Fréttablaðið - 28.08.2015, Side 8
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Stál og plast þakrennur
Allir fylgihlutir fáanlegir
Frábært
verð!
Sjá verðlista á:
www.murbudin.is
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Samfélag „Ég vil bara vita hvaða
fólk það er sem segir þetta um mig
og hreinsa nafn mitt,“ segir Mada-
lena Bernabe Zandamela, skólaliði
í Hafnafirði, sem hefur verið mein-
aður aðgangur að skemmtistaðnum
Loftinu vegna ásakana starfsfólks um
að hún stundi þar vændi. Hún hefur
fengið lögfræðing sinn til að skoða
málið.
Madalena flutti hingað til lands
frá Mósambík með íslenskum barns-
föður sínum árið 2008. Sambandi
þeirra lauk skömmu síðar og þá flutti
barnsfaðir hennar úr landi. Madalena
segist ekki hafa viljað flytja aftur til
heimalandsins því hér geti hún boðið
dóttur sinni, sem á íslenska fjöl-
skyldu, betra líf. „Ég kom úr fátækri
fjölskyldu. Hér hefur dóttir mín
öll tækifæri.“ Dóttir Madalenu var
erlendis að heimsækja föður sinn
á síðasta ári þegar hún fór í fyrsta
skipti á Loftið. Hún segir að síðan þá
hafi hún farið þangað fjórum til fimm
sinnum.
Madalena fór að skemmta sér í
tilefni Gay Pride, laugardaginn 8.
ágúst síðastliðinn. Hún fór ein út en
segist venjulega fara með vinkonu
sinni sem hún kynntist hér á landi.
„Klukkan var svona tuttugu mínútur
í eitt um nóttina. Ég gekk að röðinni
á barnum en dyravörðurinn sagði
mér að ég mætti ekki koma inn. Ég
steig þá úr röðinni og beið í smá
stund áður en ég ákvað að spyrja þá
af hverju ég mætti ekki koma.“
Dyravörðurinn sagði henni
ástæðu þess að hún væri á bannlista
á íslensku, sem Madalena talar alla
jafna. Hún skildi hann hins vegar
ekki og bað hann að endurtaka sig á
ensku. „Hann sagði að sér þætti þetta
leitt en ég mætti ekki koma inn því
ég og vinkona mín værum að selja
okkur inni á staðnum. Hann sagði að
staðnum hefðu borist fimm kvartanir
frá mismunandi aðilum um að við
værum að selja okkur.“
„Ég spurði þá hvort ég gæti fengið
að tala við framkvæmdastjóra staðar-
ins en það var ekki hægt. Þá fór ég á
skemmtistaðinn Austur í fimm mín-
útur en svo keyrði ég bara heim.“
Daginn eftir fór Madalena á lög-
reglustöðina. Hún vildi fá úr því
skorið hvaða fólk hefði lagt fram
kvörtun um hana. Þar var henni
bent á að hafa samband við eigendur
Lofts. „Ég hringdi í eigandann og bað
hann um að tala við dyravörðinn
og hringja til baka. Svo leið ein vika
og hann hringdi ekki. Ég reyndi að
hringja í hann nokkrum sinnum án
árangurs, þar til ég hringdi úr öðrum
síma. Hann staðfesti að það hefðu
fimm kvartanir borist og það væri í
raun ekkert sem hann gæti gert.“
Hún segist ekkert kannast við ásak-
anirnar. „Ég vil bara að nafn mitt sé
hreinsað. Ég vil ekki vera hrædd við
að fara inn á bar. Ég veit ekki hvort
þetta er rasismi eða hvað. Ég var bara
að fara út til að reyna að njóta lífsins
og fá smá ferskt loft, ef svo má að orði
komast.“
„Ég hef kannski fengið mér í glas
þarna inni en ég er handviss um að
ég hafi aldrei gengið út af Loftinu með
manni. Ég er í sjokki því ég veit að ég
gerði þetta ekki.“
Madalena er ósátt við vinnubrögð
Loftsins í þessu máli. „Þeir hefðu frek-
ar átt að taka sér smá tíma og rann-
saka kvartanirnar. Ef þær væru sannar
væri ekki óeðlilegt að biðja mig um að
koma ekki aftur.“ Hún segist ekki vita
hvort möguleiki sé að starfsfólk og
eigendur Loftsins séu að fara manna-
villt þegar ákvörðun var tekin um að
meina henni um aðgang. Hún segir
að um það snúist málið. Hún vilji fá
botn í það hvers vegna fimm manns
hafi sakað hana um vændi.
María Júlía Rúnarsdóttur, lögmað-
ur Madalenu, hyggst senda Loftinu
bréf og fara fram á bætur og formlega
afsökunarbeiðni. „Það er mitt mat að
þetta séu fordómar í hennar garð.“
Starfsfólk Loftsins staðfesti að málið
hafi komið upp. Staðurinn segist ekki
tjá sig um einstök atriði sem koma
upp í húsinu.
Sökuð um vændi og var synjað
um inngöngu á skemmtistað
Konu frá Mósambík er ekki lengur hleypt inn á skemmtistaðinn Loftið vegna fimm kvartana sem hafa
borist um að hún bjóði blíðu sína þar inni. Konan segist aldrei hafa selt sig og vill hreinsa nafn sitt.
