Fréttablaðið - 15.05.2015, Síða 50
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34
FÓTBOLTI FH-ingurinn Atli Guðna-
son lagði upp bæði mörk FH-inga í
sigrinum á Keflavík á sunnudags-
kvöldið aðeins sex dögum eftir að
hann skorað tvö mörk í 3-1 sigri á
KR í fyrstu umferð Pepsi-deildar-
innar.
Atli Guðnason hefur verið að
skila sannkölluðum Messi-tölum
í síðustu átta leikjum FH-liðsins í
Pepsi-deildinni og þar virðist sjö
mánaða hlé ekki hafa breytt miklu
fyrir þennan þrítuga framherja
eða það að þjálfarinn Heimir Guð-
jónsson hafi breytt um leikkerfi og
spili nú 4-4-2 í stað 4-3-3 áður.
Endaði frábærlega í fyrrasumar
Atli Guðnason fór á kostum í loka-
kafla Pepsi-deildarinnar í fyrra
og skoraði þá sex mörk og gaf sex
stoðsendingar í síðustu sex leikj-
um FH-liðsins. Atli varð efstur
í einkunnagjöf Fréttablaðsins í
Pepsi-deildinni síðasta sumar og
þá munaði mikið um lokasprettinn
þar sem hann var með 7,5 í meðal-
einkunn í síðustu sex leikjum FH-
liðsins.
Þrátt fyrir kaldan vetur hefur
Atli ekki kólnað mikið niður, því
hann hefur skorað tvö mörk og
gefið tvær stoðsendingar í fyrstu
tveimur leikjum Pepsi-deildarinn-
ar. Atli skoraði tvö síðustu mörkin
í 3-1 sigri á KR-vellinum og lagði
síðan upp bæði mörk liðsins í 2-0
sigri á Keflavík í fyrsta heimaleik
sumarsins.
Steven Lennon hefur notið góðs
af þjónustu Atla í þessum leikjum,
því síðustu fimm mörk Skotans í
Pepsi-deildinni hafa öll komið
eftir stoðsendingar frá Atla.
Atli launaði líka nafna sínum
Atla Viðari Björnssyni stoðsend-
inguna frá því í fyrstu umferð-
inni í Vesturbænum, þegar hann
lagði upp mark Atla Viðars á móti
Keflavík. Atli Viðar skoraði þá
sitt 99. mark í efstu deild og vant-
ar því bara eitt til að verða fjórði
meðlimur hundrað marka klúbbs-
ins.
Átta plús átta í átta
Jafnvægið á milli marka og stoð-
sendinga er því fullkomið hjá Atla
í síðustu átta Pepsi-deildar leikj-
um hans þar sem hann er með
átta mörk og átta stoðsendingar.
Í fimm þessara leikja og báðum
leikjum hans á þessum tímabili,
hefur hann komið að tveimur
mörkum eða fleiri.
FH-ingar hafa fullt hús og fjög-
ur mörk í plús eftir tvo fyrstu leik-
ina og alls 19 stig í þessum átta
leikjum. Þeir hefðu hins vegar
verið með fimmtán stigum færra
úr þessum átta leikjum ef marka
og stoðsendinga Atla hefði ekki
notið við.
ooj@frettabladid.is
Kólnaði ekki mikið í vetur
Atli Guðnason hefur komið að fj órum af fi mm fyrstu mörkum FH í fyrstu leikjum Pepsi-deildar karla og alls
að sextán mörkum í síðustu átta leikjum. Hann spilaði frábærlega í fyrra og fer vel af stað þetta sumarið.
Átta plús átta í síðustu átta
Atli Guðnason hefur komið með beinum hætti að 16 af 21 marki FH-liðsins
(76 prósent) í síðustu átta leikjum liðsins í Pepsi-deild karla í fótbolta. Hann
hefur skorað átta mörk sjálfur og gefið átta stoðsendingar að auki.
