Breiðholtsblaðið - 01.04.2006, Page 8
APRÍL 20068 Breiðholtsblaðið
Þegar Sigþrúður Ingimundar-
dóttir, hjúkrunarfræðingur, innti
mig eftir því hvort ég tæki áskor-
un hennar um að segja Breið-
hylltingum frá því hvað ég hvað
ég væri að lesa um þessar mund-
ir jánkaði ég því. Fór ég þá að
gera mér grein fyrir hvað þessi
vetur hefur verið einhliða í
bókavali.
„Krimmar“ hafa verið aðallega
á náttborðinu og hafa Agatha,
Arnaldur og Viktor Ingólfssson
verið þar efst í bunkanum.
Agöthu Cristie og Arnald Ind-
riðason kannast flestir við sem
hafa gaman af glæpasögum, en
Viktor Ingólfsson er kannski ekki
eins vel þekktur. Ég hef lesið allar
bækur hans sem komið hafa út og
líkað vel þótt Flateyjargátan stan-
di samt upp úr.
Ég ákvað að bæta úr „Krimma“
lestrinum, brá mér í sólarlandafrí
og tók nýjustu bók Jóns Kal-
manns, Sumarljós og svo kemur
nóttin, með mér og hafði mjög
gaman af. Hef ég ekki áður lesið
bók eftir Jón. Mannlýsingar hans
og frásögn af mannlífinu í sveita-
þorpi og sveitinni þar í kring er
ákaflega lifandi og skemmtileg.
Ætla mætti að hann hafi verið í
sveit eða alist upp í slíku um-
hverfi.
Eitt vandamál var þó hjá mér
við lesturinn, og voru það þær
mörgu persónur sem koma fyrir í
sögunni að ég þurfti alltaf að vera
að fletta aftur í bókinni. Gott hefði
verið að hafa persónuskrá eins og
stundum er gert.
Í sólarfríinu las ég samt sem
áður enn einn „krimmann“. Ljúf
er sumarnótt í Færeyjum, eftir
færeyska höfundinn Jógvan Isak-
sen. Var hún hin skemmtilegasta
lesning og kannski ennfrekar af
því að ég kom til Færeyja í fyrsta
skipti fyrir 2 1/2 ári og las þessa
bók því með öðrum augum en ég
annars hefði gert.
Ein er sú bók sem lendir oft á
náttborðinu mínu og mig langar
að minnast á. Heitir hún Ég lifi og
er saga pólska Gyðingsins Martin
Gray, skráð af Max Gallo.
Segir hún á áhrifaríkan hátt frá
sögu hans gegnum stríðið, lífinu í
gettóinu í Varsjá og baráttunni
fyrir því að halda lífi. Hann missir
foreldra og bræður, en kemst til
ömmu sinnar í Ameríku. Eins og
sönnum Gyðing tekst honum að
komast áfram í lífinu og verða
ríkur. Hann kynnist konu og eign-
ast fjölskyldu á ný. Þau flytja til
Suður-Frakklands og lifa þar ein-
földu og heilbrigðu lífi, eignast
þrjú heilbrigð börn og allt virðist
ganga þeim í hag. En á einum degi
í október árið 1970 missir hann
þau öll frá sér í miklum skógar-
eldum. Svo þegar uppi er staðið
er maður eiginlega hissa á að
hann skuli lifa þrátt fyrir allar þær
hörmungar sem hann hefur geng-
ið í gegnum.
Ég ætla að skora á dótturdóttur
mína og nöfnu Þóru Björgu Sig-
marsdóttur, nemanda í 10. bekk
Ölduselsskóla og segja okkur frá
því hvað hún er að lesa, fyrir utan
skólabækurnar. Hefur hún alla tíð
lesið mikið og fjölbreytt efni.
Hvaða bók/bækur ertu að lesa?
borgarblod.is
Valur Sveinbjörnsson sýnir
málverk í Boganum í Gerðu-
bergi um þessar mundir. Valur
er frístundamálari en naut til-
sagnar í myndlist í Myndlista- og
handíðaskóla Íslands á yngri
árum. Hann hefur einnig starfað
sem vélvirki, unnið um borð á
togurum og einnig varðskipun-
um. Um fimmtugsaldur fór hann
að fást við að mála af fullum
krafti á nýjan leik og sækir efni-
við að hluta til sjómennskunnar.
