Fréttablaðið - 28.08.2015, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 28.08.2015, Blaðsíða 54
2 8 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R38 L í F i ð ∙ F R É t t A B L A ð i ð HRAUNBORGIR GRÍMSNESI FALLEGT SUMARHÚS MEÐ GESTAHÚSI Á GÓÐUM STAÐ Sumarhúsið er 31,7 fm. að stærð, gestahús er 12,2 fm. Samtals 43,9 fm. Sumarhúsið (1990) er fullbúið og í góðu ástandi. Vandað gestahús, byggt 2012, er tilbúið að utan en fokhelt að innan. Eitt svefnherbergi og svefnloft er í sumarhúsinu. Góð timburverönd við húsið sem er ca. 90 fm. Lóðin er 0,5 hektarar og fallega gróin. Sumarhúsið er í göngufæri við þjónustumiðstöð með sundlaug, heitum pottum, golfvelli, minigolfi og annarri afþreyingu. Verð: 10.900.000 kr. Fjárfesting Fasteignasala ehf. Sími 562 42 50 | fjarfesting@fjarfesting.is Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is ENDALAUST TAL OG 10 GB Á 3.990 KR.* Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu frábært sjónvarpsefni á fáránlega góðu verði. Allt það besta hjá 365 *Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365 Bjarni Kristbjörnsson mun von bráðar bætast í hóp drengjanna sem leika Billy Elliot á stóra svið- inu í Borgarleikhúsinu. Hann hefur hingað til verið annar af tveimur leikurum sem leika Michael, sem er besti vinur Billy í sýningunni. Hann hefur verið að æfa fyrir nýja hlutverkið frá því í febrúar samhliða því að leika hlut- verk Michaels. Alexía Björg Jóhannesdóttir, kynningarfulltrúi Borgarleikhúss- ins, segir að ákveðið hafi verið að bæta við fjórða Billy leikaranum þar sem strákarnir stækka fljótt og það gæti þurft að hafa einn til- búinn sem gæti tekið við keflinu í vetur. Ekki er vitað hvenær fyrsta sýning Bjarna verður sem Billy en það mun gerast bráðlega. Bjarni er aðeins 12 ára gamall en hann fór í áheyrnarprufur fyrir hlutverk Billy á sínum tímum en þá var hann fingurbrotinn og í gipsi upp á handlegginn. Það var svo ekki fyrr en í nóvember sem hann fékk símhringingu þar sem honum var boðið aukahlutverk sem besti vinur Billy, sem hann þáði með glöðu geði. „Sá sem lék Michael var að stækka og ég var fenginn til þess að létta á álaginu. Eftir að ég kom fram í minni fyrstu sýningu þá var hringt í foreldra mína þar sem framleiðendurnir sögðust vilja fá mig til þess að æfa fyrir hlutverk Billy. Ég var í algjöru sjokki og varð svakalega glaður.“ Æfingar hafa staðið yfir í allt sumar og þurfa strákarnir að fá frí yfir hluta skóladagsins til þess að komast á æfingar. „Kennararnir mínir eru mjög jákvæðir gagnvart þessu og þetta er ekkert mál. Ég hef tíma til að gera heimavinnuna þegar hinn Michael sýnir og ég er á stand-by. Við fengum þriggja vikna frí í sumar en annars erum við búnir að vera á æfingum næst- um alla daga.“ Bjarni segir það ekki vera flók- ið að æfa eitt hlutverk en leika annað hlutverk á sviði. „Ég lít bara á þetta sem dyr. Ég opna Billy- dyrnar og loka Michael-dyrunum þegar ég er á æfingum og svo öfugt þegar ég sýni. Það er góð stemning í hópnum og við erum svo mikið saman að við erum orðnir vel tengdir.“ Söngleikurinn er fyrsta hlutverk Bjarna í atvinnuleikhúsi en hann lék aukahlutverk í kvikmyndinni Sumarbörn og hefur verið á nám- skeiðum Leikfélagi Mosfellsbæjar. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á leiklistarheiminum og ég ætla að halda áfram að mæta í prufur eftir að Billy Elliott-sýningarnar klárast. Ég hef verið að æfa fimleika sem hefur hjálpað mér mjög mikið í hlutverkinu en ég stefni á að kom- ast í landsliðið í fimleikum ein- hvern daginn.“ Þrátt fyrir að Bjarni hafi áður reynt fyrir sér í leiklistinni þá er hann nýr í dansinum. „Ég æfði hiphop-dans í einhvern tíma en hef aldrei áður dansað stepp- dans. Hann er samt ekki það erf- iður þegar maður er kominn með grunninn.“ Allir fjórir Billy-leikararnir munu koma fram á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu á laugardaginn á opnu húsi sem er velkomið öllum. gunnhildur@frettabladid.is Fjórði Billy Elliot bætist nú í hópinn Bjarni Kristbjörnsson hefur verið að æfa fyrir hlutverk Billy Elliot frá því í febrúar en hingað til hefur hann leikið Michael, besta vin Billy. EFtir að ég kom Fram í minni Fyrstu sýningu þá var hringt í ForEldra mína þar sEm FramlEiðEndurnir sögðust vilja Fá mig til þEss að æFa Fyrir hlutvErk Billy. ég var í algjöru sjokki og varð svakalEga glaður Bjarni ætlar sér stóra hluti í leiklistarheiminum í framtíðinni en hann hefur staðið sig vel í sýningunni Billy Elliot. Mynd/Anton Brink Baldvin Alan Thorarensen, Sölvi Viggósson, Hjörtur Viðar Sigurðarson og Bjarni Kristbjörnsson hafa allir staðið sig frábærlega á stóra sviði Borgarleikhússins í vetur. Mynd/Anton Brink 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 E 5 -4 A C 4 1 5 E 5 -4 9 8 8 1 5 E 5 -4 8 4 C 1 5 E 5 -4 7 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.