Fréttablaðið - 07.09.2015, Page 13

Fréttablaðið - 07.09.2015, Page 13
Frá grunni að viðurkenndum bókara Það hefur vakið athygli hversu margir nemendur okkar hafa fengið vinnu eftir að hafa lokið bókhaldsnámi. Viðurkennt bókaranám er bæði skemmtileg og krefjandi námsbraut sem býr nemendur undir próf sem leiðir til vottunar frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu sem Viðurkenndur bókari. Helstu námsgreinar Verslunarreikningur - 24 stundir Excel-töflureiknir - 30 stundir Bókhald - 36 stundir Tölvubókhald í Navision - 54 stundir Excel við áætlanagerð - 30 stundir Launakerfi - 18 stundir Lánardrottnar og viðskiptamenn - 15 stundir Fyrningar - 15 stundir Virðisaukaskattur - 9 stundir Lán - 21 stundir Gerð og greining ársreikninga - 36 stundir Lokaverkefni - 24 stundir Skattaskil - 18 stundir Reiknishald, viðbætur - 36 stundir Upplýsingatækni, viðbætur - 6 stundir Upprifjun fyrir próf - 42 stundir Lengd námskeiðs: 2 annir - 414 kennslustundir - kennt tvisvar í viku Verð: 446.000 kr. - Hægt er að dreifa greiðslum Næstu námskeið: Morgunnámskeiðið byrjar 30. sept. Kvöldnámskeiðin byrja 21. sept. og 1. okt. VIÐURKENNT BÓKARANÁM Með hverju viðtalinu sem birtist við forsætisráð­herrann virðist hann færast fjær því að ætla að taka á móti fleiri flóttamönnum frá Sýrlandi en þessum fimmtíu sem talað var um; hann er á flótta undan fyrir­ heitunum sem gefin voru fyrst þegar bylgja samúðar reis í samfélaginu með sýrlensku flóttafólki. Undankomubrella? Allt í einu er hann farinn að tjá sig með vífilengjum; tala um að ekki megi beina um of athygli að því fólki sem komið er til Evrópu til að leita ásjár – það dragi athyglina frá því fólki sem eigi um sárt að binda í Sýr­ landi sjálfu. Ekki eigi með öðrum orðum að sinna þeim sem til okkar leita því að það gæti orðið til að draga athygli frá vanda þeirra sem ekki hafa enn komist til að leita til okkar. Vonandi hef ég misskilið hann en svona tal virkar á mann eins og hann sjái fyrir sér að Íslendingar eigi að láta þar við sitja að einbeita sér að því að styðja þau öfl sem líkleg séu til að koma á friði í Sýrlandi, jafnvel láta fé af hendi rakna. Það er að sjálf­ sögðu rétt – en útilokar ekki hitt, að taka á móti fleira flóttafólki. Þetta virkar eins og undankomubrella, svolítið eins og að neita manni með brunasár eftir eldsvoða um fyrstu­ hjálp á þeirri forsendu að nú ríði á að slökkva eldinn. Það tekur því alltaf að bjarga mannslífi. Fjármálaráðherrann hljómaði að vanda eins og dauflegt bergmál af síðasta leiðara Morgunblaðsins – en á öðrum ráðherrum mátti skilja að meiri myndarskapur í móttöku flóttamanna jafngilti „yfirboðum“, eins og málið snúist um eitthvað annað en þau mannslíf sem í húfi eru og bjarga má. Hér er reyndar rétt að undanskilja Eygló Harðardóttur, vel­ ferðarráðherrann í ríkisstjórninni, sem augljóslega er öll af vilja gerð í þessu máli eins og mörgum öðrum þar sem hún reynir að láta gott af sér leiða. Fólk að drukkna ha ha ha … Við þurfum að tala aðeins um Morgun blaðið. Auðvitað ríkir hér prentfrelsi og auðvitað mega allir kaupa og lesa Moggann sem það vilja – þó það nú væri. En það ber heldur engum skylda til að hafa velþóknun á því sem streymir frá þessari aflstöð neikvæðni og hleypi­ dóma. Í Morgunblaðinu er sér­ stakur teiknari hafður í því að búa til gamanmál að hætti hússins, og hafa seinustu skrýtlurnar fjallað um eymd sýrlenskra flóttamanna, sökkvandi skip, drukknandi fólk. Sumir