Fréttablaðið - 28.08.2015, Side 22

Fréttablaðið - 28.08.2015, Side 22
FÓLK| HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hrafnkell Hjörleifsson hafði aldrei áður hlaupið heilt maraþonhlaup þegar hann kom fyrstur Íslendinga í mark í Reykjavíkurmara- þoni Íslandsbanka síðustu helgi. Hrafnkell, sem er þrítugur hagfræðingur og nemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, segir ákvörðunina um þátt- töku í hlaupinu eiga rætur sínar að rekja til þess að honum og vini hans og æfingafélaga, Gunnari Jóhannssyni, fannst þeir þurfa að afreka eitthvað á íþróttasviðinu á þrítugsafmælisárinu. „Gunnar er ekki þekktur fyrir að hika við hlutina svo hann stakk upp á keppni í járnkarli. Ég náði að tala hann niður á að láta bara maraþonhlaup duga.“ Þótt hlaupið síðustu helgi hafi verið fyrsta mara- þonhlaup Hrafnkels er hann ekki ókunnugur líkam- legri áreynslu. Hann ólst upp í vesturbæ Reykja- víkur þar sem hann æfði fótbolta með KR og hefur áður tekið þátt í almenningshlaupum, hjólakeppn- um og þríþraut. „Ég var alltaf í misvondu formi og tók eingöngu þátt upp á stemninguna og til að prófa sjálfan mig. Við Gunnar tókum þátt í hálfmaraþon- inu í tvígang, árin 2007 og 2009. Í seinna skiptið setti ég mér það markmið að hlaupa undir 90 mínútum. Æfingatímabilið var samt ekki markvissara en svo að ég eyddi endasprettinum í Lækjargötu á lötur- hægri göngu kyngjandi eigin ælu. Síðan silaðist ég yfir marklínuna á 90 mínútum og 24 sekúndum. Ég var sannfærður um að ég ætti meira inni og þessar 24 sekúndur sátu í mér.“ ÓMETANLEGUR STUÐNINGUR Æfingatímabilið stóð yfir í sjö mánuði en í upphafi var Hrafnkell ekki með neitt fastmótað tímamark- mið. Hann taldi þó ekki útilokað að stefna á mara- þon undir þremur tímum. „Þeim draumórum deildi ég þó ekki með neinum til að byrja með en þegar ég opnaði mig með þetta markmið fékk ég líka svarið frá góðum vini: „Rólegur, þú getur það ekkert.“ Það var auðvitað bara til að tendra neistann.“ Stemningin í hlaupinu var frábær að sögn Hrafn- kels og þá sérstaklega í upphafi þegar hlaupið er í gegnum íbúðahverfin í Vesturbænum og á Nesinu. „Þegar leiðir hálfmaraþon- og maraþonhlaupara skildi varð þetta meiri eyðimerkurganga. Fyrri helmingur hlaupsins gekk vel og ég kláraði fyrra hálfmara- þonið á 1:27. Þar með kvaddi ég þann gamla djöful og var langt á undan áætlun. Ég fékk góðan stuðning allt hlaupið, frá vinum mínum, frá konunni minni sem hjólaði milli staða og hvatti mig, og svo átti ég frábæran frænkustuðningshóp á Eiðisgrandanum.“ ÁHERSLA Á HOLLUSTU Hollur matur er í hávegum hafður á heimili Hrafn- kels og kærustu hans, Þyri Huldar Árnadóttur, sem er dansari hjá Íslenska dansflokknum. „Þyri Huld þarf vinnu sinnar vegna að vera í toppformi. Því reynum við alltaf að borða holt og eldum yfirleitt frá grunni. Engin unnin matvæli og enginn sykur en þeim mun meira af fiski og grænmeti. Þegar líða fór á æfingatímabilið hætti ég líka að neyta mjólkur- vara og fann mikinn mun. Samhliða jók ég neyslu á hnetum, fræjum, ólífuolíu og ýmsum baunum.“ Spurður um frekari áform varðandi hlaup og persónulega hagi segir Hrafnkell þau frekar óljós. Hann starfaði um tíma sem hagfræðingur eftir út- skrift þar til þau hjónin ákváðu að leggja land undir fót og fóru í hálfsárs bakpokaferðalag um Suður-Am- eríku. „Þegar heim var komið var kannski ekki alveg augljóst hvað maður ætti að taka til bragðs þannig að ég skellti mér aftur í nám og í þetta skiptið í tölv- unarfræði. Ég er ekki þeim kostum gæddur að plana langt fram í tímann þannig að hvað gerist næst verður bara að koma í ljós.“ Hrafnkell gefur hér lesendum uppskrift að góm- sætum grænmetisrétti þar sem eggaldin er aðalhrá- efnið.  n starri@365.is DJÖFULL KVADDUR FRUMRAUN  Hrafnkell kom sjálfum sér á óvart þegar hann varð fyrstur Íslend- inga í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Hollan mat hefur hann í hávegum. FÉLAGAR Gunnar Jóhannsson (t.h.) er æfingafélagi Hrafnkels en saman hafa þeir tekið þátt í ýmsum raunum. MYND/ÚR EINKASAFNI FYRSTUR ÍSLENDINGA Hrafnkell Hjörleifsson taldi ekki útilokað að stefna á tíma undir þremur tímum og það tókst. MYND/ERNIR Leiðbeinendur eru: Halla Birgisdóttir fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi, Jónas Þór fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur, Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursson fararstjóri í Rússlandi, Bjarni Randver Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í., Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur. EGGALDIN Í OFNI: Þrjú eggaldin bökuð í heilu lagi við 180 gráður í 30-40 mínútur eða þar til vel krumpuð. DRESSING: 1,5 msk. sinnep 3 hvítlauksgeirar 1 fersk daðla Fersk basilíka Allt maukað saman. FYLLING: 6 skalottlaukar 6 sólþurrkaðir tómatar 1 dl kínóa, skolað og soðið í 20 mínútur með 1 msk. af grænmetiskrafti frá Sollu. 1 sæt kartafla í teningum bökuð í ofni ásamt kókos olíu í 20 mín. Sett í matvinnsluvél og maukuð. Laukurinn skorinn í sneiðar og mýktur í botnfylli af vatni á pönnu. Tómötum bætt út í rétt áður en slökkt er undir pönnunni þegar laukurinn er orð- inn glær. Soðnu kínóa blandað saman við ásamt dressingu. Eggaldin skorin í tvennt langsum, inni- haldið skafið úr og bætt á pönnuna. Allt fært í hýðið af eggaldinu og sætu kart- öflunni smurt ofan á. Borð- að ásamt fersku salati með ríkulegu magni af fræjum og ólífuolíu. ER Í LOFTINU SPRENGISANDUR SIGURJÓN M. EGILSSON OG UMRÆÐA SEM SKIPTIR MÁLI KL. 10:00 12:00SUNNUDAG 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 E 5 -8 1 1 4 1 5 E 5 -7 F D 8 1 5 E 5 -7 E 9 C 1 5 E 5 -7 D 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.