Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2015, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 15.05.2015, Qupperneq 20
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, VILBORG MAGNEA ÞÓRÐARDÓTTIR lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 28. apríl sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks 5. hæðar Hjúkrunarheimilisins Skjóls fyrir alúð og umhyggju. Kristbjörg Þ. Bergmann Stefán Ármann Þórðarson Ólafur Þórðarson Kolbrún Valdimarsdóttir Sigríður Bergmann og aðrir ættingjar. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDÍS GUÐRÚN ANNELSDÓTTIR síðast til heimilis að Vesturgötu 7, Reykjavík, lést 30. apríl síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju í dag föstudaginn 15. maí, kl. 13. Þorsteinn R. Þorsteinsson Ágústa Bárðardóttir Unnur Þorsteinsson Annel B. Þorsteinsson Guðrún Sigurðardóttir Guðmundur M. Þorsteinsson barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, AASE V. M. DUNN frá Tórshavn, Færeyjum, lést á heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi þriðjudaginn 21. apríl síðastliðinn. Bálför fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 18. maí nk., kl. 15.00. Axel H. Lutzhöft Eyðna Hansen Charlotta Evensen Þorvaldur Evensen Elisabeth Dunn barnabörn og barnabarnabörn. MERKISATBURÐIR 1525 Orrustan við Frankenhausen gerði út um bændauppreisn í Þýskalandi. 1770 Íslandi var skipt í ömt: annars vegar suður- og vesturamt og hins vegar norður- og austuramt. Síðar voru suðuramt og vesturamt aðskilin. 1811 Paragvæ fékk sjálfstæði frá Spáni. 1897 Sigfús Eymundsson flutti til landsins talvél eða grafófón og var sagt frá því í auglýsingu að tækið talaði og syngi ýmis lög. 1905 Stofnun Las Vegas: Járnbrautarfélag seldi stóra land- spildu í Nevadaeyðimörkinni til áhættufjárfesta. 1937 Hátíð var haldin á Íslandi í tilefni af 25 ára stjórnarafmæli Kristjáns konungs tíunda. 1941 Alþingi samþykkti að fresta alþingiskosningum um allt að fjögur ár vegna hernámsins. Kosningar fóru þó fram árið eftir. 1952 Fiskveiðilögsaga Íslands var færð út í fjórar mílur en var áður þrjár. Auk þess var flóum og fjörð- um lokað fyrir botnvörpuveiðum. 1967 Fyrsta íslenska sjónvarpsleik- ritið var frumsýnt: Jón gamli eftir Matthías Johannessen. 1976 Keflavíkurganga á vegum herstöðvaandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykja- víkur. 1987 John Travolta kvikmynda- leikari kom til Íslands ásamt fríðu föruneyti. Þennan dag árið 2008 varð Kalifornía annað ríki Bandaríkjanna til að leyfa hjónabönd samkynhneigðra en Massa- chusetts reið á vaðið árið 2004. Leyfið var veitt eftir að hæstiréttur Kaliforniu úrskurðaði að fyrra bann gengi gegn stjórnaskránni. Hinn 5. nóvember sama ár var leyfið hins vegar afturkallað en þá höfðu nokkur þúsund samkynhneigð pör gengið í það heilaga. Ástæða þess var sú að tillaga, sem vestanhafs gekk undir nafninu Proposition 8, var samþykkt með 52,1 prósenti atkvæða. Í henni var mælst til þess að málsgreininni „Aðeins hjónaband milli karls og konu er gilt og löglegt í Kali- forníu“ yrði bætt í stjórnarskrá ríkisins. Margir íhaldssamir hópar töluðu óspart fyrir tillögunni til að snúa við ákvörðun hæstaréttar frá því 15. maí um að lögleiða hjónaband samkyn- hneigðra. Sjálfur hafði hæstiréttur snúið við ákvörðun þjóðaratkvæðagreiðslu frá árinu 2000 þar sem 61 prósent kjósenda vildi að hjónaband gæti aðeins verið milli karls og konu. ÞETTA GERÐIST: 15. MAÍ 2008 Samkynhneigðir fá að gift ast í Kaliforníu ➜ Eftirfarandi er í boði ef verkefnið er stutt í gegnum Karolinafund Ný tónleikaröð með verkum Atla Heimis Sveinssonar er að fara af stað en fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni fara fram í kvöld í