Fréttablaðið - 28.08.2015, Qupperneq 54
2 8 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R38 L í F i ð ∙ F R É t t A B L A ð i ð
HRAUNBORGIR GRÍMSNESI
FALLEGT SUMARHÚS
MEÐ GESTAHÚSI
Á GÓÐUM STAÐ
Sumarhúsið er 31,7 fm. að stærð, gestahús er 12,2 fm.
Samtals 43,9 fm. Sumarhúsið (1990) er fullbúið og í góðu
ástandi. Vandað gestahús, byggt 2012, er tilbúið að utan
en fokhelt að innan. Eitt svefnherbergi og svefnloft er í
sumarhúsinu. Góð timburverönd við húsið sem er ca. 90
fm. Lóðin er 0,5 hektarar og fallega gróin. Sumarhúsið er
í göngufæri við þjónustumiðstöð með sundlaug, heitum
pottum, golfvelli, minigolfi og annarri afþreyingu.
Verð: 10.900.000 kr.
Fjárfesting Fasteignasala ehf.
Sími 562 42 50 | fjarfesting@fjarfesting.is
Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is
ENDALAUST TAL OG
10 GB Á 3.990 KR.*
Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu frábært
sjónvarpsefni á fáránlega góðu verði.
Allt það besta hjá 365
*Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365
Bjarni Kristbjörnsson mun von
bráðar bætast í hóp drengjanna
sem leika Billy Elliot á stóra svið-
inu í Borgarleikhúsinu. Hann
hefur hingað til verið annar
af tveimur leikurum sem leika
Michael, sem er besti vinur Billy í
sýningunni. Hann hefur verið að
æfa fyrir nýja hlutverkið frá því í
febrúar samhliða því að leika hlut-
verk Michaels.
Alexía Björg Jóhannesdóttir,
kynningarfulltrúi Borgarleikhúss-
ins, segir að ákveðið hafi verið að
bæta við fjórða Billy leikaranum
þar sem strákarnir stækka fljótt
og það gæti þurft að hafa einn til-
búinn sem gæti tekið við keflinu í
vetur. Ekki er vitað hvenær fyrsta
sýning Bjarna verður sem Billy en
það mun gerast bráðlega.
Bjarni er aðeins 12 ára gamall
en hann fór í áheyrnarprufur fyrir
hlutverk Billy á sínum tímum en
þá var hann fingurbrotinn og í
gipsi upp á handlegginn. Það var
svo ekki fyrr en í nóvember sem
hann fékk símhringingu þar sem
honum var boðið aukahlutverk
sem besti vinur Billy, sem hann
þáði með glöðu geði. „Sá sem lék
Michael var að stækka og ég var
fenginn til þess að létta á álaginu.
Eftir að ég kom fram í minni fyrstu
sýningu þá var hringt í foreldra
mína þar sem framleiðendurnir
sögðust vilja fá mig til þess að æfa
fyrir hlutverk Billy. Ég var í algjöru
sjokki og varð svakalega glaður.“
Æfingar hafa staðið yfir í allt
sumar og þurfa strákarnir að fá frí
yfir hluta skóladagsins til þess að
komast á æfingar. „Kennararnir
mínir eru mjög jákvæðir gagnvart
þessu og þetta er ekkert mál. Ég
hef tíma til að gera heimavinnuna
þegar hinn Michael sýnir og ég
er á stand-by. Við fengum þriggja
vikna frí í sumar en annars erum
við búnir að vera á æfingum næst-
um alla daga.“
Bjarni segir það ekki vera flók-
ið að æfa eitt hlutverk en leika
annað hlutverk á sviði. „Ég lít bara
á þetta sem dyr. Ég opna Billy-
dyrnar og loka Michael-dyrunum
þegar ég er á æfingum og svo öfugt
þegar ég sýni. Það er góð stemning
í hópnum og við erum svo mikið
saman að við erum orðnir vel
tengdir.“
Söngleikurinn er fyrsta hlutverk
Bjarna í atvinnuleikhúsi en hann
lék aukahlutverk í kvikmyndinni
Sumarbörn og hefur verið á nám-
skeiðum Leikfélagi Mosfellsbæjar.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
leiklistarheiminum og ég ætla að
halda áfram að mæta í prufur eftir
að Billy Elliott-sýningarnar klárast.
Ég hef verið að æfa fimleika sem
hefur hjálpað mér mjög mikið í
hlutverkinu en ég stefni á að kom-
ast í landsliðið í fimleikum ein-
hvern daginn.“
Þrátt fyrir að Bjarni hafi áður
reynt fyrir sér í leiklistinni þá er
hann nýr í dansinum. „Ég æfði
hiphop-dans í einhvern tíma en
hef aldrei áður dansað stepp-
dans. Hann er samt ekki það erf-
iður þegar maður er kominn með
grunninn.“
Allir fjórir Billy-leikararnir
munu koma fram á stóra sviðinu í
Borgarleikhúsinu á laugardaginn á
opnu húsi sem er velkomið öllum.
gunnhildur@frettabladid.is
Fjórði Billy Elliot
bætist nú í hópinn
Bjarni Kristbjörnsson hefur verið að æfa fyrir hlutverk Billy Elliot frá
því í febrúar en hingað til hefur hann leikið Michael, besta vin Billy.
EFtir að ég kom
Fram í minni Fyrstu
sýningu þá var hringt í
ForEldra mína þar sEm
FramlEiðEndurnir sögðust
vilja Fá mig til þEss að æFa
Fyrir hlutvErk Billy. ég var
í algjöru sjokki og varð
svakalEga glaður
Bjarni ætlar sér stóra hluti í leiklistarheiminum í framtíðinni en hann hefur staðið sig vel í sýningunni Billy Elliot. Mynd/Anton Brink
Baldvin Alan Thorarensen, Sölvi Viggósson, Hjörtur Viðar Sigurðarson og Bjarni
Kristbjörnsson hafa allir staðið sig frábærlega á stóra sviði Borgarleikhússins í
vetur. Mynd/Anton Brink
2
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
E
5
-4
A
C
4
1
5
E
5
-4
9
8
8
1
5
E
5
-4
8
4
C
1
5
E
5
-4
7
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K