Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 42
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26
Um er að ræða 462 fermetra
einbýlishús á fjórum pöllum
auk um 40 fermetra garðskála á
þessum einstaka stað niður við
lækinn á Flötunum í Garðabæ.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á
síðastliðnum árum og er í góðu ástandi.
Eignin skiptist m.a. í glæsilegar stofur með
fallegum arni, stórt eldhús, allt að 6 svefnher-
bergi, stórt fjölskyldurými, rými þar sem innrétta
má aukaíbúð og tvöfaldan bílskúr.
Lóðin er mjög glæsileg með miklum harðviðar-
og hellulögðum veröndum til suðurs með
skjólveggjum, heitum potti og útisturtu.
Allar nánari upplýsingar og tímapantanir á
skoðun eignarinnar er að fá hjá neðangreindum
fasteignasölum.
GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS VIÐ LÆKINN Á FLÖTUNUM Í GARÐABÆ
Lóðin er mjög glæsileg með miklum harðviðar- og hellulögðum veröndum til
suðurs með skjólveggjum, heitum potti og útisturtu.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
Þorlákur Ómar Einarsson lögg. fast.sali.
Kór Langholtskirkju flytur Jóhann-
esarpassíuna eftir J. S. Bach í Lang-
holtskirkju á sunnudaginn kl. 17.
Kammersveit Langholtskirkju leik-
ur með, konsertmeistari er Ari Þór
Vilhjálmsson og stjórnandi Jón Stef-
ánsson.
Jóhannesarpassía Bach var frum-
flutt í Nikulásarkirkjunni í Leipzig
árið 1724 og er ótvírætt á meðal
höfuðverka tónlistarsögunnar. Ein-
stakt þrekvirki sem nýtur stöðugr-
ar aðdáunar tónlistarunnenda og
er einstök áskorun í flutningi fyrir
klassíska einsöngvara.
Jóhannesarpassían byggir á
Jóhannesarguðspjalli þar sem sagt
er frá píslargöngu Jesú Krists.
Með hlutverk Jesú og bassaarí-
urnar fer Oddur Arnþór Jónsson, en
hann á að baki talsverða sögu sem
söngvari innan Langholtskirkju-
kórsins. „Meðan ég var í Söngskól-
anum hér heima á sínum tíma þá fór
ég í kórinn og söng með honum öll
námsárin. Ætli það hafi ekki verið
frá því um 2005 til 2009 eða allt þar
til ég lauk burtfararprófi og hélt út
í nám.“
Oddur Arnþór hélt til náms í hinni
víðkunnu tónlistarborg Salzburg
þar sem hann býr og starfar í dag
ásamt eiginkonu sinni, Júlíu Pujol
píanóleikara, og sonum þeirra
tveimur, þeim Jón Oliver tveggja
ára og Finyan Má fjögra mánaða.
„Þessir strákar okkar eiga nú
vart séns á öðru en að vera eitthvað
í tónlist. Það er tónlist á heimilinu
alla daga,“ segir Oddur Arnþór og
brosir. „Tónlist er gríðarlega stór
þáttur af daglegu lífi fólks í Salz-
burg, hvort sem er í skólakerfinu
eða annars staðar og það er gaman
að lifa og hrærast í þessum heimi
tónlistarinnar. En svo er líka gaman
að koma heim af og til og takast á
við skemmtileg verkefni.
Þessa dagana er ég bæði að æfa
fyrir tónleikana á sunnudaginn
og svo líka fyrir Peter Grimes á
Listahátíð í næstu viku. Það er líka
alveg magnað verk og gaman að
vera þátttakandi í því. Þetta eru ólík
verkefni en mér gengur ágætlega að
samræma þetta enda var ég í bæði
óperu og ljóðaóratoríu í náminu á
sínum tíma. Svo er ég ekki frá því
að maður sé einmitt í besta forminu
þegar það er mikið að gera.“
Oddur Arnþór er baritón en hann
bendir á að það voru ekki skrifuð
hlutverk fyrir baritóna á þeim tíma
þegar Bach skrifaði Jóhannesar-
passíuna. „Jesús er bassahlutverk
og það felur í sér ákveðna áskor-
un fyrir mig. Ég hef reyndar sung-
ið þetta hlutverk áður, en það var í
Mílanó á síðasta ári og það gekk nú
bara vel. Þannig að þó svo að það
séu átök að takast á við Jesú þá er ég
bara fullur tilhlökkunar fyrir tón-
leikunum á sunnudaginn og vona að
sem flestir komi.“
Einsöngvarar auk Odds Arnþórs
verða Benedikt Kristjánsson guð-
spjallamaður og tenór. Úr röðum
kórfélaga syngur Davíð Ólafsson
hlutverk Pílatusar og bassaaríu,
sópranarnir Sigríður Ásta Olgeirs-
dóttir og Solveig Óskarsdóttir og
Silja Elsabet Brynjarsdóttir alt auk
nokkurra kórfélaga sem fara með
smærri hlutverk.
magnus@frettabladid.is
Jesús er áskorun
Kór Langholtskirkju fl ytur Jóhannesarpassíuna þar sem Oddur Arnþór Jónsson
tekst á við hlutverk Jesú í einu magnaðasta verki tónlistarsögunnar.
