Fréttablaðið - 28.08.2015, Síða 16
Allir vita hversu alvarlegt ástand er á leigumarkaði í dag. Enginn fær íbúð á boðlegum kjörum og litlar íbúðir á besta stað eru bæði illfáanlegar og dýrar.
Ásókn ferðamanna í skammtímaleigu veldur skorti á
íbúðum á almennum leigumarkaði. Fyrir því finna náms-
menn og aðrir sem þurfa á leiguhúsnæði að halda. Tekjur
af leigu til ferðamanna eru enda miklu meiri en af leigu á
almennum markaði.
En á sama tíma er líka fólk sem á íbúðir eða laus herbergi
sem það er ekki tilbúið að leigja til lengri tíma, vegna þess
að lítið fæst upp úr því.
Húsnæði skortir
Mikilvægasta leiðin til lausnar er að sjálfsögðu að fjölga
leiguíbúðum. Það er mikill skortur á litlu og meðalstóru
húsnæði í öruggri leigu. Þess vegna er Reykjavíkurborg nú
að styðja við byggingu fjölda nýrra leiguíbúða, í samvinnu
við búseturéttarfélög og félög stúdenta. Það er ekki nóg að
byggja, það verður að tryggja að íbúðirnar verði til útleigu
til langframa.
Ein góð hugmynd
Ríkið getur líkt og sveitarfélög stuðlað að jákvæðum
breytingum. Þess vegna leggjum við til skattaafslátt til
einstaklinga vegna útleigu einnar íbúðar til að lágmarki 12
mánaða. Slík aðgerð gæti aukið framboð leiguhúsnæðis
gríðarlega. Um 4.000 íbúðir eru í leigu til ferðamanna í
gegnum vefsíðuna Airbnb. Ef einungis hluti þeirra færi í
langtímaleigu yrði stórum áfanga náð. Aðrir sem ekki eru
að leigja út í dag, gætu séð sér leik á borði, ef þessi laga-
breyting yrði að veruleika.
Öruggt húsnæði til kaups eða leigu
Húsnæðismál eru alvarlegasta úrlausnarefnið þessi miss-
erin. Samfylkingin hefur flutt fjölda þingmála til úrlausnar,
sem því miður hafa ekki orðið að veruleika. Það skiptir
miklu að koma hreyfingu á þennan málaflokk og tryggja
fólki að það geti bæði komist í örugga leigu og keypt sína
fyrstu íbúð. Í haust munum við áfram beita okkur fyrir
því að allir geti búið sér til gott heimili á viðráðanlegum
kjörum.
SKOÐUN
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson ÚtgEfandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is HElgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
mEnning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framlEiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitSHÖnnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Stóri sannleikurinn er ekki til. Það sem hér fer á eftir er til að mynda aðeins þus í miðaldra manni um það hvernig hann sér hlutina. Manni sem hefur haft þann starfa um all-nokkra hríð, með hléum þó, að fylgjast með stjórnmálum og greina það sem stjórnmála-
menn segja. Og við þá iðju læðist oft og tíðum sá grunur
að manni að sannleikurinn og einlægnin séu ekki
helstu meðreiðarsveinar stjórnmálanna.
Á því eru augljóslega undantekningar og engin
ástæða til að skella merkimiða á heila stétt. Kannski er
þetta ekki bundið við stjórnmálin, heldur samfélagið
allt, hvert og eitt okkar. En þar sem stjórnmálin eru
þess eðlis að reglulega fá kjósendur færi á að vega og
meta orð og gjörðir stjórnmálamanna og gefa einkunn
með atkvæði sínu stendur sú stétt vel til höggsins. Líka
af því að stjórnmálamenn eru í okkar umboði að véla
um okkar mál og því okkar að leggja mat á störf þeirra
og störf þeirra felast að miklu leyti í því hvað þeir segja.
