Breiðholtsblaðið - 01.11.2006, Page 12
Kosningavetur er hafin. Prófkjör
og önnur vinna við undirbúninga
að framboðum er komin á skrið.
En um hvað verður kosið á kom-
andi vori. Verða það hefðbundin
kosningamál eða má búast við að
önnur mál hafi áhrif á kosningaúr-
slit. Umræðan um umhverfismál-
in er orðin svo öflug að tæpast
neinn stjórnmálaflokkur getur lát-
ið hana fram hjá sér fara. Enginn
stjórnmálalflokkur getur heldur
eignað sér hana og beitt henni
fyrir sig sem sérstöku máli í kosn-
ingum. Hún er að því leyti af svip-
uðum toga og jafnréttismálin. Að
vera á móti bættri umgengni um
umhverfið og aukinni aðgát í nýt-
ingu þess jafngildir því að fara
sjálfviljugur í skammarkrókinn.
Sjálfstæðisforystan og ný
mál
Aukin áhersla á velferðarmál
var áberandi í boðskap Sjálfstæðis-
manna fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar og ljóst að forystunni var
nokkurt kappsmál að ýta flokknum
inn á miðjuna. Þessar áherslubreyt-
ingar eiga sér annars vegar stað í
breyttum hugsunarhætti og þá eink-
um á meðal yngra fólks sem leggur
minni áherslu á harða frjálshyggju
en áður en einnig til þess að mæta
stórum jafnaðarflokki sem orðin
er til á Íslandi en var ekki í tímans
rás. Niðurstöður úr prófkjöri sjálf-
stæðismann í Reykjavík á dögunum
renna stoðum undir þessa kenn-
ingu þar sem þeir sem teljast verða
sigurvegarar lögðu nokkra áherslu
á hin mýkri sjónarmið auk umhverf-
ismála en harðlínumenn áttu erfið-
ara uppdráttar.
VG elta Samfylkinguna
Viðbrögð við þessari þróun má
einnig sjá hjá Samfylkingunni. Viss
tilhneiging hefur verið til þess að
draga flokkinn inn að miðjunni í
anda evrópskra jafnaðarflokka.
Vandi hefur þó fylgt þeirri vegsemd
vegna þess að við hvert skref sem
stigið hefur verið í átt að miðju
fylgja Vinstri grænir fast á eftir og
næla að því virðist í fylgi þeirra
sem síður hugnast sú hugsun að
gera Samfylkinguna að hefðbundnu
miðjustjórnmálaafli. Miðjusæknin
endurspeglast þó nokkuð í úrslit-
um prófkjöra sem farið hafa fram
þar sem jafnaðarmenn, jafnvel með
pólitískar rætur í gamla Alþýðu-
flokknum, hafa náð árangri ekkert
síður en fólk með uppruna í gamla
Alþýðubandalaginu eða Kvennalist-
anum. Forysta Samfylkingarinnar
virðist þó hafa áttað sig á að fem-
inisk harðlínustefna höfðar aðeins
til takmarkaðs hóps kjósenda og er
ekki vænleg fyrir hreyfingu sem leit-
ast við að ná til fjöldans sem annar
stærsti stjórnmálaflokkur þjóðarinn-
ar. Hinar fjölbreyttu rætur Samfylk-
ingarinnar hafa gert henni nokkuð
erfitt um að koma fram sem einn og
heilsteyptur flokkur og mörgum því
reynst erfitt að átta sig á því fyrir
hvað hún stendur. Einnig háir Sam-
fylkingunni að hafa ekki átt aðild að
ríkisstjórn. Hana skortir því verk til
þess að leggja í dóm kjósenda og
verður að stóla á stefnumörkun og
kosningaloforð.
Framsókn í kreppu
Framsóknarflokkurinn virðist
eiga í umtalsverðri kreppu. Um
hann gildir að einhverju leyti hið
sama og um aðra hefðbundna
bænda- og landsbyggðaflokka í
Evrópu sem hafa átt í erfiðleikum
með að finna sér farvegi í breyttu
þjóðfélagi. Um miðjan síðasta ára-
tug reyndu framsóknarmenn að
finna sér þennan farveg. Þá hafði
um tíma verið umtalsvert atvinnu-
leysi en stefnan var sett á að skapa
að minnsta kosti tólf þúsund ný
störf í landinu á skömmum tíma.