SÍÐUSTU ÁTTA LEIKIR ATLA GUÐNASONAR Í PEPSI-DEILDINNI
SUMARIÐ 2014
31. ágúst 4-0 sigur á Fjölni
14. september 2-0 sigur á Þór
18. september 1-1 jafntefli við KR
21. september 4-2 sigur á Fram
28. september 4-1 sigur á Val
4. október 1-2 tap fyrir Stjörnunni
SUMARIÐ 2015
4. maí 3-1 sigur á KR
10. maí 2-0 sigur á Keflavík
SAMTALS 8 LEIKIR 8 MÖRK OG 8 STOÐSENDINGAR S
S S S
S
S
SS
S
SKORAR OG SKAPAR Atli Guðnason er með eitt mark og eina stoðsendingu að meðaltali í síðustu átta Pepsi-deildar
leikjum sínum. Hann heldur áfram að spila frábærlega eins og hann gerði á síðustu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÖSTUDAG KL. 21:00
GOÐSAGNIR EFSTU DEILDAR
HÖRÐUR MAGNÚSSON
365.is Sími 1817
FÓTBOLTI Breiðablik byrjaði Pepsi-deild kvenna af
krafti í gær þegar liðið valtaði yfir nýliða Þróttar,
5-0, á Kópavogsvelli. Telma Hjaltalín Þrastardóttir
og Fanndís Friðriksdóttir skoruðu tvö mörk hvor og
Rakel Hönnudóttir eitt. Blikar skoruðu síðustu þrjú
mörkin á síðustu fjórum mínútum leiksins.
Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar áttu í
meiri vandræðum með hina nýliðana, KR. Stjarnan
marði 1-0 sigur á heimavelli sínum í Garðabænum,
en markið skoraði markadrottningin Harpa Þor-
steinsdóttir á 62. mínútu.
Valur vann Aftureldingu, 3-0, með tveimur
mörkum frá Elínu Mettu Jónsdóttur og einu
frá Vesnju Smiljkovic og Fylkir vann Selfoss,
2-0, í Árbænum. Þá gerðu Þór/KA og ÍBV
jafntefli, 1-1, í Boganum á Akureyri. - tom
Blikarnir byrjuðu af kraft i
SIGUR Telma Þrastardóttir skoraði eitt mark fyrir Blika. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
PEPSI-DEILD KVENNA
FYLKIR - SELFOSS 2-0
1-0 Hulda Hrund Arnarsdóttir (13.), 2-0 Berglind
Björg Þorvaldsdóttir (69.).
BREIÐABLIK - ÞRÓTTUR 5-0
1-0 Telma Hjaltalín Þrastardóttir (18.), 2-0 Telma
Hjaltalín Þrastardóttir (39.), 3-0 Fanndís Frið-
riksdóttir (86.), 4-0 Rakel Hönnudóttir (88.), 5-0
Fanndís Friðriksdóttir (90.).
STJARNAN - KR 1-0
1-0 Harpa Þorsteinsdóttir (62.).
VALUR - AFTURELDING 3-0
1-0 Elín Metta Jensen (15.), 2-0 Elín Metta
Jensen (46.), 3-0 Vesna Smiljkovic (76.).
ÞÓR/KA - ÍBV 1-1
1-0 Sarah Miller (50.), 1-1 Shaneka Gordon (66.).
STAÐAN:
Breiðablik 1 1 0 0 5-0 3
Valur 1 1 0 0 3-0 3
Fylkir 1 1 0 0 2-0 3
Stjarnan 1 1 0 0 1-0 3
ÍBV 1 0 1 0 1-1 1
Þór/KA 1 0 1 0 1-1 1
KR 1 0 0 1 0-1 0
Selfoss 1 0 0 1 0-2 0
Afturelding 1 0 0 1 0-3 0
Þróttur 1 0 0 1 0-5 0
FÓTBOLTI Lokadagur félagaskipta í íslenska fótboltanum er í
dag og má búast við að einhver lið í Pepsi-deildinni styrki sig á
lokasprettinum. Svo gæti farið að Reykjavíkurrisarnir KR og
Valur eigi leikmannaskipti.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gerðu KR-ingar Vals-
mönnum tilboð í vinstri bakvörðinn Bjarna Ólaf Eiríksson og
buðu á móti framherjann Þorstein Má Ragnarsson. Edvard
Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, sagði
ekkert slíkt hafa borist inn á borð til sín þegar Fréttablaðið
spurðist fyrir um málið í gær.
