Fréttablaðið - 15.05.2015, Side 28
6 • LÍFIÐ 15. MAÍ 2015
S
igný hefur sterka nær-
veru og er auðvelt að
hrífast af henni. Hún
er ákveðin, kemur vel
fyrir sig orði og er með
einhvern tryllingslega tam-
inn glampa í augunum þannig
að erfitt er að lesa hvað kemur
næst upp úr henni eða hvað hún
er að hugsa. Hún var alin upp í
München í Þýskalandi sem barn
og kunni vel við formfestu Þjóð-
verjanna og stórborgarlífið. „Ég
þurfti að standa á eigin fótum
og vera sjálfstæð, þegar ég var
bara átta ára. Þá tók ég lestina
í skólann og reddaði mér bara á
milli borgarhluta en var ekki í
þessu endalausa skutli sem for-
eldrar í dag eru í,“ segir Signý,
sem telur þessa byrjun hafa
mótað sig bæði sem einstakling
en einnig sem móður.
„Þegar við fluttum heim
þegar ég var níu ára þó fór ég
beint í Melaskóla en staldr-
aði bara við þar í einn dag því
ég var í áfalli yfir því hvernig
börnin höguðu sér, þetta var
eins og að vera í dýragarði, allir
öskrandi og hlaupandi út um
allt og engin virðing borin fyrir
kennaranum,“ segir Signý undr-
andi og bætir við að slík hegð-
un hefði aldrei liðist í Þýska-
landi. „Mér finnst mikilvægt að
mín börn þekki annað og meira
en bara litla landið okkar, ég
vil að þau átti sig á því að sam-
félög séu alls konar og einnig
staða fólks og þegar þú segir að
þig „vanti“ nýja skó hvort það sé
í raun og veru skortur eða bara
af því við erum vön að fá allt
sem við biðjum um,“ segir Signý
sem leggur einnig ríka áherslu á
sjálfstæði, nægjusemi og sjálfs-
bjargarviðleitni.
„Við búum í næstu götu við
Hlemm og mér finnst að börn
eigi að geta reddað sér og tekið
strætó á æfingar og þangað sem
þau þurfa að fara, þetta gerðu
börn fyrir tíu árum,“ bætir
Signý við og segir frumburðinn
sinn, Snorra, vera einkar sjálf-
stæðan tíu ára dreng sem getur
reddað sér með lykilinn sinn í
vasanum.
Sleikur á Kaffibarnum
Signý á tvö börn, Snorra og
Svövu, sem er sex ára, með
eigin manninum, Heimi Snorra-
syni sálfræðingi. „Við kynnt-
umst á Kaffibarnum,“ segir
Signý og ranghvolfir augun-
um og brosir út í annað. „Vin-
kona mín var búin að minnast á
hann við mig og var alltaf eitt-
hvað að reyna að ota honum að
mér og svo loksins hittumst við
á sveittum barnum en ég var
samt ekkert viss um að hann
væri eitthvað fyrir mig,“ segir
Signý, sem hreifst af þessum
myndar lega manni en var þó
ekki að leita sér að sambandi.
„Heimir hafði reglulega sam-
band við mig en ég gaf lítið út
á þetta, hann var eiginlega of
mikill gæi á djamminu sem vissi
vel af sér og ég nennti ekki að
standa í svoleiðis gaur, einhverj-
um djammgaur,“ segir Signý og
hlær.
Það var svo ekki fyrr en
Heimir sneri blaðinu við eftir
veikindi, lagði flöskuna frá sér
og mætti prúðbúinn á barinn
sem Signý starfaði á. „Hann var
bara allt í einu mættur þarna,
ótrúlega myndarlegur og flottur
strákur og þá var komið að mér
að pota aðeins í hann og loksins
segja já við að fara með honum
á stefnumót,“ segir Signý bros-
andi eftir tímaflakkið aftur til
upphafsins þeirra.