Madalena Bernabe Zandamela segist vera bæði sjokkeruð og sár yfir ásökunum Loftsins. Fréttablaðið/Stefán
Þeir hefðu frekar átt
að taka sér smá tíma
og rannsaka kvartanirnar. Ef
þær væru sannar væri ekki
óeðlilegt að biðja mig um að
koma ekki aftur.
Madalena Bernabe Zandamela,
skólaliði í Hafnarfirði.
Ekki er aðeins um glæsilegt met í Blöndu að ræða heldur
hefur sjálfbær veiðiá með náttúrulegum stofni aldrei fyrr
gefið aðra eins veiði.
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Veiði Laxveiðiperlan Blanda hafði
gefið 4.230 laxa eftir að fyrri vakt
veiðimanna lauk þar um hádegi í
gær. Þessi veiði á sér fá fordæmi í
íslensku veiðivatni frá því að tölfræði
um laxveiði hófst fyrir áratugum
síðan.
Blanda hafði fyrir yfirstandandi
veiðisumar gefið mest 2.777 laxa
árið 2010, en meðalveiðin þegar litið
er til áranna 1974 til 2004 er 1.023
laxar, minnst 375 árið 1989.
Ekki er aðeins um glæsilegt met í
Blöndu að ræða heldur hefur sjálf-
bær veiðiá með náttúrulegum stofni
aldrei fyrr gefið aðra eins veiði. Fyrra
met átti Þverá/Kjarrá, en árið 2005
voru þar dregnir á land 4.165 laxar.
En metið sem nú hefur verið slegið
mun verða miklum mun myndar-
legra í sumarlok. Vegna sérstakra
aðstæðna í veðri þetta sumarið mun
Blanda ekki fara á yfirfall áður en
sumri lýkur, sem ekki hefur gerst í
manna minnum, og því geta veiði-
tölur hæglega farið hátt í 5.000
veidda laxa, áður en veiðimenn taka
upp þetta sumarið.
Hafa leigutakar í Blöndu þegar
hvatt veiðimenn til að taka tillit til
þessara aðstæðna með því að sleppa
laxi – og hrygnum án undantekn-
inga. – shá
Ævintýraleg veiði í Blöndu
Svæði 1 í Blöndu hefur gefið um 2.500 laxa í sumar – metið í Blöndu var 2.777
laxar fyrir sumarið. Mynd/Lax-á
»
Samfélag Átakið Á allra vörum hefst
í sjöunda skipti þann 10. septem-
ber næstkomandi og er að þessu
sinni barist fyrir bættum samskipt-
um meðal barna og unglinga. Á allra
vörum er kynningar- og fjáröflunar-
átak þar sem þjóðin sameinast og
lætur gott af sér leiða.
Safnað verður fyrir samskiptasetri
fyrir börn og unglinga sem glíma
við einelti. Á samskiptasetrinu geta
aðstandendur í eineltismálum fengið
ráðgjöf og þjónustu frá fagaðilum.
„Við sem störfum að skóla- og upp-
eldismálum eða á annan hátt í þágu
barna og unglinga vitum hversu
alvarlegar afleiðingar einelti getur
haft bæði fyrir þá sem verða fyrir
því og hina sem gerast sekir um það.
Afleiðingarnar snerta ekki aðeins
börnin sjálf heldur líka fjölskyldur
þeirra. Það er sýn okkar sem standa
að samtökunum Erindi, að það sé
mikilvægt að styðja bæði þá sem
verða fyrir einelti en líka hina sem
leggja í einelti. Með því er átt við
stuðning við uppgjör, sátt og áfram-
haldandi samskipti sem fylgt er eftir
í tiltekinn tíma með öllum aðilum.
Þannig komast allir frá málum með
reisn og líkur aukast á að hægt sé að
skapa farveg fyrir ný og heilbrigð
samskipti milli barna sem í hlut
eiga. Það hefur takmarkaða þýðingu
að stöðva einungis sjálfar árásirnar ef
viðhorfin sem búa að baki eineltinu
eru ekki upprætt samtímis,“ segir
Björg Jónsdóttir, ein af stofnendum
Erindis.
Frá árinu 2008 hefur Á allra vörum
valið nokkur verkefni og safnað fyrir.
Um er að ræða Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna, Ljósið, Krabba-
meinsfélag Íslands, Leiðarljós, geð-
gjörgæsludeild Landspítalans og
Neistann. Upp undir 400 milljónir
króna hafa safnast í þessum söfn-
unum, bæði með beinum fjárfram-
lögum og gjöfum ýmiss konar. – ngy
Safnað fyrir
samskiptasetri
fyrir börn sem
glíma við einelti
Frá árinu 2008 hefur Á allra vörum
valið nokkur verkefni og safnað fyrir.
Fréttablaðið/Vilhelm
2 8 . á g ú S t 2 0 1 5 f Ö S t U D a g U R8 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð
2
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
E
5
-7
7
3
4
1
5
E
5
-7
5
F
8
1
5
E
5
-7
4
B
C
1
5
E
5
-7
3
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K