Vesturbæjarblaðið - 01.10.2006, Qupperneq 2
Hreinsunarátak í
Vesturbæ til skoðunar
Hverfisráð Vesturbæjar hefur
ákveðið að skipa fulltrúa úr hverf-
isráði til að eiga samráð með full-
trúum Íþrótta- og tómstundaráðs
um frekari stefnumörkun varðandi
leikvallarmál. Samþykkt var að for-
maður og framkvæmdastjóri verði
fulltrúar hverfisráðs. Hverfisráð hef-
ur samþykkt styrkbeiðni frá íbúum
á Hagamel vegna 60 ára afmælishá-
tíðar götunnar, og var samþykkt að
greiða 50 þúsund krónur.
Rætt var um hreinsunarátak
borgarinnar og að skoðað verði
hvenær hreinsunarátak geti farið
fram í Vesturbænum. Erindi barst
um umferðarmál Fálkagötu þar
sem skoða þarf hraðakstur og
hættu sem skapast við gatnamót
Fálkagötu og Suðurgötu. Lagt er til
að Fálkagötu verði lokað við Suður-
götu. Hverfisráð Vesturbæjar tekur
undir áhyggjur íbúa Fálkagötu og
vísar málinu til framkvæmdasviðs
til frekari skoðunar.
Hverfisráð Miðborgar
vill kanna upplifun
Reykvíkinga á öryggi í
miðborginni
Á fundi Hverfisráð miðborgar-
innar nýverið kynnti framkvæmda-
stjóri þjónustumiðstöðvarinnar
rannsóknir sem gerðar voru 2001 á
upplifun Reykvíkinga á eigin öryggi
í miðborg Reykjavíkur, sem Helgi
Gunnlaugsson og Rannveig Þóris-
dóttir gerðu fyrir lögreglustjórann
í Reykjavík og Gallup. Lagði hann
til að könnunin yrði endurtekin nú.
Honum var falið að kanna hverjir
hugsanlega gætu komið að sem
samstarfsaðilar og um fjármögnun.
Ákveðið að bjóða Helga og Rann-
veigu á næsta fund í hverfisráði.
Kynnt var samfelluverkefni frí-
stunda og skóla í Grafarvogi. Ingi-
björg Sigurþórsdóttir framkvæmda-
stjóri Þjónustumiðstöðvarinnar í
Grafarvogi og Kjalarnesi, Miðgarði,
kynnti verkefnið. Framkvæmda-
stjóra Þjónustumiðstövar Miðborg-
ar og Hlíða var falið að kanna kosti
og galla þess að fara að stað með
sambærilegt verkefni í miðborg-
inni.
Oddný Sturludóttir lagði fram
tillögu um að Hverfisráð Miðborgar
taki undir áskorun Þróunarfélags
miðborgarinnar til borgarstjórnar
og stjórnar Faxaflóahafna þar sem
eindregið er hvatt til þess að sem
allra fyrst verði hafinn undirbúning-
ur að byggingu nýs viðlegukants
fyrir skemmtiferðarskip í Austur-
höfninni í tengslum við hönnun og
byggingu Tónlistar- og ráðstefnu-
húss. Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
Hverfisráð miðborgarinnar
ákvað að bjóða Jóhannesi Kjarval,
arkitekt hjá skipulags- og byggingar-
sviði Reykjavíkurborgar, á fund hjá
hverfisráði til að kynna reiti sem
eru í deiliskipulagsferli í miðborg-
inni. Einnig var ákveðið að ræða
síðar við hann um uppbygginguna
á tónlistar- og ráðstefnuhússreitn-
um.
Til hvers eru merking-
ar bílastæða á Vestur-
götu?
Vesturgötu hefur verið sem kunn-
ugt er breytt í einstefnuakstursgötu
til austurs milli Ægisgötu og Garða-
strætis. Bílastæði hafa verið gerð
meðfram suðurkanti Vesturgötu
frá Ægisgötu að Garðastræti og fást
um 15 ný stæði við þessar breyting-
ar. Ökumenn hafa hins vegar ekki
viljað gangast við þessum merking-
um á götunni og leggja allir ská á
gangstéttina þannig að bílinn stend-
ur út yfir heila hvíta línu. Til hvers
halda þessir ökumenn að yfirborðs-
merkingar bílastæða séu eiginlega?