Bónorð í sms-i
Fyrir tíma formfestu hjóna-
bands flakkaði Signý reglu-
lega til Ítalíu eftir að hafa verið
þar au-pair um tíma. Tungumál
liggja vel fyrir henni og talar
hún bæði þýsku og ítölsku. „Mér
finnst Ítalía yndislegt land og
ég hefði vel geta endað þar og
hefði örugglega gert það ef ég
hefði ekki kynnst Heimi í milli-
tíðinni en það var hann sem tog-
aði mig heim,“ segir Signý sem
játaðist Heimi í smáskilaboðum.
„Þegar ég var í skiptinámi í Míl-
anó í vöruhönnuninni þá fékk ég
sms frá Heimi sem í stóð „Viltu
giftast mér? ekki djók“, og að
sjálfsögðu svaraði ég um hæl
„Já, ekki djók“ og þar með var
það komið,“ segir Signý glöð.
Heimir og Signý bjuggu um
tíma í Kaupmannahöfn og segir
Signý farir sínar ekki sléttar
af kynnum sínum við frændur
okkar Dani: „Þeir eru alltaf að
öskra eitthvað á mann, maður
er alltaf fyrir þeim og svo hjól-
ar maður aldrei rétt og svo þykj-
ast þeir bara aldrei skilja mann
þegar maður reynir að bera
eitthvað fram á þessu blessaða
tungumáli þeirra.“
Þegar Signý komst að því
að hún var ófrísk þá fluttu þau
hjónin heim til Íslands og segist
Signý hafa fengið sig fullsadda á
pirruðum Dönum. Þó leiðin hafi
legið aftur heim á þeim tíma-
punkti þá leitar hugurinn enn á
erlenda grund.
Signý segir margt spennandi
vera á prjónunum hjá fjölskyld-
unni: „Við stefnum á að fara í
mikla reisu um Asíu í haust þar
sem ég vil sýna börnunum fjöl-
breytta menningu og stefnum
við á að byrja í Japan, fara svo
yfir til Taílands og kannski til
Nepals eftir því hvernig aðstæð-
urnar verða þar og svo Jerúsal-
em eða Teheran.“ Þetta er ekki
hið týpíska sólarlandafrí staðl-
aðrar fjölskyldu enda lifa þau
hjón ögn utan rammans. „Við
erum kannski smá miðbæjar-
bóhemar í okkur og vorum
lengi vel án sjónvarps og bíl-
laus,“ segir Signý sem kallar nú
póstnúmerið 105 sitt eigið eftir
að hafa flutt hinum megin við
Snorrabrautina.
„Ég skrifa enn stundum 101,
eins og það svíði smá að vera
komin í 105 en við kunnum vel
við okkur hér, það er meiri iðn-
aðarstemning hér og Austur-
bærinn er hverfið sem borg-
in gleymdi,“ segir Signý sem er
með útsýni yfir garð sem stund-
um geymir sprautunálar.
BÓHEM Í TÖFRALANDI SKRÍPÓK
SIGNÝ KOLBEINSDÓTTIR er vöruhönnuður og hugmyndsmiðurinn á bak við töfraheim Tulipop. Ein fígúran birtist henni á
fætur annarri er hún var í fæðingarorlofi heima með eldri strákinn sinn, Snorra, og þá varð ekki aftur snúið, litlir krútt-
legir sveppakarlar og litríkir vinir hans fylgdu henni hvert fótmál og það eina sem komst að var að teikna.
Signý segir stuðning
maka síns og trú hans
á teikningunum hafa
verið ómetanlega og
gert henni fært að vera
þar sem hún er í dag.
Sigga Dögg
blaðamaður
siggadogg@365.is
Ponchoin loksins komin. Verð 7.990-
Smáralind
facebook.com/CommaIceland
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
F
-B
D
2
C
1
6
3
F
-B
B
F
0
1
6
3
F
-B
A
B
4
1
6
3
F
-B
9
7
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K