Fréttablaðið - 12.10.2015, Síða 8

Fréttablaðið - 12.10.2015, Síða 8
PI PA R\ TB W A • S ÍA Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN Sími 587 2123 FJÖRÐUR Sími 555 4789 SELFOSS Sími 482 3949 15-50% afsláttur af umgjörðum ÚTSALA StjórnSýSla Opinberum störfum á Vesturlandi hefur fækkað um nærri 23 stöðugildi á síðustu tveimur árum þrátt fyrir þá stefnu stjórnvalda að fjölga störfum í landsbyggðunum. Haraldur Bene- diktsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, segir ekki hafa gengið nógu vel að flytja verkefni út á land og margar stofnanir vítt og breitt um landið geti auðveldlega tekið við fleiri verkefnum og aukið við sig mannskap. Vífill Karlsson, forstöðumaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, hefur tekið saman hagvísi fyrir Vest- urland. Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir fjölgun opinberra stofn- ana á Vesturlandi hefur störfum þar fækkað á einungis tveimur árum. Störfum fækkaði mest á vegum mennta- og menningarmálaráðu- neytis eða um rúmlega 46 stöðugildi sem helst verður rakið til þriggja framhaldsskóla og Landbúnaðar- háskólans á Hvanneyri. „Okkur hefur ekki gengið nægi- lega vel að flytja verkefni út á land. Að mínu mati ættum við að setja okkur skýr markmið um að 5-10 prósent starfa hins opinbera verði skilgreind án staðsetningar. Þar er hægt að nýta starfsmannaveltu til að fjölga störfum án staðsetning- ar,“ segir Haraldur. „Við erum ekki aðeins að sjá þetta á Vesturlandi heldur vítt og breitt um landið. Ég geri mér hins vegar miklar vonir um að við náum að fjölga störfum, jafnt opinberum sem og í einkageiranum á næstu árum og munum vinna að því verkefni. Við eigum að búa til sem fjölbreyttust störf alls staðar á landinu.“ Einnig kemur fram í hagvísi Vífils Karlssonar að af þeim 10 krónum sem ríkissjóður fær í tekjur af Vest- urlandi fara aðeins sjö krónur til baka á svæðið. Því sé að mati Vífils ákveðin slagsíða í „ríkisfjárjöfnuði“ svæðisins eins og hann orðar það. „Þetta er grafalvarlegt ástand og óviðunandi að þetta sé að gerast þegar menn halda stöðugt áfram að tala um fjölgun starfa á lands- byggðinni,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona VG. „Síðan gerist þetta hægt og hljótt á bak við tjöldin. Við þurfum að taka þetta alvarlega og stjórnarmeirihlutinn verður að skoða tillögur sínar við fjárlagagerð með þessar staðreynd- ir til hliðsjónar.“ sveinn@frettabladid.is Færri störf þótt stefnan sé að fjölga störfum Störfum hins opinbera á Vesturlandi hefur fækkað um 23 á tveimur árum. „Óviðunandi ástand,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG. Mest fækkun stöðugilda hins opinbera á svæðinu síðustu tvö ár hefur verið í Borgarbyggð. Mestu munar á sviði menntamála. FréttaBlaðið/VilhelM náttúruvernd Landvernd fagnar því að náttúruvernd sé gert hátt undir höfði í nýrri ferðamálastefnu sem kynnt var fyrir helgi. Að mati samtakanna felst í stefnunni viðurkenning á að nátt- úran  sé hornsteinn ferðaþjónust- unnar og að hana beri að vernda. Telur Landvernd nú þurfa að stíga skrefið til fulls og sameina starfsemi níu stjórnsýslueininga sem hafa umsjón með landi í eigu ríkisins og að fulltrúi náttúruverndarsamtaka ætti að eiga sæti í stjórnstöð ferða- mála til að auka þekkingu og aðhald í náttúruverndarmálum. Í nýrri stefnu ferðamála er lagt til að umsjá þjóðgarða, frið- lýstra svæða og þjóðlendna verði á einum stað í framtíðinni til að tryggja skilvirka stjórnsýslu, nátt- úruvernd og skerpa á rekstrarfor- sendum. „Landvernd fagnar þessu sem fyrsta skrefi en við viljum ganga enn lengra í að sameina þá opinberu aðila sem fara með umsjá lands,“ segir Guðmundur Ingi Guð- brandsson, framkvæmdastjóri Landverndar. Hann bendir á að umsjá og stjórn- sýslu verndarsvæða og lands í eigu ríkisins sé núna fyrir komið á níu stöðum í stjórnsýslunni. „Og því er best að koma þessu fyrir á einni hendi til að tryggja þessa sömu þætti og ný ferðamálastefna leggur áherslu á,“ segir hann. – sa Fagna nýrri stefnu í náttúruvernd Landvernd fagnar þessu sem fyrsta skrefi en við viljum ganga enn lengra. Guðmundur Ingi Guðbrandsson framkvæmdastjóri Landverndar 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 M á n u d a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 0 -9 C 5 0 1 6 C 0 -9 B 1 4 1 6 C 0 -9 9 D 8 1 6 C 0 -9 8 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 1 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.