Breiðholtsblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 18
Hafliði Örn Ólafsson lauk nú á
dögunum grunnskólaprófi sínu
úr Hólabrekkuskóla. Hann gerði
það sem fáum tekst og kláraði
grunnskólanum á níu árum í
stað þeirra hefðbundnu tíu ára
sem tekur að klára grunnskól-
ann. Hann er mjög vel liðinn af
kennurum og samnemendum
sínum og hann hlaut einnig
þann heiður að vera tilnefndur
af kennurum Hólabrekkuskóla
til hinna árlegu nemendaverð-
launa Menntaráðs Reykjavíkur.
Hann hefur tekið þátt í ýmsum
skólakeppnum þar á meðal
stærðfræðikeppnum og spurn-
ingakeppninni Nema hvað. Þeg-
ar Hafliði er ekki að læra er
hann að keppa í keilu og hann
hefur náð stórkostlegum árangri
í keilu, varð Íslandsmeistari í
opnum flokki með forgjöf og ein-
nig með unglingaliðinu. Í sumar
er Hafliði að vinna í bakaríi og
ætlar svo að hefja nám í hag-
fræði - og viðskiptafræðibraut í
Verzlunarskóla Íslands. En nú í
stutt spjall við Hafliða:
- Hvernig tókst þér að klára skól-
ann á níu árum?
„Ég kláraði 10. bekk utan skóla.
Ég fékk hugmyndina í 8. bekk þeg-
ar stærðfræðikennarinn minn
spurði mig hvort ég vildi taka
samræmt próf í stærðfræði í 9.
bekk í stað 10. bekkjar. Ég féllst á
það og byrjaði strax að vinna
hraðar en hinir. Þegar ég byrjaði í
9. bekk spurði enskukennarinn
minn, sem jafnframt var umsjón-
arkennarinn minn, hvort ég vildi
bæta við ensku samræmdu prófi í
9. bekk. Þá fór ég að hugsa um
hvort ég ætti ekki bara að taka öll
prófin. Þessi ákvörðun var tekin í
nóvember. Ég þurfti að fá leyfi frá
fagstjórum í hverju fagi fyrir sig,
umsjónarkennaranum, skóla-
stjórnendum og menntamála-
ráðuneytinu. Þegar ég hafði feng-
ið leyfi hjá öllum þessum aðilum
þá gat ég byrjað. Ég fékk bækurn-
ar sem ég þurfti að lesa frá kenn-
urum og líka mikið af glósum úr
tímum. Ég sat í 9. bekk og las
námsefni 10. bekkjar heima við.
Seinnihluta vetrar æfði ég mig á
gömlum samræmdum prófum
sem pabbi prentaði út fyrir mig af
netinu en ég fékk mikinn stuðning
frá foreldrum mínum. Svo tók ég
öll samræmdu prófin og vorpróf-
in með 10. bekk. Þetta gekk allt
mjög vel.“
- Varstu orðin langþreyttur á
skólanum?
„Já, ég var orðin frekar þreyttur
á skólanum eftir alla þessa vinnu,
og aðalega þreyttur í huganum og
andlega. Ég vann mikið bæði í
skólanum og einnig heima við. Ég
fékk samt smá tíma til að hvíla
hugann þegar ég fór á keiluæfing-
ar en það er mitt helsta áhuga-
mál.“
- Hvað hélt þér gangandi?
„Hugsunin um það, þegar þetta
væri yfirstaðið og að þurfa ekki
að vera í 10. bekk. Ég hlakkaði
einnig mikið til að komast í sum-
arfrí. En samt reyndi ég oftast að
hugsa jákvætt og reyna að hafa
gaman af en það tókst ekki alveg
alltaf.“
- Fannstu fyrir einhverju mótlæti
eða öfundsýki frá samnemendum
þínum?
„Nei, ég fann frekar fyrir stuðn-
ingi heldur en öfund. Sumir sögðu
reyndar að ég væri algjört „nörd“
að nenna þessu og spurðu mig
hvernig ég tímdi að sleppa 10.
bekk. Fyrir tveimur vikum þá hitti
ég einn af þeim sem spurði mig á
sínum tíma hvort ég héldi ekki að
ég væri að missa af miklu við að
sleppa 10. bekk. Núna sagði hann
að ég væri heppinn að þurfa ekki
að fara í 10. bekk.“
- Ætlarðu beint í nám eftir sum-
arfríið, ef já, hvert og hvað stefn-
irðu á að læra?
„Já, ég er búinn að fá aðgang að
hagræði- viðskiptabraut í Versl-
unarskóla Íslands. Ég sótti um
hann sem aðalskóla og komst inn
þar. Yfir 700 nemendur sóttu um
og aðeins 360 komust inn. Ég
sótti um Menntaskólann Hrað-
braut, Menntaskóla Reykjavíkur
og Menntaskólann við Sund til
vara. Ég stefni að því að læra lög-
fræði við Háskólann í Reykjavík
þegar að námi mínu í Verzlunar-
skólanum líkur.“
- Ætlarðu einnig að reyna að
ljúka Menntaskólanum á styttri
tíma?
„Ég sótti um þriggja ára nám en
sú braut var felld niður vegna lít-
illar þátttöku. Ég mun þessvegna
klára menntaskólann á fjórum
árum eins og venjan er. Það er
líka allt í lagi að taka því rólega og
vera á sama hraða og hinir.“
- Áttirðu þér eitthvað uppáhalds
fag í grunnskóla?
„Já, mér hefur alltaf fundist
langskemmtilegast í raunvísinda-
greinum, stærðfræði og ensku.
Mér hefur ávallt gengið vel í þess-
um fögum og voru þetta mín
bestu fög á samræmdu prófun-
um. Ég hef einnig mikinn áhuga á
störnufræði og fylgist með stjörn-
unum þegar heiðskýrt er, í
stjörnukíki sem ég fékk í jólagjöf.“
- Hvað ertu búin að gera í sumar-
fríinu?
„Ég er búinn að vera að vinna í
Breiðholtsbakaríi síðan skólinn
kláraðist og líður mér mjög vel
þar. Ég hef líka ferðast um Ísland
með fjölskyldunni um helgar. Ég
hef einnig verið mikið að æfa með
afrekshópi ÍR í keilu og er að fara
til Hollands 26. júlí að keppa. Ég
er búinn að æfa keilu í fjögur ár
og í vetur varð ég Íslandsmeistari
í keilu bæði í opnum flokki ein-
staklinga með forgjöf og í ung-
lingaliði með ÍR.“
- Hvar sérðu þig eftir 10 ár?
„Ég sé mig sem 25 ára nýút-
skrifaðan lögfræðing að velja úr
atvinnutilboðum.“
Hafliði Örn er ungur drengur á
hraðri uppleið í lífinu. Það er ekki
hægt að segja um alla unga
drengi, á þessum aldri veit maður
oft ekki hvað maður vill verða á
fullorðinsárunum, en lífsgangan
verður auðveld fyrir þennan unga
dreng af því að hann er með allt á
hreinu.
Það er aðeins ein setning sem
mér fannst ég geta notað til að
ljúka þessari grein: Allt er hægt
ef viljinn er fyrir hendi!
Erna Ýr.
JÚLÍ 200618 Breiðholtsblaðið
Ungur á uppleið
Hér er Hafliði við útskrift ásamt Hólmfríði G. Guðjónsdóttur, skóla-
stóra Hólabrekkuskóla.