Fréttablaðið - 28.08.2015, Síða 12
Ólöf Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
Ég treysti mér
til forystustarfa
en er ekki
svona alveg
lagður af stað í
eitthvert hlaup
upp kantinn.
Föstudagsviðtalið
Mé r f i n n s t a ð s u m u leyti vera að lifna yfir fólki aftur. Það er mjög j á k v æ t t .
En auðvitað sýnir staðan að okkur
hefur einhvers staðar mistekist,“ segir
Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar
Framtíðar.
Innanhússátök hafa verið í flokkn-
um og formaður flokksins gefið út
að hann muni ekki gefa kost á sér á
nýjan leik. Heiða Kristín Helgadóttir
tekur sæti Bjartar Ólafsdóttur á þing-
inu í haust, en hún hefur verið einkar
gagnrýnin á störf formannsins sem
hún telur hafa skemmt fyrir flokkn-
um. Er hægt að skrifa fylgistap flokks-
ins á einn mann? „Það held ég nú alls
ekki. Það er mikilvægt fyrir okkur að
við tökum öll ábyrgð á því. Umræð-
urnar í flokknum hafa ekki síður
verið um samskipti og starfið innan
flokksins. Og þær eru sem betur fer
dýnamískar og bjartsýnar, því þarna
er ástríða fyrir pólitíkinni. Þessar
áherslur okkar í pólitík um pólitíska
siðbót, langtímahugsun umfram sér-
hagsmuni, áherslur á umhverfismál,
mannréttindi og svo framvegis. Þetta
á alvöru erindi. Björt framtíð á erindi
en einhvers staðar hefur okkur mis-
tekist að halda andanum eða allavega
koma því almennilega til skila, þessar
tölur sýna það,“ segir Óttarr og vísar
í að samkvæmt skoðanakönnunum
hefur flokkurinn nánast þurrkast út
undir forystu Guðmundar. „Það er
naflaskoðun sem við verðum öll að
taka saman og enginn undanskilinn.“
Treystir sér til forystustarfa
Hefur hann sjálfur íhugað að bjóða
sig fram til formanns? „Ég er opinn
fyrir því að taka að mér forystu-
störf,“ segir hann. „Ég hef þurft að
fara í gegnum ákveðna sjálfsskoðun
með það því það er ekki mín ástríða
í pólitík að vera endilega á spíss-
inum. Í pólitíkinni vil ég gera gagn
og hef alveg þurft að velta því fyrir
mér hvort ég geri gagn í forystusveit.
Þá finnst mér líka ákveðin ábyrgð
verandi þingmaður flokksins að
segja ekki: nei, ekki ég. Ég treysti mér
til forystustarfa en er ekki svona alveg
lagður af stað í eitthvert hlaup upp
kantinn.“
Í átökunum sem geisað hafa innan
flokksins hefur stundum verið
talað um tvær fylkingar sem berjist
innbyrðis. Óttarr segist ekki upp-
lifa það þannig. „En það er svona
kúltúrmunur – þetta er flokkur sem
stofnaður var á sínum tíma upp úr
Besta flokknum og hópum, einstak-
lingum héðan og þaðan, bæði sem
höfðu verið virkir í pólitík áður eða
voru að koma inn í fyrsta skipti, inn-
blásnir og uppvægir eftir hrunið að
taka þátt og ábyrgð. Það var viljandi
gert á sínum tíma að stofna flokkinn
sem stórt herbergi þar sem allir gætu
verið með. Okkur hefur kannski ekki
tekist nógu vel að ná þeim fjölbreyti-
leika saman síðan í einhvern kúltúr.“
Hann segir málefnavinnuna ekki
hafa þvælst fyrir í hópnum. En hefur
þeim þá ekki mistekist að koma mál-
efnum sínum á framfæri? „Ég hef ekki
upplifað það þannig. Maður er í þess-
ari stöðu sem þingmaður að manni
finnst ganga voða vel en að einhverju
leyti sýna viðvarandi fylgistölur að
það er sambandsleysi, hvort sem það
er við okkur sem persónur eða mál-
efnin eða hvað það er, það er okkar
vandamál,“ segir hann.
Óttarr segir Bjarta framtíð standa
fyrir samræðupólitík. „Við höfum
þessa yfirlýstu stöðu að líta á okkur
sem frjálslyndan miðjuflokk,“ segir
hann. „Við viljum leggja áherslu á
frjálslynda nálgun, einstaklingsnálg-
un, fjölbreytni til dæmis í þjónustu
eða aðgengi að opinberum stofnun-
um og svo framvegis. Síðan eru sterkir
rauðir þræðir í gegnum þetta allt
saman. Það er annars vegar umhverf-
isþráðurinn – við skilgreinum okkur
sem grænan flokk og það hefur verið
stór hluti af okkur baráttu inni á
þingi. Síðan sem mannréttindaflokk,
við viljum leggja mannréttindagler-
augun á flesta hluti. Fyrir mér er það
frjálslynd stefna að þau séu tryggð.
