Breiðholtsblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 12
Málefni eldri borgara, lækkun
leikskólagjalda, fleiri lóðir og
fegrunarátak er á meðal þess
sem nýr meirihluti í borgarstjórn
Reykjavíkurborgar leggur áherslu
á að unnið verði að á næstunni.
Hugsum stórt, horfum langt og
byrjum strax er yfirskrift þeirra
málefnaáherslna sem lagðar hafa
verið fram. Þar segir m.a. að
hefja eigi undirbúning að bygg-
ingu 300 nýrra leigu og þjónustuí-
búða fyrir aldraða á kjörtímabil-
inu. Áætlað er að bæta heima-
þjónustu og fjölga dagvistarrým-
um auk þess sem samráðshópur
um málefni eldri borgara er að
taka til starfa.
Lækkun leikskólagjalda
og samningar við dagfor-
eldra
Af áherslum í fjölskyldumálum
má nefna lækkun leikskólagjalda
um 25% 1. september næst kom-
andi auk þess sem eitt fjölskyldu-
gjald verður tekið í notkun. Þá er
áformað að efna til viðræðna við
ríkisvaldið um mögulega þátt-
töku í fjármögnun á frekari lækk-
un leikskólagjalda. Ætlunin er að
leita leiða til að brúa bilið frá því
fæðingarorlofi lýkur og þar til
leikskóli hefst og að ganga til
samninga við dagforeldra um
stuðning til að tryggja framboð
þjónustu þeirra. Hefja á undir-
búning að stofnun smábarna-
deilda við minnst einn leikskóla í
hverju hverfi og gefa á öllum
börnum á grunnskólastigi kost á
frístundakorti í framhaldi af við-
ræðum við íþróttafélög og félaga-
samtök um tilhögun þess hvernig
börnin notfæri sér kortin. Þá er
ákveðið að leggja fram fram-
kvæmdaáætlun um samræmingu
skóla- og tómstundastarfs strax í
haust.
Útideild aftur til starfa
Hefja á viðræður við lögreglu-
yfirvöld um aukið öryggi í borg-
inni í sumar með það fyrir augum
að útideild taki aftur til starfa og
áhersla á forvarnir verði aukin.
Vinna á áætlun um endurbætur á
öllum skólalóðum og á hún að
liggja fyrir þegar á komandi
hausti. Þá er áformað að grunn-
skólum í borginni og foreldrafé-
lögum verði kynntir kostir þess
að taka upp skólafatnað til þess
að efla samstöðu, draga úr einelti
og mismunun vegna efnahags.
Aukið framboð og
fjölbreytni lóða
Strax á að hefjast handa við að
auka framboð og fjölbreytni lóða
og leggja sérstaka áherslu á lóðir
fyrir sérbýli. Einnig á að hefja
vinnu við skipulag nýrra hverfa; í
Geldinganesi, Úlfarsfelli, Örfirisey
og í Vatnsmýri. Afnema á uppboð
á lóðum sem almenna reglu í ný-
byggingarhverfum og gert er ráð
fyrir að áætlun um uppbyggingu í
miðborginni liggi fyrir á komandi
hausti.
Ákvörðun í flugvallar-
málinu á kjörtímabilinu
Hvað stóru verkefnin varðar þá
er gert ráð fyrir að ákvörðun um
framtíðarstaðsetningu innan-
landsflugvallar verði tekin á kjör-
tímabilinu og lega Sundabrautar
verði ákveðin á þessu ári og
hönnun vegarins og framkvæmd-
ir geti hafist í kjölfarið. Fyrirhug-
að er að ljúka byggingu mislægra
gatnamóta á mótum Kringlumýr-
arbrautar og Miklabrautar á kjör-
tímabilinu.
Hreinsun og ókeypis í
strætó
Við þetta má bæta að hefja á
hreinsunar- og fegrunarátak í
hverfum borgarinnar nú í júlí og
að aðgerðir verði hafnar til að
fjölga tækifærum íbúa til útivistar
í borginni hefjast strax í sumar.
Þá er áformað að gerð verði til-
raun til að efla almenningssam-
göngur með ókeypis strætóferð-
um fyrir tiltekna hópa.
JÚLÍ 200612 Breiðholtsblaðið
Smiðjuvegi
Hér
er ég!
Áhersla lögð á unga og aldna
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarstjóri.
Reykjavíkurflugvöllur séður úr Perlunni. Gert ráð fyrir að ákvörðun
um framtíðarstaðsetningu innanlandsflugvallar verði tekin á kjör-
tímabilinu.
Uppbygging strandbyggða og miðborgar er á verkefnalista nýs
borgarstjórnarmeirihluta. Þarna sést úr Ánanaustum í átt að Mýrar-
götu þar sem breyta á iðnaðarsvæði í íbúðabyggð.
Úr Geldingarnesi þar sem fyrirhugað er að næsta borgarhverfi muni rísa.
Golfkennsla
Nökkvi Gunnarsson
Meðlimur hjá USGTF og IPGA
UNITED STATES GOLF TEACHERS FEDERATION
Einkakennsla og hópar
Upplýsingar í síma 893 4022
Netsaga.is