verja þessar myndir með vísan til þess að viðkomandi megi þetta víst – eins og það verði eitt­ hvað fyndnara við það – og leggja þá að jöfnu skopteikningar með gríni um hugmyndafræði og kennisetn­ ingar á borð við íslam og svo þetta: að gera gys að allslausu fólki á flótta til að bjarga lífi sínu. En þetta er ein­ mitt ekki sambærilegt: það má og á að gera grín að öllum hugmyndum sem mennirnir láta sér detta í hug, mannlegar hugmyndir eru aldrei heilagar, en deyjandi fólk er ekki sér­ lega heppilegur hláturvaki. Meðal þeirra verkefna sem téður teiknari innti af hendi var að búa til fyndna mynd um að það fé sem rennur til flóttafólks sé tekið af því fé sem ella rynni til aldraðra og öryrkja og annarra heilbrigðismála, og var árangurinn í fyndninni eins og til var stofnað. En maður verður stundum var við þetta sjónarmið: erum við nokkuð aflögufær hér? Er ekki nær að við hugsum um þá sem hér á meðal okkar eiga um sárt að binda? Þar með virðist gert ráð fyrir fastri upp­ hæð handa bágstöddum sem sé til skiptanna, sem í sjálfu sér er fáránleg hugmynd. Sumir sitja og reikna baki brotnu þann ógurlega kostnað sem hljótist af því að bjarga erlendum mannslífum og veita fólki hér hæli, og er eins og aldrei hvarfli að neinum að þetta fólk kunni jafnvel eitthvað fyrir sér sem gagnast gæti öðrum og samfélaginu í heild. Aldrei virðist neinum af þessum áhyggjufullu reiknimeisturum detta í hug að flóttamaður dagsins kunni að vera logsuðumaður morgundagsins eða læknir, skúringameistari eða lista­ maður. Nú eða smiður, eins og hælis­ leitandinn Jósep, heitmaður Maríu. Fólk lítur almennt ekki á það sem lífsstarf eða köllun að vera hælis­ leitandi, eiga sér ekkert skjól. Það vill upp til hópa gera eitthvað, skapa sér heimili og tilveru, finna virði sitt og gildi í framtaki. Sjálfur hef ég aldrei skilið þá hugmynd að umsvif einnar manneskju séu til þess fallin að þrengja að mínum: að pólskur pylsu­ gerðarmaður standi minni matar­ gerð á einhvern hátt fyrir þrifum eða verkfræðingur frá Erítreu sé til þess fallinn að varpa skugga á hugsanlegt framlag mitt til verkfræðinnar. Fái fólk hér vinnu og þrífist það hér – sem alls ekki er sjálfgefið, í fásinninu og myrkrinu – þá nýtist það sam­ félaginu, burtséð frá því hvort það er leiðinlegt eða skemmtilegt, vont eða gott í málfræði, trúir á þennan guðinn eða hinn, er með langa þumalputta eða stutta – eða jafnvel enga – brúna húð eða föla. Það tekur því alltaf að bjarga mannslífi. Það gefur líka þeim sem réttir fram hjálparhönd tilfinningu fyrir eigin virði; og samfélagslegt átak til að taka á móti flóttafólki gefur okkur öllum þá kennd að hér ríki að minnsta kosti stundum og í sumum tilvikum, mannúð og kær­ leikur. Og kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. Það tekur því alltaf … Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Ég, ásamt fleirum, hef rekið mig á ýmislegt sem þarf að breyta í geð­ heilbrigðiskerfinu og mætti nýta sér meira sjónarmið fólks sem er að glíma við geðraskanir. Af hverju eru ekki fleiri batafulltrúar sem hafa glímt við geðraskanir að vinna á geð­ deildum? Einn á Landspítalanum en enginn á Akureyri. Ég hef kallað eftir því að bata­ fulltrúi fólks með geðraskanir verði ráðinn á geðdeild SAk á Akureyri sem getur verið milliliður skjólstæðinga og aðstandenda. Við vitum að það getur verið erfitt að leita sér aðstoðar og oft og tíðum standa skjólstæðingar og aðstandendur ráðþrota og vita ekki