Að vísu teppir enn ýmislegt bygg-
ingarefni hluta bílastæðanna. Nú
eru bráðabirgða hraðahindranir á
mótum Vesturgötu og Ægisgötu en
reiknað er með að varanlegar hraða-
hindranir og breytingar sem fyrir-
hugaðar eru á gangstéttarköntum
komi til framkvæmda á árinu 2007.
Þessar breytingarnar eru gerðar í
samræmi við óskir íbúa, sem fram
komu meðal á fundum með íbúum
og á undirskriftarlistum.
Enn um flugvöll í
Vatnsmýrinni
Á fundi borgarstjórnar fyrir
skömmu spurði Dagur B. Eggerts-
son, borgarfulltrúi Samfylkingar-
innar, borgarstjóra að því hvaða
viðræður hans og samgönguráð-
herra hefðu gefið Sturlu Böðvars-
syni tilefni til að segja að núverandi
meirihluti sé vænlegri til samstarfs
en Reykjavíkurlistinn um að halda
flugvellinum í Vatnmýrinni. Dagur
segir borgarstjóra hafa borið af sér
sakir í því efni og undirstrikað að
hann hefði engar viðræður átt við
samgönguráðherra sem gætu gef-
ið tilefni til slíkra yfirlýsinga. Í máli
borgarstjóra hafi komið fram að í
næsta mánuði muni liggja fyrir nið-
urstöður þeirrar vinnu sem staðið
hefur á annað ár í samvinnu Reykja-
víkurborgar og samgönguráðuneyt-
isins. Þar er lagt mat á mismunandi
kosti fyrir flugvallarstarfsemi og ný
flugvallarstæði á höfuðborgarsvæð-
inu. Dagur hefur vikið sæti sæti í
þeirri nefnd til að tryggja að núver-
andi meirihluti borgarstjórnar hafi
traust á niðurstöðunum ekki síður
en Samfylkingin sem Dagur segir
að hafi lagt línurnar í þessu starfi.
Á fundinum sögðu fulltrúar meiri-
hlutans ætla að eyða óvissu um
framtíð innanlandsflugs með því að
leita breiðrar samstöðu um fram-
tíðarstaðsetningu flugvallar fyrir
höfuðborgarsvæðið þegar öll gögn
lægju fyrir um málið.
Hættuleg efni í
smíðastofum
grunnskólanna
“Ljóst er að mikið af hættulegum
efnum er að finna í smíðastofum
í grunnskólum landsins, þá er loft-
ræsing oft léleg í þessum stofum
og aðstaðan ekki nógu góð. Börnin
meðhöndla hættulega efni og oft
er ekki til áætlun um viðbrögð ef
eitthvað bregður út af,” segir Gunn-
ar Kristinsson heilbrigðisfulltrúi á
Umhverfissviði Reykjavíkurborgar.
Gunnar Kristinsson flutti erindi
á haustþingi heilbrigðisfulltrúa
um niðurstöður könnunar í grunn-
skólum á varnaðarmerktum efna-
vörum, merkingum þeirra og á
aðstöðu til að geyma þau og nota.
Könnunin var gerð af Heilbrigðis-
eftirliti sveitarfélaga og Umhverfis-
stofnun. Könnunin náði til 63 skóla
eða um það bil þriðjungs þeirra á
landinu og ætti því að gefa nokkuð
góða mynd af stöðunni. Niðurstað-
an var að mikið er um gömul efni í
hillum og geymslum í efnafræði- og
smíðastofum. Í flestum skólum er
unnið með varnaðarmerktar vör-
ur og margar þeirra eru merktar
sem hættulegar heilsu eða eitur.
Mikið vantar upp á að varnaðar-
merktar vörur séu merktar í sam-
ræmi við reglur. Mun fátíðara er að
læst geymsla sé fyrir hættuleg efni
í smíðastofum en í efnafræðistof-
um. Loftræsing er viðunandi eða
góð í um það bil helmingi skólanna
sem farið var í, hvort sem um er að
ræða efnafræði- eða smíðastofur.
