Fréttablaðið - 15.05.2015, Side 6
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
MENNTUN Samtökin ‘78 standa
fyrir opinni fræðslu um hinsegin
fólk á sunnudaginn næstkomandi.
Fræðslustarf Samtakanna hefur
verið mikið í umræðunni síðan
bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti að efla hinsegin fræðslu í
grunnskólum bæjarins í apríl síð-
astliðnum.
Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægis-
son lýsti sig andvígan hinsegin
fræðslu í grunnskólum og stofn-
aði Facebook-síðu sem hann nefndi
Barnaskjól. Í kjölfarið vakn-
aði mikil umræða um hinsegin
fræðslu í skólum.
„Fræðslan er haldin út af þess-
ari miklu umræðu sem hefur
verið um fræðslu samtakanna og
fræðslustörf almennt. Í kjölfarið
ákváðu Samtökin ‘78 að blása til
opinnar fræðslu vegna mikilla
ranghugmynda í umræðunni, til
dæmis á internetinu og á Útvarpi
Sögu, um hvað svona fræðsla
snýst og hvernig hún fer fram,“
segir Ugla Stefanía Kristjönu-
dóttir Jónsdóttir, fræðslufulltrúi
Samtakanna ‘78 en mikil umræða
myndaðist meðal annars í þætt-
inum „Línan laus“ á Útvarpi Sögu
þar sem hlustendur hringdu inn
og töluðu gegn hinsegin fræðslu í
grunnskólum.
„Fræðslan snýst um að fræða
fólk um hvað það er að vera hin-
segin og mismunandi hópa innan
hinsegin flórunnar. Við tölum um
mismunandi kynhneigð, kynvitund
og kyn. Svo tölum við líka um for-
dóma og staðalímyndir, lagalega
stöðu hinsegin fólks og loks eru
opnar umræður og spurningum
svarað,“ segir Ugla um fræðsluna.
Opin fræðsla samtakanna, sem
hefur aldrei verið haldin áður, fer
fram á alþjóðlegum degi gegn hin-
segin fóbíu. Ugla segir samtökin
hafa hvatt bæjarfélög til þess að
flagga hinsegin fánanum á þessum
degi undanfarin ár.
Alþjóðlegur dagur gegn hinseg-
in fóbíu er upprunninn í Banda-
ríkjunum og var fyrst haldinn árið
2005. Dagurinn er alltaf haldinn
hátíðlegur 17. maí.
Opin hinsegin fræðsla Sam-
takanna fer fram næsta sunnu-
dag í Háteigsskóla klukkan
15.00.
thorgnyr@frettabladid.is
Blása til opinnar
hinsegin fræðslu
Samtökin ‘78 standa fyrir opinni hinsegin fræðslu á sunnudag. Ugla Stefanía
Kristjönudóttir Jónsdóttir, fræðslufulltrúi Samtakanna, segir fræðsluna haldna til
að útrýma ranghugmyndum sem hafa verið um fræðslustarf samtakanna.
OPIN FRÆÐSLA Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir segir opna hinsegin-
fræðslu Samtakanna ‘78 vera til að sporna gegn ranghugmyndum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fræðslan snýst um að
fræða fólk um hvað það er
að vera hinsegin og
mismunandi hópa innan
hinseginflórunnar.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir,
fræðslufulltrúi Samtakanna ‘78
8.000 voru án vinnu og í atvinnuleit á fyrsta
ársfjórðungi 2015.
179.200 voru starfandi af þeim
187.300 á aldrinum 16 til 74 ára
sem voru á vinnumarkaði.
NÁMAN HRUNDI Fimmtán kólumbískir námamenn festust inni í gullnámu
nálægt bænum Riosucio í Norðvestur-Kólumbíu í gær. Vatn flæddi inn í
námuna sem olli því að hún féll saman. Unnið er að því að dæla vatninu út.
Björgunarmenn sögðu í gær að þrjá daga gæti tekið að dæla nægu vatni úr
námunni.
Eigandi námunnar, Leonardo Mejia, segist hræddur um að allir námamenn-
irnir séu þegar látnir.
