Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 45
FÖSTUDAGUR 15. maí 2015 | LÍFIÐ | 29
Gunnar Leó
Pálsson
gunnarleo@frettabladid.is
15. og 16. maí
Aðdáendur gullaldar rokksins
mega ekki missa af þessu!
FÁNÝTUR EUROVISION FRÓÐLEIKUR 11 DAGAR Í EURO
Breyting á deiliskipulagi
Kapelluhrauns 1. áfanga
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi
sínum þann 10. mars 2015 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu-
na með áorðnum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010.
Breytingin er vegna nýrra lóða við Bronshellu, Gullhellu og
Koparhellu og felst í því að athafnalóðum á svæðinu er fjölgað
og nýtingarhlutfall lækkað þannig að það verður almennt 0.2.
Nýting lóða er ætluð starfsemi sem þarf mikið landrými frekar
en mikið byggingarmagn.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strand-
götu 8-10 og hjá skipulags- og byggingarsviði Norðurhellu 2,
frá 15. maí til 28. júní 2015. Hægt er að skoða deiliskipulags-
tillöguna á forsíðu vefs Hafnarfjarðarbæjar
www.hafnarfjordur.is
Nánari upplýsingar eru veittar á skipulags- og byggingarsviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur
á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað
skriflega til skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðarbæjar,
eigi síðar en 28. júní 2015. Þeir sem eigi gera athugasemdir við
breytingarnar innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar
EUPHORIA Loreen kom sá og sigraði fyrir
Svíþjóð 2012.
● Ítalir tóku þátt árið 2011 í fyrsta
sinn síðan 1997 og lentu í 2.sæti
● 20 af 25 þjóðum á lokakvöldinu
árið 2011 fengu 12 stig.
● Eurovision var sýnt á Íslandi í
fyrsta sinn 23. apríl 1983
● Árið 1969 fór Eurovision-keppnin
fram í Madrid á Spáni 29. mars.
Meðal keppanda var 12 ára
drengur, Jean Jaques, sem keppti
fyrir Mónakó
● Sama ár urðu sigurvegararnir
fjórir, allir með 18 stig: Lulu frá
Bretlandi, Lenny Kuhr frá Hollandi,
Frida Boccara frá Frakklandi og
Salomé með lagið Vivo Cantando
● Sigurvegari keppninnar árið 2012,
Loreen frá Svíþjóð, með lagið
Euphoria, fékk flest 12 stig frá upp-
hafi eða 18 talsins
● Árið 2010 hljóp hinn spænski
Jimmy Jump upp á svið og truflaði
atriði sinnar eigin þjóðar. Spán-
verjar fengu þó annað tækifæri og
fluttu atriðið sitt aftur
● Jóhanna Guðrún fékk alls 218 stig
fyrir Íslands hönd árið 2009, þegar
hún lenti í öðru sæti með lagið Is
it true?, en það eru langflest stig
sem við höfum fengið.
● Á árunum 2009-2013 lenti Aserba-
ídsjan í fimm efstu sætunum
● Írar héldu keppnina fjórum sinnum á
fimm árum; 1993,1994,1995 og 1997.
● Páll okkar Óskar braut blað í
sögu Eurovision þegar hann varð
fyrstur til þess að nota handfrjálsan
míkrofón árið 1997.
● Það er kraftaverk að keppnin hafi farið
fram árið 1980. Ísraelar ætluðu fyrst
að halda hana, en vegna peningaleysis
tókst það ekki. Þá áttu Spánverjar
að halda keppnina, svo Bretar en að
lokum voru það Hollendingar og fór
hún fram í Haag 19. apríl.
ÓGLEYMANLEGT
Jóhanna Guðrún á
sviðinu í Moskvu
2009.
Hljómsveitin Ensími hefur haldið sig til hlés á undanförnum árum og hefur ekki gefið út plötu frá því árið 2010, en þá
kom platan Gæludýr út. Sveitin er
þó að vakna úr dvala um þessar
mundir og er að leggja lokahönd
á sínu fimmtu breiðskífu og er
hún væntanleg til útgáfu á næstu
vikum. Nýja platan mun bera titil-
inn Herðubreið.
Það eru eflaust margir tónlist-
arunnendur sem gleðjast yfir því
að sveitin er að snúa aftur, enda
hefur Ensími verið ein virtasta
rokkhljómsveitin þjóðarinnar, allt
frá því að hún gaf út sína fyrstu
plötu, Kafbátamúsík árið 1998, þó
svo að sveitin hafi ekki verið á for-
síðu allra blaða alltaf.
„Ætli við séum ekki búnir að
vera að vinna í plötunni í svona
þrjú til fjögur ár. Heildartíminn
var samt ekkert svo langur því
við tókum þetta í skorpum. Ef
við myndum búa til vinnuskýrslu
væri þetta ekkert svo langur tími,“
segir Hrafn Thoroddsen einn af
stofnendum hljómsveitarinnar
spurður út í vinnuna við Herðu-
breið.
