Fréttablaðið - 28.08.2015, Side 12

Fréttablaðið - 28.08.2015, Side 12
Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is Ég treysti mér til forystustarfa en er ekki svona alveg lagður af stað í eitthvert hlaup upp kantinn. Föstudagsviðtalið Mé r f i n n s t a ð s u m u leyti vera að lifna yfir fólki aftur. Það er mjög j á k v æ t t . En auðvitað sýnir staðan að okkur hefur einhvers staðar mistekist,“ segir Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar Framtíðar. Innanhússátök hafa verið í flokkn- um og formaður flokksins gefið út að hann muni ekki gefa kost á sér á nýjan leik. Heiða Kristín Helgadóttir tekur sæti Bjartar Ólafsdóttur á þing- inu í haust, en hún hefur verið einkar gagnrýnin á störf formannsins sem hún telur hafa skemmt fyrir flokkn- um. Er hægt að skrifa fylgistap flokks- ins á einn mann? „Það held ég nú alls ekki. Það er mikilvægt fyrir okkur að við tökum öll ábyrgð á því. Umræð- urnar í flokknum hafa ekki síður verið um samskipti og starfið innan flokksins. Og þær eru sem betur fer dýnamískar og bjartsýnar, því þarna er ástríða fyrir pólitíkinni. Þessar áherslur okkar í pólitík um pólitíska siðbót, langtímahugsun umfram sér- hagsmuni, áherslur á umhverfismál, mannréttindi og svo framvegis. Þetta á alvöru erindi. Björt framtíð á erindi en einhvers staðar hefur okkur mis- tekist að halda andanum eða allavega koma því almennilega til skila, þessar tölur sýna það,“ segir Óttarr og vísar í að samkvæmt skoðanakönnunum hefur flokkurinn nánast þurrkast út undir forystu Guðmundar. „Það er naflaskoðun sem við verðum öll að taka saman og enginn undanskilinn.“ Treystir sér til forystustarfa Hefur hann sjálfur íhugað að bjóða sig fram til formanns? „Ég er opinn fyrir því að taka að mér forystu- störf,“ segir hann. „Ég hef þurft að fara í gegnum ákveðna sjálfsskoðun með það því það er ekki mín ástríða í pólitík að vera endilega á spíss- inum. Í pólitíkinni vil ég gera gagn og hef alveg þurft að velta því fyrir mér hvort ég geri gagn í forystusveit. Þá finnst mér líka ákveðin ábyrgð verandi þingmaður flokksins að segja ekki: nei, ekki ég. Ég treysti mér til forystustarfa en er ekki svona alveg lagður af stað í eitthvert hlaup upp kantinn.“ Í átökunum sem geisað hafa innan flokksins hefur stundum verið talað um tvær fylkingar sem berjist innbyrðis. Óttarr segist ekki upp- lifa það þannig. „En það er svona kúltúrmunur – þetta er flokkur sem stofnaður var á sínum tíma upp úr Besta flokknum og hópum, einstak- lingum héðan og þaðan, bæði sem höfðu verið virkir í pólitík áður eða voru að koma inn í fyrsta skipti, inn- blásnir og uppvægir eftir hrunið að taka þátt og ábyrgð. Það var viljandi gert á sínum tíma að stofna flokkinn sem stórt herbergi þar sem allir gætu verið með. Okkur hefur kannski ekki tekist nógu vel að ná þeim fjölbreyti- leika saman síðan í einhvern kúltúr.“ Hann segir málefnavinnuna ekki hafa þvælst fyrir í hópnum. En hefur þeim þá ekki mistekist að koma mál- efnum sínum á framfæri? „Ég hef ekki upplifað það þannig. Maður er í þess- ari stöðu sem þingmaður að manni finnst ganga voða vel en að einhverju leyti sýna viðvarandi fylgistölur að það er sambandsleysi, hvort sem það er við okkur sem persónur eða mál- efnin eða hvað það er, það er okkar vandamál,“ segir hann. Óttarr segir Bjarta framtíð standa fyrir samræðupólitík. „Við höfum þessa yfirlýstu stöðu að líta á okkur sem frjálslyndan miðjuflokk,“ segir hann. „Við viljum leggja áherslu á frjálslynda nálgun, einstaklingsnálg- un, fjölbreytni til dæmis í þjónustu eða aðgengi að opinberum stofnun- um og svo framvegis. Síðan eru sterkir rauðir þræðir í gegnum þetta allt saman. Það er annars vegar umhverf- isþráðurinn – við skilgreinum okkur sem grænan flokk og það hefur verið stór hluti af okkur baráttu inni á þingi. Síðan sem mannréttindaflokk, við viljum leggja mannréttindagler- augun á flesta hluti. Fyrir mér er það frjálslynd stefna að þau séu tryggð. Að allir fái að taka þátt eins og hægt er og hafi jafna möguleika.