Bjarni Ólafur er uppalinn Valsmaður og hefur aldrei leikið
fyrir annað lið í efstu deild, en hann var í þrjú ár í atvinnu-
mennsku í Noregi.
Þorsteinn Már byrjaði nær alla leiki KR á undirbún-
ingstímabilinu en var settur á bekkinn þegar Óskar Örn
Hauksson sneri heim rétt fyrir mót. - tom
KR vill fá Bjarna Ólaf
HANDBOLTI Meiri líkur en minni
eru á því að markvörðurinn
Giedrius Morkunas verði áfram í
herbúðum Íslandsmeistara Hauka.
Þetta sagði Þorgeir Haraldsson,
formaður handknattleiksdeildar
Hauka, í samtali við Fréttablaðið
í gær.
„Það er afskaplega líklegt að
Giedrius verði áfram en það er
ekki alveg ákveðið. Það kemur lík-
lega í ljós strax eftir helgi,“ sagði
Þorgeir sem bætti því við að mark-
vörðurinn, sem spilaði stórkost-
lega í úrslitakeppninni, væri ekki
með nein tilboð að utan þótt áhugi
væri til staðar.
Unnusta Giedriusar, Marija
Gedroit, hefur einnig leikið með
Haukum undanfarin ár og að sögn
Þorgeirs verður hún að öllum lík-
indum áfram hjá félaginu.
„Marija er í endurhæfingu og
vonandi verður hún komin aftur á
ferðina um áramótin,“ sagði Þor-
geir en Marija sleit krossbönd í
leik gegn Fram í lokaumferð Olís-
deildarinnar í mars.
„Við viljum halda þeim báðum
hjá félaginu. Samningurinn henn-
ar Mariju er reyndar runninn út
en hún er á tryggingu hjá okkur,“
sagði Þorgeir enn fremur en frek-
ari frétta er að vænta af leik-
mannamálum hjá kvennaliðinu á
næstu dögum. - iþs
Parið líklega áfram hjá Haukum
Giedrius Morkunas og Marija Gedroit spila væntanlega áfram með Haukum.
ÁFRAM Á ÁSVÖLLUM Giedrius Morkunas og Marija Gedroit hafa reynst
Haukum afar vel í handboltanum undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Atli Sigurjónsson skrif-
aði í gær undir þriggja ára samn-
ing við Breiðablik. Atli, sem er 23
ára miðjumaður, kemur frá KR
sem hann lék með síðustu þrjú ár.
„Það voru önnur lið sem höfðu
samband en fyrir mér kom
ekkert annað en Breiðablik til
greina,“ sagði Atli í samtali við
Fréttablaðið í gær en hann var
meiddur á undirbúningstíma-
bilinu og spilaði ekki fyrstu tvo
leiki KR í Pepsi-deildinni. Atli,
sem er uppalinn Þórsari, gæti
spilað sinn fyrsta leik í grænu
treyjunni þegar Breiðablik sækir
Keflavík heim í 3. umferð Pepsi-
deildarinnar á sunnudaginn - iþs
Atli í Breiðablik
Í GRÆNT Atli gerði þriggja ára samn-
ing við Breiðablik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPORT
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
4
0
-5
1
4
C
1
6
4
0
-5
0
1
0
1
6
4
0
-4
E
D
4
1
6
4
0
-4
D
9
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K