Fréttablaðið - 15.05.2015, Síða 10
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Ræsting er ekki bara að skúra
gólf. Hjá mér snýst þetta um
að skapa jákvæða upplifun og
vellíðan.
Við hugsum í lausnum.
Fáðu upplýsingar um þjónustuna.
580 0600 sala@iss.is
„Ég legg mig fram
um að þér líði vel
í vinnunni”
Heildarlausnir í fasteignaþjónustu.
Enginn viðskiptavinur hefur sömu þarfir.
Við sérsníðum lausnir sem henta
hverjum og einum.
F A S T E I G N A U M S J Ó N | R Æ S T I N G | M A T V Æ L A Þ R I F | S É R V E R K E F N I | V E I T I N G A R | I S S . I S
SAMFÉLAG Ásdís Hjálmsdóttir
afreksíþróttakona, sem hefur
keppt fyrir Íslands hönd í spjót-
kasti á Ólympíuleikunum, safnar fé
fyrir veika systurdóttur sína. Systir
Ásdísar býr í Flórída ásamt eigin-
manni sínum og sjö ára dóttir henn-
ar hefur glímt við erfið veikindi.
„Ísabella litla greindist nýlega
með Crohn’s (bólgusjúkdómur í
þörmum) og liðagigt og fjölskyld-
an er búin að upplifa mjög erfiða
tíma undanfarið. Nú fer að koma
að því að borga reikninga sem eru
langt umfram
þeirra bolmagn,“
segir Ásdís, en
sett hefur verið
upp söfnunarsíða
á slóðinni: www.
life.indiegogo.
com til styrktar
Ísabellu.
„Hún hefur
verið mikið veik
núna í næstum tvö ár. Þetta hefur
verið ákaflega erfiður tími fyrir
fjölskylduna þar sem hún var með
mikla óútskýranlega verki í litla lík-
amanum sínum. Þau fóru fram og
til baka á milli lækna, sérfræðinga
og til sjúkraþjálfara til að reyna
að finna út hvað væri að en enginn
hafði svör. Hún gat ekki hlaupið um
og leikið sér eins og önnur börn án
þess að liggja grátandi með kæli-
poka og verkjatöflur um kvöldið.
Auk þess var hún öll að rýrna og
þroskaðist ekki eðlilega, segir Ásdís
frá gangi sjúkdómsins, sem var
greindur eftir langa sjúkrahúsdvöl
og endurteknar rannsóknir.“ - kbg
Ásdís Hjálmsdóttir Ólympíufari kemur systurdóttur sinni til hjálpar og hefur söfnun:
Greindist loksins eftir tveggja ára veikindi
VEIK Í TVÖ ÁR Systurdóttir Ásdísar
Hjálmsdóttur þjáist af Crohn‘s-sjúkdómi
og reikningar eru að sliga fjölskylduna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁSDÍS
HJÁLMSDÓTTIR
BJÖRGUN Björgunarsveitin Þor-
björn í Grindavík kom konu til
aðstoðar á Hagafelli í gær. Konan
hafði velt fjórhjóli sínu og hafði
kallað eftir aðstoð björgunar-
sveita. Björgunarsveitin flutti
lögreglu og sjúkraflutningamenn
á slysstað. Hún var flutt á sjúkra-
hús með minniháttar meiðsli.
Búið var að sárum hennar á fjall-
inu og hún flutt burt í sjúkrabíl.
„Veðurskilyrði voru góð og
björgunarsveitin kom henni fljótt
niður af fjalli niður í sjúkrabíl,“
sagði Ólöf Snæhólm Baldurs-
dóttir, upplýsingafulltrúi Lands-
bjargar. „Þetta var erlend ferða-
kona og hún hafði velt fjórhjólinu
sínu. Hagafell er bara rétt fyrir
ofan Grindavík þannig að það
var auðvelt að bregðast fljótt við.
Sveitin kom svo hjólinu og ferða-
félögum hennar til byggða,“ sagði
hún.
- srs
Aðstoðuðu erlenda ferðakonu á Hagafjalli:
Velti fjórhjóli sínu
BÚIÐ UM SÁRIN Skilyrði við björgun voru góð MYND/OTTI RAFN SIGMARSSON
UMHVERFISMÁL Landgræðslan
hyggst dreifa kjötmjöli á um
40 hektara af lítt grónu landi á
Tunguheiði.
„Sumarið 2014 var dreift kjöt-
mjöli á aðliggjandi svæði sem
gaf góða raun. Leitað hefur verið
eftir afstöðu Heilbrigðiseftir-
lits Suðurlands, sem gerir ekki
athugasemdir við dreifingu kjöt-
mjöls á þetta landssvæði,“ segir
byggðaráð Bláskógabyggðar sem
samþykkir fyrir sitt leyti að kjöt-
mjölinu verði dreift. - gar
Uppgræðsla á Tunguheiði:
Landgræðslan
dreifir kjötmjöli
DÓMSMÁL Jón Steinar Gunnlaugs-
son, hæstaréttarlögmaður og
fyrrverandi dómari við Hæsta-
rétt Íslands, ætlar að flytja erindi
um Hæstarétt, miðvikudaginn 20.
maí í Háskólanum í Reykjavík.
