Breiðholtsblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 14
Á hverju sumri taka unglingar
úr Breiðholti þátt í starfi Vinnu-
skóla Reykjavíkur. Störf þeirra
eru margvísleg og sinna þeir flest-
ir ýmiss konar fegrun á borgar-
landinu svo og í Heiðmörkinni. Í
ár eru nokkur sprotaverkefni í
gangi innan Vinnuskólans en svo
kallast nýsköpunarverkefni skól-
ans. Eitt þessara verkefna er svo-
kallaður umhverfishópur sem
staðsettur er í Félagsmiðstöðinni
Miðbergi. Í hópnum er nemendur
víðs vegar að úr Breiðholtinu og
sáu grunnskólarnir í hverfinu um
að tilnefna þrjá til fjóra áhuga-
sama nemendur í hópinn. Mið-
berg leggur til húsnæði og að-
stöðu fyrir hópinn, enda er hér
um að ræða samstarfsverkefni
Vinnuskólans, félagsmiðstöðvar-
innar og Þjónustumiðstöðvarinn-
ar í Breiðholti.
Að stuðla að bættu
Breiðholti
Markmið verkefnisins er að
gefa hópnum færi á að taka
ábyrgð á umhverfi sínu og koma
með tillögur til úrbóta og brydda
um leið upp á skemmtilegum nýj-
ungum. Í þessu augnamiði hefur
hópurinn samráð við ráðandi að-
ila í hverfinu um heilladrjúgar að-
gerðir í umhverfismálum Breið-
holtsins. Hópurinn á samstarf við
Þjónustumiðstöð Breiðholts og í
sameiningu vinna þessir aðilar að
bættu umhverfi í íbúðarhverfinu.
Tilkoma umhverfishópsins rímar
afar vel við hreinsunarátak borg-
arstjórnar, enda er markmið
beggja aðila að stuðla að bættu
Breiðholti. Á dögunum heimsótti
Gísli Marteinn Baldursson, for-
maður Umhverfisráðs Reykjavík-
ur, hópinn í starfsaðstöðu hans í
Miðbergi og hlýddi á hugmyndir
krakkanna. Á fundinum spunnust
fjörugar umræður um hvað betur
mætti fara í ásýnd hverfisins og
féll Gísli vel inn í hópinn, enda
fæddur og uppalinn í Efra-Breið-
holti. Í lok fundar bauð hann
hópnum að koma til fundar við
Umhverfisráð til að kynna hug-
myndir sínar og var sá fundur
haldinn hinn 12. júní.
Einkennislitur í stað
drunga og grámyglu
Viðfangsefni hópsins hafa verið
af ýmsum toga. Fyrstu dagana
unnu nemendur ákveðna hug-
myndavinnu um hverju þeir vilja
breyta varðandi ásýnd hverfisins.
Það var samdóma álit krakkanna
að þeim þætti of mikil drungi og
grámygla einkenna marga staði í
Breiðholti. Þeir voru sammála um
að eitthvað þyrfti að gera varð-
andi umhverfið við Arnarbakka
og í grennd við skátaheimilið við
Gerðuberg. Til að draga úr þess-
ari grámósku í hverfinu vilja nem-
endur auka litafjölbreytni og sem
dæmi má nefna vilja þeir velja
ákveðinn einkennislit fyrir hverfið
sem nota mætti á lokunarhlið
gatna, tengikassa, ruslakassa, í
undirgöngum og ef til vill á fleiri
stöðum. Nemendurnir voru mjög
óánægðir með útlit undirgangna
sem flest voru máluð í gráum lit
sem siðan þakinn öðrum gráum
lit til að mála yfir veggjakrot. Hug-
mynd krakkanna er sú að hvert
borgarhverfi Reykjavíkur eigi sér
ákveðinn einkennislit. Ljóst er að
ekki er samstaða innan borgar-
kerfisins um allar þessar hug-
myndir, en það er von unga fólks-
ins að hugmyndir þeirra verði vís-
ir að einhverri breytingu, og hafa
kjörnir fulltrúar borgarinnar sýnt
hugmyndunum mikinn áhuga.
Bekkjarsmíði úr
íslenskum viði
Auk þessarar hugmyndavinnu
sinna krakarnir í hópnum hefð-
bundnum vinnuskólaverkum eins
og snyrtingu og umhirðu opinna
svæða. Einnig hafa þeir fengist
við bekkjasmíði úr íslenskum viði
sem fenginn er úr Heiðmörk og er
ætlunin að smíða bekki sem stað-
settir verða í Elliðaárdalnum. Það
er gaman að vita til þess að rúm-
lega hálfri öld eftir að skipulögð
skógrækt hófst innan borgar-
landsins, sé komið hráefni sem
nýta má til smíði ýmissa nytja-
hluta að stórum hluta unnin af
nemendum Vinnuskólans. Hver
veit nema ömmur og afar ein-
hverra þeirra sem að bekkjasmíð-
inni koma hafi plantað trjánum í
árdaga Vinnuskólans.
Lóð á vogaskál
Að lokum er rétt að geta þess
að ef gengið er eftir stígnum niður
í Grænugróf í Elliðaárdal má sjá
falleg blómaker á honum sem
gerð eru úr gömlum öskutunnum
sem skornar hafa verið í tvennt.
Þessar tunnur eru fallega málaðar
af krökkunum og í þær hafa verið
sett litrík sumarblóm. Markmiðið
með gerð þessara kera er að lífga
upp á hverfið og brjóta þannig
upp þá grámyglulegu áru sem að
mati margra hefur legið líkt og
mara yfir Breiðholtinu. Það er
von nemendanna í umhverfis-
hópnum að með tillögum sínum
leggi þau sitt lóð á vogarskálarnir
til þess að draumurinn um betra
Breiðholt megi verða að veru-
leika. Það er einnig von þeirra
sem standa að umhverfishópnum
að verkefninu verði haldið áfram
á næsta ári og þannig náist að
virkja þann mikla mannauð
sem býr í yngstu kynslóðinni í
hverfinu.
JÚLÍ 200614 Breiðholtsblaðið
Guðjón Ragnar Jónasson skrifar:
Að stuðla að bættu Breiðholti
Umhverfishópurinn í Miðbergi tilbúinn í slaginn við að gera gott
Breiðholtshverfi betra.
Jákvæð tákn á borð við fána, blóm og umhverfisvæna liti eru áberandi.