hvert þau geta leitað og hvaða úrræði standa til boða. Aðstandendur hafa oft og tíðum verið út undan og staðið algjörlega ráðþrota í einskismanns­ landi með veikan einstakling sem þarf hjálp. Grófin – geðverndarmiðstöð mun vera með 2­3 fræðslukvöld með fag­ mönnum fram að áramótum fyrir þau sem hafa áhuga á geðheilbrigðis­ málum og hvað getur hjálpað. Von­ andi munu aðstandendur líka nýta sér þetta tækifæri en þetta verður auglýst vel og vandlega þegar nær dregur. Nú er verið að móta nýja geðheil­ brigðisstefnu en verður hlustað á félagasamtök og þeirra sýn á kerfið? Hvernig vinnur kerfið með félagasam­ tökum og er fólk látið vita af úrræðum sem eru í boði í samfélaginu? Búsetu­ deild á Akureyri er að gera góða hluti og sama má segja um Lautina með sína skjólstæðinga, enda nauðsynlegt að hafa mismunandi úrræði í sam­ félaginu. Stjórnvöld Er félagssamtökum mismunað á höfuðborgarsvæðinu eða eftir lands­ hlutum? spyr ég stjórnvöld. Hugarafl í Reykjavík fer í alla grunn­ og fram­ haldsskóla höfuðborgarsvæðis og víðar með geðfræðslu sem hefur hjálp­ að ungmennum að leita sér aðstoðar. Grófin – geðverndarmiðstöð á Akur­ eyri stefnir að því að gera það sama, auk þess sem kennarar og starfsfólk skólanna munu bætast við. Gaman er að segja frá því að við erum þegar byrjuð með fræðslu fyrir kennara og starfsfólk, sem heppnaðist mjög vel og hlökkum við til að fræða fleiri skóla ef viðtökur verða eins og þessar. Við gerum þetta í góðu samstarfi við forvarnarfulltrúa Akureyrar­ bæjar enda ekki síður nauðsynlegar forvarnir en vímuefnaforvarnir. For­ eldrum mun bjóðast fræðsla, enda er nauðsynlegt að bregðast við sem fyrst í staðinn fyrir að fela vandann, sem hjálpar engum og getur haft alvarlegar afleiðingar. Við þurfum sálfræðinga í hvern grunn­ og framhaldsskóla sem getur bjargað mörgum og gefið þess­ um börnum og ungmennum tækifæri á að eignast betra líf og lífsgæði. Lítið sjálfstraust og sjálfsvirðing, brothætt taugakerfi, skömm, sjálfs­ vígshugsanir, sjálfshatur, stygglyndi, reiði og  félagsleg einangrun eru oft fylgifiskar geðraskana. Oft er vímu­ efnanotkun undirrót geðraskana og það verður samfélagið að viðurkenna. Frá 13 ára aldri þangað til ég var 38 ára hafði ég hugsað um sjálfsvíg næstum því á hverjum degi en sem betur fer lét ég ekki verða af því. Stjórnvöld virðast líta fram hjá þeim hörmungum sem tíð sjálfsvíg og tilraunir til sjálfsvíga eru hjá fólki með geðraskanir. Það er mjög sorglegt þegar að meðaltali eru um 36 Íslendingar á ári sem falla fyrir eigin hendi, svo að ekki sé talað um allar þær tilraunir sem eru gerðar. Hvað þarf til að hvert mannslíf skipti máli? Hvað þarf til að hvert mannslíf skipti máli? Lítið sjálfstraust og sjálfsvirðing, brothætt tauga- kerfi, skömm, sjálfsvígshugs- anir, sjálfshatur, stygglyndi, reiði og félagsleg einangrun eru oft fylgifiskar geðraskana. Fólk lítur almennt ekki á það sem lífsstarf eða köllun að vera hælis- leitandi, eiga sér ekkert skjól. Það vill upp til hópa gera eitthvað, skapa sér heimili og tilveru, finna virði sitt og gildi í framtaki. Eymundur Eymundsson ráðgjafi og í bata af geðröskunum S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M Á N U D A G U R 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 5 0 6 -0 9 -2 0 1 5 2 3 :1 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 F E -3 D 6 C 1 5 F E -3 C 3 0 1 5 F E -3 A F 4 1 5 F E -3 9 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.