“ Kvennalistinn vildi hann ekki Stjórnmálaferill Óttars hófst árið 2010 með Besta flokknum og segir hann afskipti sín af þeim eiginlega hafa byrjað af þeirri ákvörðun hans að fara aldrei út í stjórnmál. „Sem unglingur var ég aðeins að potast í ungliðastarfi með Alþýðu- bandalaginu, Kvennalistinn vildi mig ekki. Ég hrökklaðist beint út, fannst þetta ofsalega skrítið umhverfi og óþægilegt og tók þá ákvörðun að taka ekki þátt í stjórnmálum.“ Það var um áramótin 2009-10, sem Óttarr fékk símtal frá gömlum vini. „Það var Jón Gnarr, sem ég var orðinn vanur grallaraskap frá. Hann sagðist vera búinn að ákveða að stofna stjórnmálaflokk og bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum. Flokkurinn ætti að heita Besti flokk- urinn og spurði hvort ég vildi vera með. Ég var eins og allir eftir hrunið og Búsáhaldabyltinguna búinn að hugsa hvur andskotinn hefði gerst. Af hverju gerði maður ekkert til að koma í veg fyrir þetta. Og svo hugs- aði ég að það væri ekki verra ef við gætum haft áhrif á umræðu eða eitt- hvað.“ Hann sló til og var orðinn borgarfulltrúi í Reykjavík nokkrum mánuðum seinna. „Við vorum komin inn í þetta ráðhús einhvern veginn, búið að læsa dyrunum á eftir okkur og við þurftum að díla við það.“ Hann segist oft hafa spurt sig síðan af hverju hann væri í stjórnmálum en hann sé þar til að gera eitthvert gagn. Hann segir það hafa komið sjálfum sér og mörgum samflokksmönnum á óvart hversu vel Besta flokknum var tekið og segir hann það mikilvægt að skera sig úr hópnum til að sýna ákveðna breidd. „Þegar ég fer á erlenda alþjóðlega fundi, þá finnst mér mikilvægt að ég sé í gulum jakkafötum, að það sé einhver einn í salnum sem sé ekki í gráum jakkafötum. Bara einhverjir svona smáhlutir sem mér finnst skipta máli. Og þó svo að pólitík sé oft voðalega skrítinn vinnustaður þar sem allir eru í vinnu við að vera óvinir, þá eru málin sem eru undir mjög merkileg,“ segir hann. Óttarr var kosinn inn á Alþingi árið 2013 og kann vel við sig þar. „Þegar ég upplifi svona mikil átök og stundum átök átakanna vegna, ef ég má orða það pent, þá getur það verið rosa- lega erfitt. Þegar manni finnst eins og verið sé að tefja mál eða reyna að troða málum án umræðu í gegn eftir því hvorum megin í salnum fólk situr. Það getur farið í mínar fínustu taugar og valdið mér svefnleysi en inn á milli finnst mér þetta rosalega gaman. Málefnin eru æðisleg,“ segir hann. Hlakkar til að verða gamall karl Óttar er tónlistarmaður af lífi og sál og bókagrúskari út í gegn. Hann er forsprakki hljómsveitarinnar Ham sem var stofnuð á pönktímabilinu, þegar hann var í ákveðinni uppreisn. Hann er uppalinn í Hafnarfirði og Bandaríkjunum til skiptis frá fimm ára aldri þar sem foreldrar hans voru í námi. „Ég held að það hafi haft mikil áhrif á mig til góðs að upplifa að vera svona hæfilega með fótinn í tveimur menningum. Það var svo mikill munur á þeim tíma. Ísland var svo lokaður heimur, í vöruúrvali, sumar plötur komu og aðrar ekki, Star Wars var frumsýnd tveimur árum eftir að hún var sýnd í Ameríku,“ segir hann. Í bekknum hans voru börn annarra háskólanema sem komu alls staðar að úr heiminum. „Maður upplifði heiminn nær sér,“ segir hann. „Ég kvarta ekki undan æskunni þó mér hafi fundist hún óbærileg meðan á henni stóð því ég var alltaf að bíða eftir því að verða fullorðinn og geta hætt þessu. Og núna get ég ekki beðið eftir því að verða gamall karl,“ segir hann. visir.is Viðtalið má hlusta á í lengri útgáfu á Vísir.is, í hlaðvarpinu Föstudagsviðtalið. Mynd/Silja Magg Einhvers staðar hefur okkur mistekist Óttarr Proppé segir ástríðu sína fyrir pólitík ekki endilega vera á spíssinum. Hann útilokar þó ekki formannsframboð. Hann segir viðvarandi fylgistölur Bjartrar framtíðar sýna að það sé sambandsleysi. Það sé vandamál flokksins. 2 8 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R12 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 E 5 -5 E 8 4 1 5 E 5 -5 D 4 8 1 5 E 5 -5 C 0 C 1 5 E 5 -5 A D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.