Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 24
2 • LÍFIÐ 15. MAÍ 2015
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is ● Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is
Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Stefán Karlsson
Lífi ð
www.visir.is/lifid
Nú er loksins komið skaplegt veður
til að fara út að hjóla. Þetta er hreyf-
ing sem er holl og styrkjandi fyrir lík-
ama og sál og er kjörin leið til að
eiga góða samverustund með fjöl-
skyldunni. Fjölbreytt úrval er
til af hjólum og er mikilvægt að gæta
að öryggisbúnaði líkt og hjálmum
fyrir unga sem aldna. Gott er að
byggja hægt og rólega upp þolið
og hjóla á hraða sem hver og einn
ræður vel við.
Hjólum saman örugg
inn í sumarið.
LÍFIÐ MÆLIR MEÐ
HJÓLREIÐUM
Sumarsprengja
20-50% afsláttur
Skipholti 29b • S. 551 0770
Um daginn sá ég frétt á netinu
um konu sem hafði ekki hent frá
sér rusli í bráðum tvö ár, fyrir
venjulegan leikmann eins og mig
þá er það kannski of mikið af því
góða og jafnvel allt að því óhugs-
andi gjörningur. Þessi frétt sat
aftur á móti í mér og var ekki hjá
því komist að fara í smá sjálfs-
skoðun í kjölfarið og skoða niður
í kjölinn ruslahefðir heimilis-
ins. Jú, að einhverju leyti stendur
fjölskyldan sig vel en við gætum
gert svo miklu betur með smá-
vægilegum breytingum, þó að það
væri ekki nema bara örlítil hug-
arfarsbreyting. Flest heimili eru
nú farin að sortera endurvinnan-
legan pappír frá venjulegu heimil-
issorpi og setja til hliðar plast- og
glerflöskur sem svo er skilað til
endurvinnslu. En hvað getum við
gert meira til þess að verða um-
hverfisvænni á einfaldan hátt?
Við skulum kíkja á nokkur góð
ráð.
Gler í stað plasts
Notum glerflöskur í stað plast-
flaskna undir vatnið okkar í
ræktinni og í vinnunni. Það er
bæði betra fyrir okkur og um-
hverfið.
Endurnýtanlegir pokar
Ekki kaupa plastpoka nema í
undantekningartilfellum. Notum
endurnýtanlega poka undir mat-
vörur og önnur innkaup.
Hvílum þurrkarann
Eins og það er þægilegt að
henda öllu í þurrkarann þá notar
hann óþarflega mikið af raf-
magni og styttir endingu fatnað-
ar. Hengjum þvottinn upp.
Rennandi vatn
Það er algjör óþarfi að láta vatn-
ið renna við uppvaskið eða tann-
burstunina. Skrúfum fyrir
þegar við erum ekki að nota
vatnið.
Hjólum, hlaupum
Hvílum bílinn eins mikið og
við mögulega komumst af með.
Hjól um, hlaupum eða göngum í
staðinn eða sameinumst um bíl-
ferðir.
Kaffibollinn
Á flestum vinnustöðum er kaffi í
boði hússins og við hverja kaffi-
vél er hrúgan öll af pappírsmál-
um. Notum okkar eigin bolla í
vinnunni.
Gefðu fötin þín
Gefðu fötin í fatasöfnun eða til
vina ef þú ert hætt að nota þau.
Barnaföt geta komið öðrum að
góðum notum enda oftast lítið
notuð.
Borgaðu reikningana
Fáðu reikningsyfirlit og reikn-
inga í tölvupósti eða heimabank-
ann.
Beint frá býli
Reyndu af fremsta megni að
kaupa frá nærliggjandi fram-
leiðendum. Bæði er varan fersk-
ari og þú stuðlar að atvinnu í
samfélaginu.
Nýttu matinn
Búðu til lista áður en þú kaupir í
matinn svo þú farir ekki að kaupa
einhvern óþarfa og endir á því að
henda helmingnum. Verum með-
vituð í matarinnkaupum.
„Á flestum vinnustöðum er
kaffi í boði hússins og við
hverja kaffivél er hrúgan
öll af pappírsmálum.
Notum okkar eigin bolla
í vinnunni
Andrea Sóleyjar og Björg-
vinsdóttir er í ritstjórn Kvenna-
blaðsins, eigandi skemmtistað-
arins Fróns á Selfossi og móðir
þriggja stúlkna. Þegar Andrea
smellir sér í rómantíska og ró-
lega stemningu þá smellir hún
eftirfarandi lögum á fóninn og
slakar á.
KING KUNTA
KENDRICK LAMAR.
THEY DON’T KNOW
DISCIPLES.
7/11
BEYONCÉ.
WHEN A FIRE STARTS
TO BURN
DISCLOSURE.
FADED MED ZHU.
BOING
NICK OG JAY.
FADE OUT LINES
THE AVENER AND
PHOEBE KILLDEER.
LAY ME DOWN
SAM SMITH.
SAY YOU LOVE ME
JESSIE WARE
RÓLEG
RÓMANTÍK
TÍU SKREF Í ÁTT AÐ
UMHVERFISVÆNNI LÍFSSTÍL
Margt smátt gerir eitt stórt og því er mikilvægt að leggja sitt af mörkum til að hlúa að umhverfinu.
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is
Það skiptir máli fyrir heiminn eins og hann er í dag og eins og hann verður í framtíðinni að snúa við blaðinu í umhverfisvitund.
NORDICPHOTOS/GETTY
Heilsuvísir
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
0
-A
5
3
C
1
6
4
0
-A
4
0
0
1
6
4
0
-A
2
C
4
1
6
4
0
-A
1
8
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K