Fara út fyrir þægindahringinn
Ensími leitar í ýmsar áttir á nýju
plötunni og fer sveitin út fyrir
þægindahringinn. „Síðasta plata
var tekin upp live í Sundlauginni
en þessa plötu höfum við unnið
öðruvísi, við spiluðum til dæmis
aldrei inn neitt lag allir í einu,
nema kannski ég og Guðni bassa-
leikari. Þetta er meira stúdíóunn-
in plata en síðasta plata,“ segir
Arnar Þór Gíslason, trommuleik-
ari sveitarinnar. „Nýja platan er
kannski aðeins rólegri en síðasta
plata, minni ærslagangur enda
erum við orðnir svo þroskaðir,“
bætir Arnar við léttur í lund. „Það
má alveg segja að við séum að fara
svolítið út fyrir þægindahringinn,“
segir Hrafn.
Hrafn og Arnar vilja þó ekki
kalla þessa upprisu comeback.
„Við höfum alltaf verið latir að
spila tónleikum og sérstaklega
undanfarin ár. Síðustu svona
átta ár höfum við verið að spila
kannski fjórum til fimm sinnum á
ári. Við höfum alltaf passað að láta
ekki líða of langt á milli tónleika.
Trixið er að passa að þetta stoppi
ekki,“ útskýrir Hrafn og bætir við;
„Við verðum líka ekki leiðir á að
spila slagarana ef við spilum þetta
sjaldan. Við þurfum þó alltaf að
æfa þá aftur.“
Eins og fjölskylda
Nafn plötunnar er vísun í eitt lag
plötunnar. „Nafnið Herðubreið er
vísun í lag á plötunni og snýst um
að komast yfir hindranir, sigrast
á hlutum, klífa fjöll og það lá bein-
ast við að draga fram drottningu
íslenskra fjalla,“ segir Hrafn.
Frá því að Ensími var stofnuð árið
1996 hafa talsverðar mannabreyt-
ingar átt sér stað en sá kjarni sem
myndar sveitina í dag er þéttur og
líta þeir á sig sem eins konar fjöl-
skyldu. „Við höfum verið frekar
þéttur kjarni síðustu svona átta
árin,“ segir Hrafn. „Við erum í
raun eins og fjölskylda. Við erum
tur með nýja plötu
lokahönd á sína fi mmtu breiðskífu. Platan ber nafnið Herðubreið og kemur hún út á
heljarinnar útgáfutónleikum þann 13. júní í Gamla bíói.
líka í mörgum öðrum verkefnum
saman,“ bætir Arnar við. Kjarni
sveitarinnar hefur verið að leika
saman í öðrum hljómsveitum eins
og Dr. Spock, með Mugison, Bang
Gang svo nokkur nöfn séu nefnd.
Í dag skipa sveitina þeir Hrafn
Thoroddsen söngvari, gítarleikari
og hljómborðsleikari, Guðni Finns-
son bassaleikari, Franz Gunnars-
son gítarleikari, Arnar Þór Gísla-
son trommuleikari og Þorbjörn
Sigurðsson hljómborðsleikari.
Semja sjaldan saman
Spurður út lagasmíðarnar segir
Hrafn, aðalalagahöfundur Ens-
ími, hljómsveitina ekki hittast í
æfingahúsnæðinu til þess að semja
saman, heldur verði lögin oftast til
þegar menn eru hver í sínu horn-
inu. „Ég hef yfirleitt komið með
grunnhugmyndirnar og oft eru
demóin sem ég kem með nokkuð
tilbúin. Meðlimir sveitarinnar eru
allir í 100 öðrum böndum þann-
ig að það er extra erfitt að koma
hópnum saman. Þess vegna höfum
ekki verið semja saman í æfinga-
húsnæði,“ útskýrir Hrafn.
Hljómsveitin á mikið til af efni
sem hefur ekki ratað á plötu.
„Þegar við erum að vinna þá verð-
ur til fullt af lögum og lögin eru
svo unnin mislangt. Sum lög fá
meiri vinnu en önnur og sum þurfa
að víkja. Það er til í rosalega mikið
af efni ef b-side platan kemur ein-
hvern tímann út,“ segir Arnar og
hlær.
Ensími ætlar að fagna nýju
plötunni með tónleikum sem
fara fram þann 12. júní í Gamla
bíói. Þar verður nýja platan leik-
in í heild sinni. En fáum við að
heyra eitthvað af eldri slögurun-
um? „Fólk fær að heyra slagarana
á tónleikunum, það er nóg til af
lögum,“ segir Arnar.
Ensími ætlar að koma fram á
fleiri tónleikum í sumar en þær
dagsetningar sem eru bókaðar eru
Secret Solstice-hátíðin og Bræðsl-
an. „Það á eitthvað eftir að bætast
við af tónleikum, við ætlum að
vera duglegir að fylgja plötunni
eftir,“ bætir Hrafn við.
HVENÆR
13. júní, klukkan 20.00
STAÐUR
Gamla bíó
HVERNIG
Miðasala hefst á tix.is
klukkan 12.00 í dag
➜ Útgáfutónleikar
Ensími
Nýja platan er
kannski aðeins rólegri en
síðasta plata, minni
ærslagangur enda erum
við orðnir svo þroskaðir.
Arnar Þór Gíslason,
trommuleikari Ensími
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
F
-C
B
F
C
1
6
3
F
-C
A
C
0
1
6
3
F
-C
9
8
4
1
6
3
F
-C
8
4
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K