Jón Steinar ætlar að ræða um
starfsskilyrðin sem rétturinn
starfar við og áhrif þeirra á gæði
úrlausna réttarins. Hann segist
leitast við að skýra hvaða vanda-
mál steðja að réttinum og hvað
þurfi að gera til að bæta þar úr.
Fundurinn er haldinn að frum-
kvæði Jóns Steinars sjálfs.
Jón Steinar tekur fram í til-
kynningu að hann telji úrbæt-
ur á dómskerfinu meðal allra
brýnustu verkefna samtímans á
Íslandi. - kbg
Jón Steinar Gunnlaugsson:
Heldur erindi
um Hæstarétt
RÆÐIR VANDA RÉTTAR Jón Steinar
hefur verið ötull í því að ræða um störf
Hæstaréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
➜ Konan var flutt á sjúkra-
hús með minniháttar
meiðsli. Búið var að sárum
hennar á fjallinu og hún flutt
burt í sjúkrabíl.
STJÓRNSÝSLA „Það er öllum mönnum
ljóst sem þekkja til eðlilegs fyrir-
tækjareksturs að ef þú ert að borga
rúmlega þriðjung tekna þinna í fast-
eignagjöld þá stendur reksturinn
ekki undir sér,“ sagði Halldór Guð-
mundsson, forstjóri Hörpu.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafn-
aði síðastliðinn þriðjudag kröfu
Hörpu um að úrskurður yfirfast-
eignamatsnefndar frá maí 2012
verði gerður ógildur.
Samkvæmt úrskurði matsnefnd-
arinnar á Harpa að greiða um 380
milljónir í fasteignagjöld í ár en
rekstrartekjur Hörpu voru rétt yfir
einum milljarði.
Fasteignamat Hörpu árið 2011
var 17 milljarðar króna samkvæmt
Þjóðskrá og miðað var við bygg-
ingarkostnað. Stjórn Hörpu taldi að
matið ætti að vera um sjö milljarð-
ar, byggt á rekstrarkostnaði húss-
ins, og kærðu niðurstöðu Þjóðskrár
til yfirfasteignamatsnefndar. Ekki
hefur verið ákveðið hvað verði gert
við niðurstöðu héraðsdóms.
„Stjórnin kemur saman í vikunni
og mun ræða hvernig skal bregð-
ast við. Enn hefur ekki verið tekin
ákvörðun um áfrýjun,“ sagði Hall-
dór.
„Það er algerlega ljóst að þetta
er vandamál eigenda hússins. Það
sjá það allir Íslendingar að aðsókn í
húsið er að aukast, það eru um 480
tónleikar á ári og það er orðið mið-
lægt í menningarlífi þjóðarinnar.
Eigendurnir sjá það og hljóta því að
vilja leggja húsinu lið ef þess þarf,“
sagði hann.
„Við munum bara horfast í augu
við þetta. Ég lít ekki á þetta sem eitt-
hvað dramatískt, bara sem úrlausn-
arefni.“
Ríkið og Reykjavíkurborg eru eig-
endur Hörpu. Ríkið á 54 prósent í
Hörpu og borgin 46 prósent. Eigend-
urnir leggja Hörpu til fjármagn til
að standa undir ákveðnum þáttum í
rekstri hússins.
„Borgin ásamt ríkinu er að greiða
samtals um milljarð í rekstur Hörpu
en það fjármagn á að fara í niður-
greiðslu lána,“ sagði Dagur B. Egg-
ertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
„Síðan er borgin að taka þátt í
rekstri sinfóníunnar en að öðru leyti
á rekstur Hörpu að standa undir
sér,“ segir Dagur.
„Harpa er frábært hús en eitt dýr-
asta hús landsins og menn gleyma
því oft að hún líkt og allur annar
rekstur er að greiða ýmis gjöld.
Harpa borgar til dæmis launagjöld
og virðisaukaskatt,“ segir hann.
Dagur segir að beðið verði eftir
ákvörðun stjórnar Hörpu um áfrýj-
un áður en næstu skref verða ákveð-
in. „Við viljum að stjórn Hörpu sjái
alfarið um að taka ákvarðanir um
alla meðferð fyrir dómstólum.“
- srs
Þriðjungur rekstrartekna
Hörpu fer í fasteignagjöld
Harpa mun þurfa að greiða rúmlega 380 milljónir í fasteignagjöld eftir dómsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur.
Borgarstjóri Reykjavíkur segir að beðið verði eftir ákvörðun stjórnar Hörpu um áfrýjun áður en ákveðið verði
hver næstu skref eru. Forstjóri Hörpu segir að ríki og borg muni sjá hag sinn í að styrkja rekstur hússins.
HALLDÓR
GUÐMUNDSSON
DAGUR B.
EGGERTSSON
HARPA Fasteignamat Hörpu er 17 milljarðar samkvæmt Þjóðskrá. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
0
-5
1
4
C
1
6
4
0
-5
0
1
0
1
6
4
0
-4
E
D
4
1
6
4
0
-4
D
9
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K