Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2015, Blaðsíða 6
6
Aðalbakarí við Aðalgötu á Siglufirði
var stækkað nýverið á glæsilegan hátt
til gleði og ánægju allra viðskiptavina.
Hjónin Jakob Kárason og Elín Þór
Björnsdóttir eiga heiðurinn af þessu.
Að öllum vörum ólöstuðum eru
sírópskökurnar vinsælastar.
Byrjunina á ævintýrinu má
rekja til þess að þau keyptu
neðri hæðina við Aðalgötu
28, þar sem bakaríið er,
af Leó Ólasyni árið 1995.
Opnuðu bakarí þar um
verslunarmannahelgina
sama ár. Þá störfuðu þar
fjórir starfsmenn. Á þessum
tíma var annað bakarí
starfandi og því erfitt að
komast inn á lítinn markað.
Reksturinn var því erfiður fyrstu árin.
Jakob var við nám í bakaraiðn
í bakaradeild Menntaskólans í
Kópavogi á þessum tíma en verklegi
meistarinn var Ingimar Láka í gamla
Leifsbakaríi.
Það hafði lengi blundað í þeim
hjónum að fara út í atvinnurekstur og
þegar Jakob ákvað að læra bakaraiðn lá
það beint við að hefja rekstur.
Þess má geta að Elín bjó yfir mikilli
reynslu en hún hefur unnið í
bakaríi frá 15 ára aldri með
hléum. Fyrstu árin seldu þau
eigöngu eigin framleiðsluvörur
í bakaríinu en smám saman hefur
fyrirtækið verið að þróast og settu þau
á stofn veisluþjónustu sem hefur fallið
mjög vel að rekstrinum.
Með tilkomu Héðinsfjarðarganga
má svo segja að algjör kúvending hafi
orðið á rekstri bakarísins. Eftir að hafa
þjónustað Samkaupsbúðina á Siglufirði í
fjölda mörg ár reyndist þeim auðvelt að
komast í viðskipti við Samkaupsbúðina
á Ólafsfirði og síðan Dalvík. Þegar hér er
komið sögu var bakaríið löngu sprungið
og vantaði tilfinnanlega stærra húsnæði
auk þess sem þau höfðu hugmyndir um
að breyta rekstri fyrirtækisins.
Það var síðan árið 2014 sem
þau festu kaup á Aðalgötu 26,
Aðalbúðinni gömlu, og opnuðu
síðan verslun og kaffihús þar
ásamt litlum sal þar sem meðal
annars eru beinar útsendingar
af tjaldi fyrir knattleiki og aðrar
uppákomur.
Í fermetrum talið stækkaði rýmið um
meira en helming. Í dag tæplega ári síðar
er húsnæðið þegar orðið of lítið undir
reksturinn. Fastir starfsmenn eru núna
níu auk lausafólks sem er á bilinu 5-6.
„Við eins og allir aðrir í þjónustu á
Siglufirði finnum fyrir mikilli aukningu
ferðamanna, bæði innlendra og
erlendra. Siglufjörður er og hefur verið
mikið í umræðunni fyrir sögu sína og
marga spennandi hluti í uppbyggingu
ferðamála sem hefur skilað sér til allra
þjónustuaðila í bænum“ segir Jakob að
lokum.
Ljósmyndari: Kristján L.
Möller.
Ljósmyndari: Kristján L. Möller.
Aðalbakarí Siglufirði
Ljósmyndari: Kristján L. Möller.