Sýningin skiptist nokkuð í
tvennt. Annars vegar í andlits-
myndir þar sem hann dregur
gjarnan fram hið gamansama í
fari manneskjunnar. Í ýktum and-
listdráttum fær hver einstakling-
ur sitt viðmót eins og listamaður-
inn hefur skynjað en sökum þess
Valur beitir stílfæringu til þess að
ná auknum og stundum nokkuð
yfirdrifnum áhrifum fram og því
verður erfiðara fyrir áhorfandann
að fylgja honum eftir og átta sig á
hvert hann er að fara. Til þess
hefði raunverulega þurft að þekk-
ja til viðkomandi einstaklinga að
einhverju leyti. En hvað sem því
líður verða karlarnir hans einkar
lifandi og eftirminnilegir. Þeir gefa
sitthvað af sér hver með sínu lagi
rétt eins og ætla má að fjölbreytt-
ur hópur skipsfélaga hafi gert á
langri siglingaleið. Um borð eru
menn nánari og kynnast með öðr-
um hætti en annarsstaðar. Þess-
um áhrifum er Valur að skila í
myndverkum sínum.
Hins vegar sýnir Valur málverk
er eiga sér ýmsar uppsprettur
þótt breytilegt landslag liggi víð-
ast að baki mótívum hans. Hann
hefur tileinkað sér hina óhlut-
bundnu aðferð greinilega undir
áhrifum frá abstrakt tímabilinu og
áhrifum þess og nýtir rúm þess
og möguleika til þess að túlka
myndir er eiga sér upphaf í nátt-
úrunni. Hann fylgir þó ekki neinni
fastmótaðri stefnu eða aðferð en
fer þess í stað nokkuð vítt um í
efnismeðferð sinni. Sumar mynda
hans fylgja formum strangflatar-
ins meira en aðrar þar sem að-
eins gætir naviískra áhrifa og
sumstaðar skreytinga inni í
myndfletinum sem ekki eiga alltaf
fulla samleið með myndefninu og
túlkun hans að öðru leyti. Sterk-
ustu hliðar Vals sem myndlistar-
manns liggja þó í hinu óhlut-
bundna málverki en andlitsmynd-
ir hans eru jafnan svo hlaðnar
persónulegum tilfinningum að
þær segja aðeins lítið um hann
sem andlitsmálara. Hann er frem-
ur að mála tilfinningar sínar gagn-
vart viðkomandi mótívum en að
hið eiginlega portrett sé í fyrir-
rúmi.
Valur Sveinbjörnsson í
Boganum í Gerðubergi
Áhrifa sjómennskunnar gætir
víða í verkum Vals Sveinbjörns-
sonar.
Þóra Þórsdóttir
Frístundaheimilin í Breiðholti
eru í dag fimm talsins. Auk þess
er í gangi tilraunaverkefni með
sérstakt frístundaheimili ein-
göngu ætlað fyrir þriðja og
fjórða bekk úr Fella- og Hóla-
brekkuskóla sem staðsett er í frí-
stundamiðstöðinni Miðbergi.
Til þess að bjóða upp á sem
fjölbreyttast starf með börnunum
höfum við tekið upp ýmsar nýj-
ungar svo sem Púlsa og Dóta-
banka. Púlsar eru starfsmanna-
skipti á milli frístundaheimila þar
sem einu sinni í viku kemur nýr
starfsmaður og kynnir eitthvað
nýtt fyrir börnunum. Sem dæmi
má taka að í ár bauð Frissi fríski,
frístundaheimilið í Ölduselsskóla
upp á skutlugerð og Denni dæma-
lausi í Seljaskóla bauð upp á
páskaföndur.
Dótabankinn er alveg nýr af
nálinni og var hrint í framkvæmd
nú um mánaðarmótin. Þá fjárfesti
hvert frístundaheimili í einhverju
skemmtilegu dóti sem fer á milli
heimila og auðgar frístund barn-
anna. Að lokum er vert að minn-
ast á skráning fyrir næsta ár í frí-
stund stendur nú yfir á
www.reykjavik.com
Púlsar og dótabanki
hjá frístundaheimilunum