Náman er án tilskilinna leyfa rétt eins og um helmingur allra gullnáma í
Kólumbíu. - þea
REYNA AÐ BJARGA NÁMAMÖNNUM
SNÆFELLSNES Um 40 bátar losnuðu
frá flotbryggjunni í Rifi á Snæ-
fellnesi í óveðri í fyrrinótt. Um
tólf björgunarsveitarmenn unnu
eldsnemma í gærmorgun að því
að festa bátana og náðu að tryggja
festar áður en illa fór.
Strandveiðar eru nýhafnar og því
mikið af bátum við bryggjuna í
Rifi.
Í gærmorgun tók að rigna og
hvessa hressilega og segir Viðar
Páll Hafsteinsson, formaður björg-
unarsveitarinnar Lífsbjargar, að
aðgerðir hafi gengið vel.
„Við vorum kallaðir út um sex leyt-
ið. Með snörum handtökum náðum
við að tryggja þá aftur og ganga
frá þeim. Svo var á fjórða tug báta
við flotbryggjuna og við þurftum
að tryggja þó nokkurn hluta af
þeim betur,“ segir Viðar.
Björgunarsveitarmenn nutu lið-
sinnis eigenda bátanna. Engar
skemmdir urðu á bátunum en
björgunaraðgerðirnar tóku um
tvo tíma.
Spurður hvort eitthvað hefði verið
út á það að setja hvernig geng-
ið hafði verið frá bátunum segir
Viðar svo ekki vera.
„Það gerir svona snöggan hvell og
þegar það eru svona margir bátar
er átakið svo ofboðslegt.“
- skó
Tólf björgunarsveitarmenn náðu að koma í veg fyrir mikið tjón:
Fjörutíu bátar fóru á flot
SNÖGGUR HVELLUR Snör handtök vörðu eigendur fjörutíu báta í Rifi tjóni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KJARAMÁL Bandalag háskólamanna
telur að Matvælastofnun fremji verk-
fallsbrot með því að heimila inn-
flutning sjávarafurða á borð við fisk,
rækjur og lýsi.
„Matvælastofnun hefur litið þann-
ig á að þau séu undanskilin undan-
þágum vegna innflutnings á fiskaf-
urðum,“ segir Stefán Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri BHM. „Dýra-
læknar eru ábyrgðaraðilar fyrir
EFTA og um leið og afurð er flutt inn
til Íslands getur hún farið frjáls um
EES-svæðið.“ segir Stefán.
Þeir starfsmenn Matvælastofn-
unar sem hafa eftirlit með öryggi
við innflutning á fiskafurðum eru í
verkfalli og hefur Matvælastofnun
því ekki í höndunum nýjustu upplýs-
ingar um varninginn sem fluttur er
inn. BHM telur að því sé innflutn-
ingurinn óöruggur og mun upplýsa
eftirlitsstofnun EFTA um innflutn-
inginn ef honum linnir ekki.
„Við munum hugsanlega ítreka
þetta. En ef ekkert verður aðhafst
munum við tilkynna þetta til EFTA,“
segir Stefán. - srs
Bandalag háskólamanna mun hugsanlega upplýsa eftirlitsstofnun EFTA:
Lýsisinnflutningur verkfallsbrot
MATVÆLASTOFNUN Dýralæknar eru
ábyrgir gagnvart EFTA. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Matvæla-
stofnun hefur
litið þannig á
að þau séu
undanskilin
undanþágum
vegna inn-
flutnings á fiskafurðum
Stefán Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri BHM.
SVONA ERUM VIÐ
Ársfundur Lífeyrissjóðs
Tannlæknafélags Íslands
Ársfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands
verður haldinn föstudaginn 5. júní 2015 kl. 16:00 í
Aðalútibúi Landsbankans Austurstræti 11.
Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum
sjóðsins.
Upplýsingar um fundinn og ársreikning má nálgast á
heimasíðu sjóðsins www.landsbankinn.is/ltfi.
Stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
F
-D
A
C
C
1
6
3
F
-D
9
9
0
1
6
3
F
-D
8
5
4
1
6
3
F
-D
7
1
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K