Markið var sett nokkuð hátt en
það sem meira var að það náðist
og nokkuð meira. En flokkurinn
hefur ekki notið þess í neinu held-
ur líta nú færri og færri til hans
sem áhugaverðs stjórnmálaafls.
Umhverfisumræðan á umtalsverð-
an þátt í því vegna þess að hin tólf
þúsund störf eiga sér um margt
beinar og óbeinar rætur í orkuvæð-
ingu og orkusölu, því sem kallað
hefur verið stóriðjustefna stjórn-
valda. Framsóknarflokkurinn hefur
átt erfitt með að bregðast við gagn-
rýni umhverfisumræðunnar en ófyr-
irséð er enn hvort þessi umræða
nær að draga kjósendur frá honum
í umtalsverðum mæli. Þá viðrirst
lítt gagnast Framsóknarflokknum
sú góða staða í jafnréttismálum
að eiga þrjá kvennráðherra í ríkis-
stjórn fyrstur flokka hér á landi.
Hvað um frjálslynda
Ekki er gott að segja til um hvaða
áhrif hið nýja útspil Frjálslynda
flokksins mun hafa til lengri tíma.
Flokknum var lífsnauðsynlegt að
finna sér nýtt málefni ætli hann að
fá einhverja athygli í komandi kosn-
ingum. Hann hefur mælst mjög illa
í skoðanakönnunum og söguleg
örlög flokka á borð við hann eru
þau að þeir hverfa af sjónarsviðinu
eftir eitt til þrjú kjörtímabil. Með
því að opna umræðu um málefni
útlendinga og nýbúa með þeim
hætti sem liðsmenn hans hafa
gert eru þeir að leitast við að færa
hann af miðju stjórnmálanna í átt
til þjóðernissinnaðra jaðarflokka í
nágrannalöndunum. Af viðbrögð-
um og skoðanakönnunum við
þessu útspili má á skynja að þessi
sjónarmið höfða til einhvers hóps
af fólki.
Líkur á
umhverfisframboði
Margir umhverfissinnar leggja
áherslu á aukna hátæknistarfsemi,
ferðaþjónustu og frekari þróun við-
skiptalífs er tekið geti við af þeirri
orkusölu og álframleiðslu sem ein-
kennt hefur atvinnulífið að undan-
förnu. Því vaknar spurning um lík-
ur á að til verði sérstakt umhverf-
issinnað og jafnvel þverpólitískt
framboð. Vissulega eru þær líkur
nokkrar. Umhverfisumræðan snýst
m.a. um hvort og hvernig hægt
sé að móta nýja sýn á framtíð
þjóðarinnar. Sýn sem taki mið af
umhverfismálum og náttúruvernd
án þess þó að láta af leið öflugs
atvinnulífs og góðra lífskjara. Mörg-
um umhverfissinnum þykja rætur
Vinstri grænna liggja um of til vin-
stri og tilhneiging þeirra til þess
að binda atvinnulífið í ríkisfjötra
of sterk til þess að geta stutt þann
flokk.
Atvinnustefna og náttúru-
vakning
Ljóst má vera að kosið verður
um framhald atvinnustefnunnar og
hvaða atvinnugreinar geti komið til
með að geta viðhaldið þeirri þróun
atvinnu- og efnahagslífs sem hófst
með EES samningnum og orkusölu-
stefnunni og leitt hefur af sér það
sem kalla má góðæri liðinna ára.
Einnig verður kosið um þá umhverf-
is- og náttúrvakningu sem farið hef-
ur vaxandi að undanförnu. Hugs-
anlega verður kosið um málefni
aldraðra, sem brenna nú ákafar á
þjóðinni en áður og vera má að
almenn lífeyrismál komi við sögu í
kosningunum. Og þá er spurningin
og um hvort nýbúaumræðan bland-
ast í kosningamálin nú eftir að einn
stjórnmálaflokkanna hefur hleypt
henni af stað.
12 Breiðholtsblaðið NÓVEMBER 2006
Spurningar eru um eftir hverju kjósendur muni fara þegar þeir velja
menn til þess að starfa í þessu húsi næstu fjögur árin.
Kosningavetur hafinn - um hvað verður kosið?
Fréttaskýring