Fréttablaðið - 28.08.2015, Page 4

Fréttablaðið - 28.08.2015, Page 4
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Tenerife Frá kr. 65.900 29. ágúst eða 5. september í 7 nætur Netverð á mann frá kr. 65.900 m.v. 2-4 í stúdíó/herb/íbúð án fæðis. Netverð á mann frá kr. 99.900 m.v. 2-4 í stúdíó/herb/íbúð m/allt innifalið. Stökktu til Reykjavík Hefja viðræður um móttöku flóttafólks Hafa tekið á móti 94 manns kópavoguR Hefur verið rætt á vettvangi bæjar- stjórnar Hafa tekið á móti 0 manns HafnaRfjöRðuR Hefja viðræður um móttöku flóttafólks Hafa tekið á móti 6 manns akuReyRi Hefja viðræður um móttöku flóttafólks Hafa tekið á móti 24 manns ReykjanesbæR Ekki verið rætt Hafa tekið á móti 23 manns gaRðabæR Hefja viðræður um móttöku flóttafólks Hafa tekið á móti 0 manns MosfellsbæR Ekki verið rætt Hafa tekið á móti 0 manns ÁRboRg Ekki verið rætt Hafa tekið á móti 0 manns akRanes Málið til umræðu í nefnd Hafa tekið á móti 29 manns fjaRðabyggð Óformlegar umræður Hafa tekið á móti 0 manns REYKJANESBÆR | HÖNNUNARSTAÐALL 7 Tími til að lifa og njóta Tími til að lifa og njóta X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X X eða 1/4 stærð merkisins er minnsta auða svæðið sem skal vera umhverfis merkið. Hér má sjá nokkrar útfærslur á merkinu. Hægt er að setja vefslóð, heiti stofnunar eða mismunandi slagorð við merkið í bláum lit. Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær RÉTT LITAMEÐFERÐ MERKIS MERKI Í LIT Tákn – 100% Pantone 371 eða samsvarandi CMYK gildi Letur – Svart TÁKN NOTAÐ EINGÖNGU 100% Pantone 371 ÞEGAR PRENTAÐ ER Í EINUM PRENTLIT Tákn og letur – 100% Pantone 371 Mosfellsbær Mosfellsbær Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær RÉTT NOTKUN Mosfellsbær SVART/HVÍTT Tákn og letur – 100% svartur ÞEGAR PRENTAÐ ER Í EINUM PRENTLIT Tákn og letur negatíft á bakgrunni í 100% Pantone 371 TÁKN NOTAÐ EINGÖNGU 100% svartur TÁKN TIL HLIÐAR VIÐ LETUR Eingöngu til notkunar á reikningsform Mosfellsbær Tákn og letur – negatíft í 100% svörtum bakgrunni Mosfellsbær Mosfellsbær Mosfellsbær Mosfellsbær 100% Pantone 371 100% svartur 100% Pantone 371 100% svartur MERKI MOSFELLSBÆJAR Höf. Kristín Þorkelsdóttir TÁKN A) Tilvísun til silfurs Egils Skallagrímssonar Dóttir Egils, Þórdís, bjó að Mosfelli og dvaldi hann hjá henni síðustu árin. Í nágrenni Mosfells á Egill að hafa falið silfursjóð sem Aðalsteinn hinn sigursæli Englakonungur gaf honum. Táknið er stílfærð mynd af þremur skjöldum sem prýddu bakhlið penings sem var í umferð á tíma Aðalsteins hins sigursæla. B) Þrír skildir fléttast saman og mynda samstöðu, sbr. þrjá byggðarkjarna fyrrum Mosfellshrepps: Mosfellsdalur, Reykjahverfi og „niðursveitin“. Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær PANTONE 371 PANTONE 371 MERKI MOSFELLSBÆJAR Höf. Kristín Þorkelsdóttir TÁKN A) Tilvísun til silfurs Egils Skallagrímssonar Dóttir Egils, Þórdís, bjó að Mosfelli og dvaldi hann hjá henni síðustu árin. Í nágrenni Mosfells á Egill að hafa falið silfursjóð sem Aðalsteinn hinn sigursæli Englakonungur gaf honum. Táknið er stílfærð mynd af þremur skjöldum sem prýddu bakhlið penings sem var í umferð á tíma Aðalsteins hins sigursæla. B) Þrír skildir fléttast saman og mynda samstöðu, sbr. þrjá byggðarkjarna fyrrum Mosfellshrepps: Mosfellsdalur, Reykjahverfi og „niðursveitin“. Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær PANTONE 371 PANTONE 371 Tölur um móttöku flóttamanna miðast við tímabilið 2000-2015 2 8 . Á g ú s t 2 0 1 5 f ö s t u D a g u R4 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð ✿ afstaða stærstu sveitarfélaganna til móttöku flóttamanna saMfélag Fréttablaðið kannaði vilja tíu stærstu sveitarfélaga landsins til að taka á móti flóttafólki. Fjögur sveitarfélög hafa þegar sam- þykkt að koma sér í samband við vel- ferðarráðuneytið til að taka þátt í átaki stjórnvalda við að tryggja flóttafólki búsetu á Íslandi. Íslensk stjórnvöld eru reiðubúin til að taka á móti fimmtíu flóttamönnum á næstu tveimur árum, 25 í senn, með fyrirvara um samþykki um fjármagn frá Alþingi. Á þeim tímapunkti lá vilji sveitarfélaga ekki fyrir en nú er ljóst að mörg sveitarfélög eru reiðubúin til að axla ábyrgðina. Velferðarráð Reykjavíkur tók málið fyrir í gær. Ilmur Kristjánsdóttir, formaður vel- ferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir mjög mikinn áhuga á því að taka á móti flóttafólki. „Velferðarráð fagnar því að ríkið ætli að taka þátt í að axla ábyrgð á vandamálum heimsins og felur nú vel- ferðarsviði að hefja viðræður við þá sem að málinu koma við að taka á móti þessum flóttamönnum.“ Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness, segir að velferðar- og mann- réttindaráð Akraness muni taka mál- efnið fyrir á fundi sínum á næstunni. „Í alþjóðasamfélaginu verðum við að leggja okkar af mörkum,“ segir hún og bendir á að Akranes hafi mikla reynslu af móttöku flóttafólks en bærinn tók á móti 29 flóttamönnum árið 2008. Tímaramminn sem Akranes átti að fá í tengslum við móttökuna var eitt ár. Sá tími hafi verið nokkuð stuttur og var framlengdur um hálft ár. „Okkur fannst ráðuneytið sleppa hendinni af verkefninu eftir of stuttan tíma, svona eftir á að hyggja. Og við myndum vilja ræða mjög vel, áður en við tökum svona ákvörðun, hvaða tímaramma og stuðning sveitarfélagið fengi,“ segir hún. „Við höfum miðlað okkar reynslu til annarra og okkar reynsla er sú að það þurfi að huga mjög vel að undirbúningi.“ Akureyrarbær greindi frá því á dög- unum að hann hefði sett sig í sam- band við velferðarráðuneytið og lýst yfir vilja til að taka á móti flóttafólki. Þá samþykkti bæjarráð Garðabæjar á miðvikudaginn að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við velferðarráðu- neytið um móttöku flóttafólks. Í sumar hafði Hafnarfjarðarbær sett sig í samband við velferðarráðu- neytið og lýst yfir vilja til að taka á móti flóttafólki. Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, segir bæinn reiðubúinn til að taka þátt í þeirri samfélagslegu ábyrgð að taka á móti flóttafólki. Fjölskyldu- ráð Hafnarfjarðar fundar  í dag  um málið. „Við mun m ræða þetta í ráð- inu og ég heyri að það er jákvæðni þar allan hringinn,“ segir hún.  Hafnarfjörður tók á móti einni fjölskyldu í fyrra og nú sé kallað eftir upplýsingum um hvernig gengið hefur með móttökuna til að ákvarða næstu skref. „Við höfum rætt þetta lauslega hérna eftir að umræðan fór af stað. Afstaða okkar er opin og jákvæð til þessara mála,“ segir Páll Björgvin Guð- mundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Hann reiknar með að málið verði tekið upp með einum eða öðrum hætti á næstunni. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, segir málið hafa verið rætt á vettvangi bæjarstjórnar í gær en engar ákvarðanir hafi verið teknar. Málefni flóttamanna hafa ekki komið til umræðu innan Mosfells- bæjar, Reykjanesbæjar og Árborgar en allir viðmælendur Fréttablaðsins voru sammála um þá samfélagslegu ábyrgð sem Ísland á að axla í málaflokknum. Flest stærstu sveitarfélögin jákvæð gagnvart móttöku fleira flóttafólks Fjögur sveitarfélög hafa hafið viðræður við velferðarráðuneytið um móttöku þeirra 50 flóttamanna sem stefnt er á að bjóða til landsins á næstu tveimur árum. Bæjarstjóri Akraness segir mikilvægt að Ísland leggi sitt af mörkum á alþjóðavísu en vanda verði undirbúning. stjóRnsýsla Þjóðskrá var óheimilt að synja hinni ellefu ára gömlu Harriet Cardew um vegabréf, í júní árið 2014, á grundvelli þess að nafn hennar væri ekki samþykkt af mannanafnanefnd. Innanríkisráðuneytið kvað upp úrskurð í málinu þann 12. ágúst, rúmu ári eftir að foreldrar Harrietar kærðu úrskurð Þjóðskrár. Stofnun- inni hefur verið gert að skrá nafn Harr ietar í þjóðskrá og gefa út vega- bréf með nafninu Harriet Cardew. Harriet hafði frá fæðingu borið nafnið Stúlka Cardew í þjóðskrá því nafnið þykir ekki í samræmi við mannanafnalög. Hið sama hefur gilt um eldri bróður hennar, Duncan, sem borið hefur nafnið Drengur Cardew. Faðir Harrietar er breskur ríkis- borgari og móðir hennar er bæði með íslenskan og bandarískan ríkis- borgararétt. Úrskurður innanríkisráðuneytis- ins byggir á því að foreldrunum hafi verið heimilt að nefna hana erlendu nafni þar sem báðir foreldrarnir séu erlendir ríkisborgarar. Kristín Cardew, móðir Harrietar og Duncans, segist fegin því að niðurstaða sé komin í málið. „Þetta er ofboðslega furðulegt mál, þetta eru sömu nöfnin og sömu börnin,“ segir hún en Harriet og Duncan höfðu áður fengið útgefin vegabréf með nöfnunum stúlka og drengur Cardew. „Við vonum að þetta hafi áhrif og setji ákveðna endurskoðun í gang,“ segir Kristín. Innanríkisráðuneytið vinnur nú að endurskoðun  á mannanafna- lögum. Ólöf Nordal innanríkisráð- herra hefur gefið út að hún sé fylgj- andi að slakað verði á kröfum sem gerðar séu til nafngifta í lögunum. „Það er náttúrulega líka fárán- legt, af því að það er alltaf verið að tala um að lögin verndi börn en þau banna fullorðnu fólki líka að velja sér nöfn,“ segir Kristín. – ih Óheimilt að synja Harriet um vegabréf Í síðasta mánuði kom metfjöldi flóttamanna til Evrópusambandins eða um 107 þúsund manns. Ríki Evrópu hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir vanmátt sinn við að ráða við verkefnið. Nordicphotos/AFP Við höfum miðlað okkar reynslu til annarra og okkar reynsla er sú að það þurfi að huga mjög vel að undirbúningi. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness Harriet fékk breskt neyðarvegabréf svo að fjölskyldan komst í frí til Frakklands. Fréttablaðið/Valli Stefán Rafn Sigurbjörnsson stefanrafn@frettabladid.is 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 E 5 -4 F B 4 1 5 E 5 -4 E 7 8 1 5 E 5 -4 D 3 C 1 5 E 5 -4 C 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.