Mengi. Tónleika- röðin, sem ber nafnið, Atli Heimir og árdagar framúrstefnunnar á Íslandi, heldur svo áfram í ágúst og verður síðasta föstudag í mánuði fram á vor. Brautryðjandi verk tónskáldsins Atla Heimis Sveinssonar verða í hávegum höfð í tónleikaröðinni en hún er sam- starfsverkefni Mengis og Listaháskóla Íslands. Upphafstónleikarnir sem fram fara í kvöld munu þjóna sem kynning á seríunni í heild sinni, en á sama degi munu aðstandendur hátíðarinnar einnig hefja söfnun á Karolinafund til að fjármagna framhaldið á þessu metnaðarfulla verkefni. Frá og með ágústmánuði og fram í apríl 2016 mun síðasti föstudagur hvers mánað- ar vera helgaður verkum Atla Heimis. Borgar Magnason, listrænn stjórn- andi seríunnar, hefur unnið að heild- ar samantekt á höfundarverki Atla Heimis undanfarið ár. Við þá vinnu kom í ljós heilt ævistarf af verkum í framúrstefnu stíl sem samin eru á árunum fyrst eftir að Atli Heimir kynnist Stockhausen og evrópskri framúrstefnu. Það sem kemur helst á óvart við þessi metnaðarfullu og framúrstefnulegu verk hans er að sum hafa aldrei verið flutt, hvað þá tekin upp og mörg hver hafa ekki heyrst síðan þau voru frumflutt. Fjöldinn allur af gríðarlega vönd- uðum verkum bíður því flutnings en flutningur á úrvali þeirra er leiðar- stefið í tónleikaröðinni, þó einleiks- og kammerverk frá öðrum tíma fái einnig að fylgja með. Á tónleikunum í kvöld í Mengi koma fram sannkallaðar kanónur á sínu sviði en það eru þau, Melkorka Ólafsdóttir þverflautuleikari, Arngunnur Árna- dóttir klarinettleikari, Michael Kaul- artz fagottleikari og Örn Magnússon er lesari. Þau verk sem flutt verða eru Trio für Bläser (1960) en um frum- flutning er að ræða, Djúp er sorgin // Tief ist die Trauer (2002) fyrir einleiks flautu, Fönsun IV (1968) fyrir einleiks fagott, Dona nobis pacem (1983) fyrir einleiks klarinett og lesara. Eins og greint er frá hér til hliðar munu aðstandendur hátíðarinnar einn- ig hefja söfnun á Karolinafund til að fjármagna framhaldið. Ýmislegt verð- ur hægt að fá með því að styðja tón- leikaröðina. gunnarleo@frettabladid.is Ný tónleikaröð með verkum Atla Heimis Tónleikaröð þessi fagnar verkum hins afk astamikla og hæfi leikaríka tónlistarmanns/tón- skálds Atla Heimis Sveinssonar. Borgar Magnason er listrænn stjórnandi seríunnar. LISTRÆNN STJÓRNANDI Borgar Magnason stýrir seríunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI NÝ TÓNLEIKARÖÐ Brautryðjandi verk tónskáldsins Atla Heimis Sveinssonar verða í hávegum höfð í tónleikaröðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Á sjötta og sjöunda áratugnum samdi Atli Heimir Sveinsson nokk- urn fjölda tónverka sem skrifuð voru á óhefðbundinn, og oft á tíðum abstrakt, myndrænan hátt. Mörg verkin koma fyrir sjónir sem mynd- verk frekar en tónverk og var þetta tilraun Atla Heimis til að opna fyrir túlkun verkanna og fá flytjendur til að taka meiri þátt í sköpun þeirra. ● Eitt póstkort (þrykkt í letterpress) með teikningu eftir Atla Heimi Sveinsson, upp úr tónverkum hans Fönsun IV og Mengi. ● Pakki með fjórum póstkortum (þrykkt í letterpress) með teikn- ingum eftir Atla Heimi Sveinsson, upp úr tónverkum hans Fönsun IV og Mengi. ● Silkiþrykk í takmörkuðu upplagi í stærðinni 28 x 40 cm af grafísku tónverki eftir Atla Heimi Sveinsson. ● Pakki með fjórum silkiþrykkum í stærðinni 28 x 40 cm í takmörkuðu upplagi af mynd-tónverkum eftir Atla Heimi Sveinsson. ● Silkiþrykkt sería af níu myndum úr tónverkinu For Boys and Girls eftir Atla Heimi Sveinsson samið fyrir SÚM hópinn árið 1967. Takmarkað upplag. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 4 0 -2 9 C C 1 6 4 0 -2 8 9 0 1 6 4 0 -2 7 5 4 1 6 4 0 -2 6 1 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.