Að allir fái að taka þátt eins og hægt
er og hafi jafna möguleika.“
Kvennalistinn vildi hann ekki
Stjórnmálaferill Óttars hófst árið
2010 með Besta flokknum og segir
hann afskipti sín af þeim eiginlega
hafa byrjað af þeirri ákvörðun hans
að fara aldrei út í stjórnmál.
„Sem unglingur var ég aðeins að
potast í ungliðastarfi með Alþýðu-
bandalaginu, Kvennalistinn vildi mig
ekki. Ég hrökklaðist beint út, fannst
þetta ofsalega skrítið umhverfi og
óþægilegt og tók þá ákvörðun að taka
ekki þátt í stjórnmálum.“
Það var um áramótin 2009-10,
sem Óttarr fékk símtal frá gömlum
vini. „Það var Jón Gnarr, sem ég
var orðinn vanur grallaraskap frá.
Hann sagðist vera búinn að ákveða
að stofna stjórnmálaflokk og bjóða
fram í borgarstjórnarkosningunum.
Flokkurinn ætti að heita Besti flokk-
urinn og spurði hvort ég vildi vera
með. Ég var eins og allir eftir hrunið
og Búsáhaldabyltinguna búinn að
hugsa hvur andskotinn hefði gerst.
Af hverju gerði maður ekkert til að
koma í veg fyrir þetta. Og svo hugs-
aði ég að það væri ekki verra ef við
gætum haft áhrif á umræðu eða eitt-
hvað.“ Hann sló til og var orðinn
borgarfulltrúi í Reykjavík nokkrum
mánuðum seinna. „Við vorum komin
inn í þetta ráðhús einhvern veginn,
búið að læsa dyrunum á eftir okkur
og við þurftum að díla við það.“
Hann segist oft hafa spurt sig síðan
af hverju hann væri í stjórnmálum en
hann sé þar til að gera eitthvert gagn.
Hann segir það hafa komið sjálfum
sér og mörgum samflokksmönnum á
óvart hversu vel Besta flokknum var
tekið og segir hann það mikilvægt
að skera sig úr hópnum til að sýna
ákveðna breidd.
„Þegar ég fer á erlenda alþjóðlega
fundi, þá finnst mér mikilvægt að
ég sé í gulum jakkafötum, að það sé
einhver einn í salnum sem sé ekki í
gráum jakkafötum. Bara einhverjir
svona smáhlutir sem mér finnst
skipta máli. Og þó svo að pólitík sé
oft voðalega skrítinn vinnustaður
þar sem allir eru í vinnu við að vera
óvinir, þá eru málin sem eru undir
mjög merkileg,“ segir hann.
Óttarr var kosinn inn á Alþingi árið
2013 og kann vel við sig þar. „Þegar ég
upplifi svona mikil átök og stundum
átök átakanna vegna, ef ég má orða
það pent, þá getur það verið rosa-
lega erfitt. Þegar manni finnst eins
og verið sé að tefja mál eða reyna að
troða málum án umræðu í gegn eftir
því hvorum megin í salnum fólk situr.
Það getur farið í mínar fínustu taugar
og valdið mér svefnleysi en inn á milli
finnst mér þetta rosalega gaman.
Málefnin eru æðisleg,“ segir hann.
Hlakkar til að verða gamall karl
Óttar er tónlistarmaður af lífi og sál
og bókagrúskari út í gegn. Hann er
forsprakki hljómsveitarinnar Ham
sem var stofnuð á pönktímabilinu,
þegar hann var í ákveðinni uppreisn.
Hann er uppalinn í Hafnarfirði og
Bandaríkjunum til skiptis frá fimm
ára aldri þar sem foreldrar hans voru
í námi.
„Ég held að það hafi haft mikil
áhrif á mig til góðs að upplifa að vera
svona hæfilega með fótinn í tveimur
menningum. Það var svo mikill
munur á þeim tíma. Ísland var svo
lokaður heimur, í vöruúrvali, sumar
plötur komu og aðrar ekki, Star Wars
var frumsýnd tveimur árum eftir að
hún var sýnd í Ameríku,“ segir hann.
Í bekknum hans voru börn annarra
háskólanema sem komu alls staðar
að úr heiminum. „Maður upplifði
heiminn nær sér,“ segir hann.
„Ég kvarta ekki undan æskunni þó
mér hafi fundist hún óbærileg meðan
á henni stóð því ég var alltaf að bíða
eftir því að verða fullorðinn og geta
hætt þessu. Og núna get ég ekki beðið
eftir því að verða gamall karl,“ segir
hann.
visir.is Viðtalið má hlusta á
í lengri útgáfu á Vísir.is,
í hlaðvarpinu Föstudagsviðtalið.
Mynd/Silja Magg
Einhvers staðar
hefur okkur
mistekist
Óttarr Proppé segir ástríðu sína fyrir pólitík ekki endilega
vera á spíssinum. Hann útilokar þó ekki formannsframboð.
Hann segir viðvarandi fylgistölur Bjartrar framtíðar sýna að
það sé sambandsleysi. Það sé vandamál flokksins.
2 8 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R12 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð
2
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
E
5
-5
E
8
4
1
5
E
5
-5
D
4
8
1
5
E
5
-5
C
0
C
1
5
E
5
-5
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K