Fréttablaðið - 15.05.2015, Page 17
FÖSTUDAGUR 15. maí 2015 | SKOÐUN | 17
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Markaður Smáratorgi Outlet Grafarvogi
Breskir fjölmiðlar standa
frammi fyrir ráðgátu sem
ætlar að reynast þeim erfitt
að leysa. En þeir gefast ekki
upp. Nú þegar vika er liðin frá
þingkosningum í Bretlandi hafa
færustu rannsóknarblaðamenn
landsins gengið í málið. Ekkert
er til sparað. Laun eru í boði
þeim til handa sem veitt getur
upplýsingar um gátuna. Breska
pressan stendur vaktina. Þjóðin
skal fá skýringu á hinu dular-
fulla hvarfi þyngsta loforðs
kosningabaráttunnar.
Hver þykist hann vera? Móses?
Einhvers staðar situr nú póli-
tískur ráðgjafi heima hjá sér
með höfuð í höndum sér og þá
vitneskju í hjarta að eitt fárán-
legasta pólitíska uppátæki
mannkynssögunnar fæddist í
kollinum á honum.
Fyrir viku urðu draumar Ed
nokkurs Miliband um að verða
forsætisráðherra Bretlands að
engu. Verkamannaflokkurinn
beið ósigur í þingkosningunum
þrátt fyrir að skoðanakannanir
hefðu bent til annars.
Það var ekkert í fari Mili-
band sem gaf til kynna að hann
teldi sig vera að tapa þegar
hann mætti á blaðamannafund
í smábænum Hastings á suður-
strönd Englands skömmu fyrir
kosningar. Þvert á móti. Hann
var bara frekar brattur í bestu
jakkafötunum sínum – jakk-
inn ekki of síður, herðapúðarn-
ir ekki upp að eyrum – er hann
mætti á fundarstað, víðfeðmt
bílastæði, þar sem myndavél-
arnar biðu hans. En himinn-
inn var jafngrár og malbikið og
þótt Miliband sæi þau ekki voru
óveðursský á lofti.
Brosandi stillti Miliband sér
upp fyrir framan tveggja og
hálfs metra háa, áletraða stein-
töflu úr kalksteini eins og ekk-
ert væri eðlilegra.
„Þessi sex loforð eru meitl-
uð í stein,“ sagði Miliband þar
sem hann stóð undir mörg
hundruð kílóa þungri töflunni
sem hefði kramið hann eins og
skósóli maur ef aðstoðarmaður
hans hefði ekki skorðað hana
almennilega. Loforðin á steinin-
um voru sex af mörgum tugum
stefnumála sem Verkamanna-
flokkurinn talaði fyrir í kosn-
ingabaráttunni. „Þau eru meitl-
uð í stein svo að þau verði ekki
svikin eftir kosningarnar.“
Steintaflan var útspil Verka-
mannaflokksins við vantrausti
fólks á stjórnmálamönnum.
Hugmyndin var sú að ekki
væri hægt að brjóta loforð
sem voru bókstaflega meitluð í
stein. Jafnframt átti steinninn
að minna á öll þau loforð sem
fráfarandi ríkisstjórn íhalds-
manna og frjálslyndra demó-
krata hafði svikið, því þau
höfðu hvorki verið meitluð í
stein í bókstaflegri né óeigin-
legri merkingu.
En táknrænir gjörningar
sem kalksteinninn eru vand-
meðfarnir. Sé merkingin ekki
niðurnjörvuð er öllum frjálst
að lesa það sem þeim sýnist í
uppátækið. Steinninn kramdi
Miliband ekki bókstaflega. En
hann gerði það óeiginlega. Ekki
leið á löngu uns öðrum túlkun-
um á steintöflunni rigndi yfir
Miliband eins og eldi og brenni-
steini. „Þetta er legsteinn Mili-
band.“ „Þyngsta sjálfsmorðs-
bréf sögunnar.“ „Hver þykist
hann vera með þessa steintöflu?
Móses?“
Lög til að halda loforðið
Verkamannaflokkurinn var
ekki eini flokkurinn í kosning-
unum sem virtist ganga út frá
því að stjórnmálamönnum væri
ekki treystandi. David Cam-
eron, formaður Íhaldsflokksins,
lofaði því að hækka ekki tekju-
skatt á kjörtímabilinu kæmist
hann til valda. Jafnframt lofaði
hann því að setja lög sem bönn-
uðu honum að hækka tekju-
skatt á kjörtímabilinu – eins og
honum væri svo eðlislægt að
svíkja loforð að hann gæti ekki
hamið sig nema það væri hrein-
lega ólöglegt. Og útgáfa frjáls-
lyndra demókrata af steintöflu
Miliband voru sex rauðar línur
sem flokkurinn sagðist lofa að
stíga ekki yfir; sex loforð í lof-
orðahafi kosningabaráttunnar
sem flokkurinn lofaði að svíkja
ekki.