Gunnar segir að bæta þurfi örygg-
isþætti hvort sem um er að ræða
í efnafræðistofum eða smíðastof-
um. Dregið hefur úr notkun efna í
efnafræðistofum í samanburði við
smíðastofur. Spilliefnum var hent
í rusl eða vask í 8 skólum af 56 í
efnafræðistofum, og í 4 skólum af
43 í smíðastofum. Sturta var til stað-
ar í 24 efnafræðistofum af 61 og
í 3 smíðastofum af 51. Dæmi eru
um að krakkar hafi fengið útbrot
af sumum efnum sem verið er að
nota, sem ekki er gott fyrir börn
sem eru með viðkvæma húð eða
öndunarfæri að vinna með þessi
efni.
Metanknúnir
sorpbílar
Tveir nýir metanknúnir sorpbílar
á vegum Umhverfissviðs Reykjavík-
urborgar hafa verið teknir í notkun.
Borgarstjórinn í Reykjavík tók við
lyklunum og prófaði gripinn fyrir
hönd starfsmanna. Bílarnir vöktu
athygli fyrir fallega myndskreytingu
sem birtist í blómum. Metanknún-
um sorpbílum verður fjölgað enn
frekar á næsta ári. Hávaðinn af slík-
um bifreiðum er helmingi minni og
verulega dregur úr sóti og útblæstri
koltvísýrings (CO2) og köfnunarefn-
isoxíða (Nx). Nýjar rafknúnar tunnu-
lyftur eru í bílunum sem er íslensk
hönnun frá fyrirtækinu Ecoprocess
hf. Umhverfissvið leigir bílana af
Vélamiðstöðinni en slagorð bifreið-
anna er “Kanntu að meta’nn?”
Sinna skólastjórnendur
ekki upplýsinga-
skyldum?
Menntaráð Reykjavíkur tók
nýlega fyrir fyrirspurn áheyrnarfull-
trúa SAMFOKs þar sem spurt er
hvort menntaráð grípi til einhverra
aðgerða til að tryggja að skóla-
stjórnendur vinni í anda 1. greinar
reglna til viðmiðunar um samskipti
foreldraráða og skólayfirvalda í
grunnskólum Reykjavíkur og skili
inn upplýsingum um foreldraráð
á tilsettum tíma. Vegna fyrirspurn-
arinnar samþykkti menntaráð að
beina þeim eindregnu tilmælum
til skólastjórnenda að þeir sinni
upplýsingaskyldu sinni gagnvart
Menntasviði með því að skila
inn upplýsingum um foreldraráð
skólanna strax og þær liggja fyrir.
Jafnframt leggur ráðið áherslu á
mikilvægi þess að upplýsingar um
foreldraráðin séu ávallt réttar og
aðgengilegar á heimsíðum skól-
anna.
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík
Sími: 511 1188 • 561 1594
Fax: 561 1594
Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933
Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is
Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson
Umbrot: Valur Kristjánsson
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dreifing: Íslandspóstur
10. tbl. 9. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í Vesturbæ og Miðbæ.
S T U T T A R
B O R G A R F R É T T I R
F ull ástæða er til að hvetja þá Vesturbæinga sem láta sér framtíð KR einhverju varða að taka þátt í KR-þinginu sem haldið verður í Frostaskjóli laugardaginn 4. nóvember nk. Íþróttafélög eins og KR gegna gríðarlega mikilvægu uppeldishlutverki sem flestir
foreldrar eru mjög meðvitaðir um, og taka þátt í starfinu með börnun-
um, t.d. með setu í stjórnum eða ráðum. Svo eru aðrir sem eru afskipta-
lausir um starfsemi félagsins,jafnvel þótt börnin þeirra stundi íþróttir
innan raða KR. Allir gleðjast yfir árangur á íþróttasviðinu, ekki síst
þegar Íslandsmeistaratitill vinnst, en það gerist ekki sjálfkrafa, að baki
liggur mikil vinna, og oft mjög fórnfús. Liður í því að efla innra starf KR
er meðal annars nýstofnuð KR-akademía undir stjórn Teits Þórðarson-
ar þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu, en fleira mætti einnig
telja til.
