hafði veðrið róast
aðeins gripið var til belgsegla á
köflum. Gunnar stýrði Skeglu
áfram til sigurs í þriðju og fjórðu
umferð en varð að láta sér nægja
2. sætið í fimmtu umferð en
Dögun úr Brokey sigraði. Á
laugar deginum hélt áhöfnin á
Dögun áfram að stríða Skeglu
áhöfninni og hélt fyrsta sætinu
en Skegla var í öðru sæti í sjöttu
umferð. Þetta dugði áhöfninni á
Skeglu sem góð áskorun eftir 7
ára einokun Dögunar og sigraði í
síðustu tveimur umferð unum.
Áhöfnin á Skeglu úr Þyt
sigraði því örugglega með 8 stig,
6 sigra og eitt annað sæti en
lakasta umferð reiknast ekki með
þegar sigldar eru fleiri en 5
umferðir. Töluverður munur er á
bátun um en hver bátur hefur
útreikn aða forgjöf og á það að
gefa miklu jafnari keppni. Hins
vegar verður það þá ekki alltaf sá
sem kemur fyrstur í mark sem
sigrar. Skegla var t.d. með næst
minnstu forgjöfina, 0,946 á
meðan Dögun sem varð í öðru
sæti var með 0,840 í forgjöf. Er
tími í hverri umferð margfaldaður
með þess um tölum og fæst þá
tími til úrslita.
Úrslitin:
1. Skegla ISL9835, Þytur,
Gunnar G. Halldórsson, 8
2. Dögun ISL1782, Brokey,
Þórarinn Stefánsson, 12
3. Aquarius ISL2667, Brokey,
Halldór Jörgensson, 24
4. Sigurborg ISL9845, Ýmir,
Smári Smárason, 25
5. Ögrun ISL9800, Brokey,
Jón Thorberg Ólafsson, 36
6. Icepick 1 ISL01, Þytur,
Rúnar Steinssen, 41
7. Ásdís ISL2217, Þytur,
Arnar Jónssno, 42
Tómstundaleiðbeinendur Tómstundamiðstöðin Áslandsskóla
Aðstoðarmaður í eldhúsi Leikskólinn Hlíðarberg
Kennsla í námsveri unglinga Öldutúnsskóli
Stuðningsfulltrúi Öldutúnsskóli
Aðstoðarverkefnastjóri Frístundaheimilið Álfhraun
Smíðakennsla Setbergsskóli
Almenn kennsla Áslandsskóli
Forfallakennari Öldutúnsskóli
Aðstoðarverkefnastjóri Tómstundamiðstöð Víðistaðaskóla
Skólaliði Áslandsskóli
Leikskólakennari Leikskólinn Hlíðarendi
Stuðningsfulltrúi Áslandsskóli
Yfirmaður í eldhúsi Leikskólinn Hörðuvellir
Bæjarlögmaður Stjórnsýslusvið
Byggingarfulltrúi Umhverfis og skipulagsþjónusta
Skipulagsfulltrúi Umhverfis og skipulagsþjónusta
Aðstoðarmaður í eldhús Hraunvallaskóli
Aðstoð í eldhúsi Hraunvallaskóli
Starfsmaður á frístundaheimlið Selið Öldutúnsskóli
Frístundaleiðbeinendur Frístundaheimilið Holtasel
Starf á heimili fatlaðs fólks í Steinahlíð
Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi Leikskólinn Stekkjarás
Frístundaleiðbeinendur Víðistaðaskóli og í Engidalur
Stuðningsfulltrúar Víðistaðaskóli og Engidalur
Leikskólakennari Leikskólinn Tjarnarás
Skólaliði Víðistaðaskóli
Framtíðarstörf Þjónustukjarni Hverfisgötu
Stuðningsfulltrúi Víðistaðaskóli
Skólaliðar Hraunvallaskóli
Grunnskólakennari Víðistaðaskóli
Stuðningsfulltrúar Hraunvallaskóli
Tómstundaleiðbeinendur Félagsmiðstöðin Mosinn
Pólskumælandi þjónustufulltrúi Þjónustuver
Uppsagnir og störf í boði
Auglýst eftir lögfræðingi og byggingarfulltrúa
Á sama tíma og 16 stöðugildi
er lögð niður hjá Hafnarfjarðarbæ
er fjöldi starfa auglýstur á
ráðningavef. Eftir að hafa sagt
upp skipulags og byggingar
fulltrúa á að ráða tvo í staðinn,
byggingarfulltrúa og skipulags
fulltrúa. Þá á að ráða bæjar lög
mann en þessar stöður hafa verið
auglýstar með stórum aug
lýsingum í Fréttablaðinu.
Bæjarstjóri segir að áætlaður
sparnaður við að leggja niður
þessi 16 stöðugildi sé um 127
millj. kr. á ári. Kostnaður vegna
biðlauna þeirra sem ákveðið
hefur verið að segja upp er um
32 milljónir kr. en áætlaður
heildarkostnaður vegna greiðslu
launa í uppsagnarfresti þeirra
sem ákveðið hefur verið að segja
upp störfum er 46 millj. kr.
Meðalaldur þeirra sem sagt er
upp er 55,3 ár og meðalstarfs
aldur þeirra er 16 ár.
Eftirfarandi störf eru nú
auglýst hjá Hafnarfjarðarbæ.
Undrist lesendur það að hafa
ekki séð þessar stöður auglýstar
þá er rétt að upplýsa að Hafn
arfjarðarbær auglýsir almennt
aldrei lausar stöður í bæjar
blaðinu.
Það er mikill hamagangur þegar hver umferð hefst og bátarnir sigla mjög nálægt hverjum öðrum.
Áhöfnin á Skeglu Íslandsmeistari kjölbáta
Sjö skútur kepptu í 8 umferðum í Hafnarfirði á 40 ára afmælisári Þyts
Leyndardómar Thailands
Kynningarkvöld
föstudaginn 21. ágúst kl. 20
á veitingarstaðnum BAN KÚNN Tjarnarvöllum 15 Hafnarfirði
Aðgangur ókeypis
Ferðaskrifstofan www.ferdin.is kynnir
ferðir til Thailands sem eru í boði alla daga allt árið
Ferðin.is • Burnavöllum 1C-208 • 221 Hafnarfjörður • Sími 846 2510 og 893 8808 • Netfang: ferdin@ferdin.is
Ban Kúnn
Thai Restaurant
Gunnar Geir stýrði Skeglu til sigurs í Íslandsmótinu. Fleiri myndir má sjá á
Facebooksíðu Fjarðarpóstins
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n