Öll voru uppátækin innan-
tómar brellur. Þegar þingkona
í Verkamannaflokknum mætti
í útvarpsviðtal lét hún þau orð
falla um loforðin á steintöflunni
„að það héldi því enginn fram
að þótt búið væri að meitla
þau í stein ætluðu þau ekki
að brjóta þau“. Þótt eitthvað
sé meitlað í stein er það ekki
meitlað í stein.
Kassi af kampavíni í boði
Kosningunum er lokið. Íhalds-
flokkurinn bar sigur úr býtum
og hefur fimm ár til að svíkja
loforð sín. Fjölmiðlar beina nú
sjónum að því sem skiptir raun-
verulega máli. Hvað varð um
steintöfluna hans Miliband?
Dagblaðið The Telegraph
hringdi í fimmtíu helstu stein-
smiði Bretlands til að reyna að
leysa gátuna. Daily Mail hyggst
gefa þeim heilan kassa af
kampavíni sem veitt getur upp-
lýsingar um hvar steinninn er
niðurkominn.
Mér varð hugsað til allra lof-
orðanna í kosningabaráttunni í
Bretlandi þegar ég las fréttir af
stöðu aðildarviðræðna Íslands
við ESB í vikunni. Hver raun-
veruleg staða málsins er treysti
ég mér ekki til að fullyrða en
ég gef þeim sem hendir reiður á
því heilan kassa af kampavíni.
Evrópusambandsmálið sýnir
að íslenskir stjórnmálamenn
eru engir eftirbátar breskra
kollega sinna þegar kemur að
því að svíkja loforð. Í stefnu-
skrá Sjálfstæðisflokksins fyrir
síðustu kosningar stóð: „Kjós-
endur ákveði í þjóðaratkvæða-
greiðslu hvort aðildarviðræðum
skuli haldið áfram.“ Þremur
dögum fyrir kosningar sagði
Bjarni Benediktsson að stað-
ið yrði við það loforð. Nýverið
bárust hins vegar fréttir af því
að loforðið hefði horfið með dul-
arfullum hætti úr stefnuskrá
flokksins á netinu.
Það er ekki kassi af kampa-
víni í boði fyrir þann sem hefur
upp á Evrópusambandsloforði
Sjálfstæðisflokksins. Því við
vitum öll hvar það er. Það er á
sama stað og steintafla Mili-
band: Á haugunum.
Þótt eitthvað sé meitlað í stein
er það ekki meitlað í stein
Þessi sex loforð eru
meitluð í stein, sagði
Miliband þar sem hann stóð
undir mörg hundruð kílóa
þungri töflunni sem hefði
kramið hann eins og skósóli
maur ef aðstoðarmaður
hans hefði ekki skorðað
hana almennilega.
AF NETINU
Freki karlinn
fundinn
Jónas Krist-
jánsson telur
Jón Gunnars-
son hljóta að
vera frekan
karl.
„Freki
karlinn“ er
orðinn að
miðlægu hug-
taki í tali fólks
um pólitíkina. Mig minnir, að
Jón Gnarr sé höfundur hug-
taksins. Hann sagðist oft hafa
hitt freka karlinn, sem reynir að
valta yfir allt og alla. Ég hef verið
að velta því fyrir mér, hver sé
þessi persóna í raun. Með komu
nýrrar ríkisstjórnar hélt ég fyrst
það geta verið Sigurður Ingi
Jóhannsson. Tuddaðist um víðan
völl, en mannaðist síðan. Eða
málhölt Vigdís Hauksdóttir, en
hún reyndist bara tala hraðar en
hún hugsar. Nú veit ég, að „freki
karlinn“ er Jón Gunnarsson, sem
hatar víðernin eins og pestina,
enda gamall bóndi. Brýtur lög og
reglur í taumlausri frekju.“
www.jonas.is
Jónína full af ótta
Jónína
Benedikts-
dóttir sem
tjáði sig um
múslimakonu
í sundi með
höfuðklút hitti
hana aftur í
sundi og skipti
um skoðun.
„Mér leið
betur vissi að hún var þrifleg. Fór
síðan aftur í pottinn sælli en fyrr
innan um íslensku kroppana sem
koma í sund þegar sólin skín.
Eitthvað var ég hugsi um
breytta tíma og hvort ég væri ef
til vill svona full af ótta vegna
áróðursumræðu Bandaríkjanna.“
www.facebook.com/jonina.ben
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
F
-B
D
2
C
1
6
3
F
-B
B
F
0
1
6
3
F
-B
A
B
4
1
6
3
F
-B
9
7
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K