Kjör eldri borgara
kosningamál
Ljóst er í aðdraganda allra prófkjöranna að kjör eldri borgara verða
eitt stærsta kosningamálið. Tillögur ríkisstjórnarinnar í þessum mála-
flokki ganga því miður allt of skammt en stjórnarandstaðan hefur hins
vegar sagst ætla að leggja fram þingmál sem bætir stöðu eldri borgara
til mikilla muna. Í tillögum er lagt til að koma á frítekjumarki fyrir 75
þúsund króna atvinnutekjur á mánuði, tengsl lífeyrisgreiðslna við
atvinnu- og lífeyristekjur maka verða afnumin, tekjutryggingin verð-
ur hækkuð og dregið verður úr skerðingarhlutföllum. Þessar tillögur
ganga hins vegar allt of skammt og það verður að grípa til miklu afdrifa-
ríkari aðgerða til að bæta stöðu eldri borgara. Til að draga úr skatt-
byrði eldri borgara má t.d. skattleggja lífeyristekjur sem fjármagnstekj-
ur en sú leið mundi hafa í för með sér mikla skattalækkun fyrir eldri
borgara og um leið verða nauðsynleg kjarabót. Ef greiðslur frá lífeyris-
sjóðum yrðu skattlagðar sem fjármagnstekjur í 10% skattþrepi í stað
37% þrepi tekjuskatts þá yrði tekjutap hins opinbera um 3,3 milljarðar
króna. Það er allt og sumt. Það er ekki boðlegt að þriðji hver eldri borg-
ari þurfi að lifa á 110 þúsund krónum á mánuði eða minna.
Á næstu dögum og vikum rekur hvert prófkjörið annað, eða annað
fyrirkomulag eins og tvöfalt kjördæmisþing eða forval, og ljóst verð-
ur eftir þær orrahríðir hverjir leiða framboðslistana. Könnun meðal
eldri borgara hefur sýnt að þeir bera takmarkað traust til stjórnmála-
flokkanna. Rætt hefur verið um að bjóða fram lista eldri borgara, en
sterkara væri fyrir þá að fjölmenna í prófkjörin og velja þá frambjóð-
endur sem þeir treysta best til að koma kjörum eldri borgara í boðlegt
ástand. Nokkrir kanditatar hafa reynslu af sveitarstjórnarmálum og
þeir standa að mörgu leiti feti framar, skilja betur þarfir sveitarfélag-
anna og íbúa þeirra. Þar er ekki aðeins átt við kjör eldri borgara, held-
ur einnig aðra þætti eins og skólamál, umhverfismál, íþróttamál og
þá þætti samgöngumála sem snúa beint að sveitarfélögunum. Leiða
má líkum að því að umferðarmannvirki í Reykjavík tækju hraðar við
umferðinni gegnum borgina, s.s. um mislæg gatnamót, og Sundabraut
lengur komin á teikniborðinu ef fleiri þingmenn með reynslu af sveitar-
stjórnarmálum hefðu setið í samgöngunefnd Alþingis, forgangsröðunin
hefði líklega verið önnur.
Vetur genginn í garð
Fyrsti vetrardagur var sl. laugardag. Votviðrasömu sumri lauk og
Vetur konungur tók völdin, enda hefur Esjan fengið fyrstu gráu snjó-
kápuna. Ég hef hins vegar aldrei skilið þá sem fagna vetri, hér er sum-
arið svo stutt og oft kalsasamt að það á að halda eins lengi í það og
nokkurs er kostur. Ég tel fremur að fólk eigi að sætta sig við veturinn,
búandi hér á norðurhjara veraldar. Framundan er hins vegar spenn-
andi vetur fyrir þá sem hafa gaman af stjórnmálum og fylgjast grannt
með þeim, en aðrir láta sér fátt um finnast, hafa önnur áhugamál. En
þrátt fyrir það er það nú svo að stjórnmál snerta alla, líklega eru allir
pólitískir, en hver á sinn máta.
Geir A. Guðsteinsson
KR-þingið fyrir
alla áhugasama
Vesturbæingar
Brátt geta kuldaskræfurnar
einnig sótt sund í yfirbyggðri
Vesturbæjarlaug!
OKTÓBER 2006