En hrokinn leiðir oft förina og þegar svo ber undir
er einhvern veginn allt leyfilegt. Þá skellir maður því
fram að öryrkjar séu óeðlilega margir á Íslandi, án þess
almennilega að vita neitt um það. Þá fullyrðir maður að
álverksmiðja sem staðið hefur hálfkláruð árum saman
sé alveg að fara að klárast og að ástæðan fyrir því að
húsið sé enn hálfkarað sé sú að stjórnmálamennirnir
í hinum flokkunum hafi staðið sig svo illa. Þá leggur
maður enga orku í kjarasamninga fyrr en verkfall er
skollið á en fullyrðir síðan að fyllsta samráð hafi verið
haft frá upphafi. Þá hendir maður inn breytingartillögu
um virkjanakosti í kippum þvert á nýsamþykkta áætlun
um hvernig að málum skuli staðið. Þá setur maður stór
og mikilvæg mál inn í þingið löngu eftir að frestur til
þess er liðinn og yppir svo bara öxlum þegar einhver
hefur eitthvað við það að athuga. Þá fullyrðir maður að
heill og hamingja velti á nýrri virkjun og þeir sem eru á
móti henni séu bara á móti heill og hamingju. Þá lætur
maður taka af sér mynd með einhverjum útlendingum
sem hafa orðað áhuga á stóriðjuverkefni sem allir sjá
að engin orka er fyrir. Þá lofar maður kjósendum öllu
fögru fyrir kosningar vitandi að ekki verður ekki efnt.
Já, allt þetta gerist ef hrokinn heldur í taumana.
Við þurfum stjórnmálamenn sem ljúga ekki, hvort
sem er blákalt eða með hálfsannleik og skrumskælingu.
Sem viðurkenna mistök sín. Sem hlusta og læra. Sem
vita hvað þeir vilja, hvert þeir ætla að stefna, hvernig
samfélagi þeir vilja berjast fyrir og eru óhræddir við að
viðurkenna það. Sem þurfa ekki að látast vita allt best.
Þeir sem ekki reiða vitið í þverpokum mega ekki fylla
þá af hroka.
Þar til þessi hugsun ræður för þurfum við að gefa skýr
skilaboð: Takk og bless.
Að reiða
hrokann í
þverpokum
Við þurfum
stjórnmála-
menn sem
ljúga ekki,
hvort sem er
blákalt eða
með hálf-
sannleik og
skrumskæl-
ingu.
Kolbeinn
Óttarsson
Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
SALLY
Fáir sitja betur.
Hægindastóll PU Brandy,
Rio antrazit og ljósgrár.
Stærð: 72x72 H:88 cm.
29.990 kr. 39.980 kr.
Ríkið getur
líkt og sveitar-
félög stuðlað
að jákvæðum
breytingum.
Þess vegna
leggjum við
til skattaaf-
slátt til
einstaklinga
vegna út-
leigu einnar
íbúðar til að
lágmarki 12
mánaða.
Ódýrt en áhrifaríkt
Árni Páll
Árnason
formaður
Samfylkingar
Bandamaður hipsteranna
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra skrifaði áhuga-
verða grein um skipulagsmál í
Reykjavík. Þar lýsir hann áhyggj-
um af því að skipulagsyfirvöld beri
ekki virðingu fyrir sögulegri ásýnd
og fegurð borgarinnar. Þetta er
rétt hjá Sigmundi en um áraraðir
hefur skipulagið verið samhengis-
laust og boðið upp á byggingar
þar sem fermetranýtingin skiptir
meira máli en ásýndin. Hipsterar
Reykjavíkur sem áður flatmöguðu
í Hjartagarðinum hafa eignast
óvæntan bandamann í Sigmundi.
ljótasti hlemmur borgarinnar
Þó orkar það tvímælis að Sig-
mundur skuli hafa áhyggjur af
ásýnd borgarinnar þar sem flokkur
hans er eflaust ötulasti talsmaður
þess að halda Reykjavíkurflugvelli
í Vatnsmýrinni. Af öllum steypu-
hlemmunum í Reykjavík er flug-
völlurinn vafalaust ófrýnilegasta
lýti borgarinnar. Enn fremur er
brotthvarf flugvallarins stór liður
því að auðga miðbæinn.
Skipulagseftirlitið
Í greininni leggur Sigmundur til
að komið verði á fót stofnun sem
grípi inn í afleik skipulags yfirvalda
í Reykjavík og annars staðar.
Þetta virðist vera lenskan í Fram-
sóknarflokknum en flokksbróðir
Sigmundar, Höskuldur Þórhallsson,
lagði einmitt fram frumvarp þar
sem skipulagsvald sveitarfélaga yfir
flugvöllum yrði takmarkað.
stefanrafn@frettabladid.is
Halldór
2 8 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R
2
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
E
5
-4
5
D
4
1
5
E
5
-4
4
9
8
1
5
E
5
-4
3
5
C
1
5
E
5
-4
2
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K