JESÚ KRISTUR Oddur Arnþór Jónsson fer með hlutverk Jesú Krists.
BÓKMENNTIR ★★★★ ★
Gott fólk
VALUR GRETTISSON
Bjartur
Bókaflóð lúta sömu lögmálum og
önnur flóð, bera með sér alls kyns
hluti, suma lítils nýta, aðra gagnlega
og stöku sinnum eitthvað sem vekur
furðu og fögnuð þeirra sem ströndina
ganga og hirða rekann. Eitthvað sem
finnanda/lesanda finnst að allir ættu
að sjá/lesa/fá afnot af. Eitthvað sem
kveikir óslökkvandi löngun til skoð-
unar, umræðna og nánari rannsókna.
Eitthvað sem beinlínis krefst þess að
við tökum til þess afstöðu.
Slíkur reki er meðal þess sem vor-
bókaflóðið skolaði á land. Bókin Gott
fólk eftir Val Grettisson er ein af þess-
um sjaldséðu bókum sem lesandinn
spyr alla sem hann hittir hvort þeir
hafi lesið, hvað þeim finnist um hana
og hvort þá langi ekki til að ræða efni
hennar og efnistök við annan lesanda.
Þetta er bók sem verður að ræða. Og
helst strax í gær.
Sagan er sögð í fyrstu persónu af
menningarblaðamanninum Sölva
og hverfist um ábyrgðarferli. Það er
þegar kona sem telur sig hafa orðið
fyrir ofbeldi af hálfu karlmanns
ákveður að fara ekki dómstólaleiðina
heldur sendir tvo votta með bréf til
hans þar sem hún krefst þess að hann
gangist við því að hafa beitt hana
ofbeldi í sambandi þeirra. Já eða nei
eru einu svarmöguleikarnir sem hann
hefur. Eftir að hann gengst við því að
hafa verið hugsunarlaus ruddi í þeirra
samskiptum fer af stað atburðarás
sem hvorugt sá fyrir. Það að gang-
ast við því að hafa beitt aðra mann-
eskju ofbeldi veldur straumhvörfum
í lífi Sölva, inn á við og út á við. Þegar
upp er staðið veit hvorki hann né aðrir
hvað er satt og hvað logið, hver beitti
hvern ofbeldi og varla einu sinni hvað
það hugtak eiginlega þýðir á þess-
um síðustu og bestu póstfemínísku
tímum.
Spurningarnar sem Valur veltir upp
í þessari fyrstu skáldsögu sinni eru
knýjandi og undarlegt hve lítið hefur
farið fyrir þessari bók í umræðunni.
Vísunin í þekkt mál af sama toga sem
komst í hámæli fyrir nokkrum árum
veldur kannski því að fólk veigrar sér
við að ræða þetta, en þótt líkindin séu
augljós er hér vissulega um skáld-
sögu að ræða. Góða skáldsögu meira
að segja; vel skrifaða með skýrri pers-
ónusköpun, þaulhugsaðri atburðarás
og sterkum spurningum um það hver
staðan sé á samskiptum kynjanna í
samtímanum. Frasinn um að skila
skömminni þangað sem hún á heima
er undirliggjandi í málflutningi kon-
unnar en um leið horfir hún og stuðn-
ingsmenn hennar framhjá þeirri stað-
reynd að á meðan á ástarsambandinu
stóð bar hún aldrei fram ásakanir um
ofbeldi og tók þátt í leiknum. Ber hún
þá enga ábyrgð á samskiptamunstr-
inu? Er það á ábyrgð karlmannsins
að passa að ekki sé gengið yfir ákveð-
in mörk í ástarsambandi? Hvert er í
raun ábyrgðarferlið?
Þar sem sagan er sögð út frá sjón-
arhóli karlmannsins sem ásakaður
er fær lesandinn ekki glögga mynd
af því hvað fram fer í huga konunn-
ar. Höfundur tekur hins vegar enga
afstöðu í málinu en lýsir á hlutlaus-
an hátt því sem gerist í lífi og huga
Sölva eftir ásökunina. Þær lýsingar
eru fantavel unnar og sannfærandi
og kveikja endalausar spurningar.
Spurningar sem við sem samfélag
verðum að ræða og taka afstöðu til.
Svo í guðanna bænum lesið þessa bók,
takið afstöðu, ræðum saman.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Firnasterk og krefjandi
skáldsaga um efni sem kemur okkur öllum
við og neyðir okkur til að taka afstöðu.
Ást er ekki ofbeldi, eða hvað?
MENNING
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
F
-9
0
B
C
1
6
3
F
-8
F
8
0
1
6
3
F
-8
E
4
4
1
6
3
F
-8
D
0
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K