Vesturbæjarblaðið - 01.10.2006, Qupperneq 14

Vesturbæjarblaðið - 01.10.2006, Qupperneq 14
14 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2006 Bernskuminningar úr Vesturbænum Leiddumst í tímakennslu á Ránargötunni Ég bjó fyrstu 5 ár ævi minnar á Öldugötu 19, og allar minning- ar frá þeim tíma eru sérstaklega ferskar og ljúfar. Ég heiti Hjördís Fenger og er yngst minna systk- ina, eldri eru í aldursröð Krist- jana, Jakob og Emil, sem er lát- inn. Foreldrar mínir voru Garð- ar Fenger og Krístin Finnsdóttir Fenger sem var frá Önundarfirði. Við bjuggum á efstu hæðinni á Öldugötunni, amma Kristjana og Dedda, sem hét réttu nafni Margrét Pétursdóttir og var eins og önnur amma mín og hjálpar- hella ömmu bjuggu á miðhæð- inni, en föðursystir mín Unnur Fenger í kjallaranum ásamt syni sínum Guðmundi K.G. Kolka, sem var besti vinur minn á þess- um árum og leikfélagi. Ég á bara góðar minningar frá Öldugötunni, enda var ég að alast upp með stórfjölskylduna í kringum mig, þ.e. ömmu, Deddu (næstum 2 ömmur), föðursystur, þremur systkinum og Guðmundi frænda, vini og jafnaldra. Garðurinn var frábær, fullt af trjám sem við máttum klifra í. Bíl- skúrinn var með grasi á þakinu, það var gaman að klifra þangað upp og leika sér. Svo var í garðin- um stór matjurtargarður. Bræður mínir gátu stundum verið svolítið stríðnir og læstu mig einu sinni úti í garði og þar sem ég var frekar lítil tókst mér seint að klifra yfir hliðið og kom- ast inn í húsið. Ég var tímakennslu hjá Elínu á Ránargötunni að læra Sísí segir sss, ss segir Sísí. Við Guðmundur urðum sam- ferða þangað og leiddumst alltaf. Við frændsystkinin vorum einnig saman í dansi hjá Hermanni Ragnars í skátabragganum á Snorrabrautinni og dönsuðum alltaf saman. Annað kom ekki til greina! Róluskipti við strætisvagnakomur! Það var rólóvöllur við hliðina á húsinu á Öldugötunni og fór ég stundum þangað að leika mér, stakk reyndar einu sinni af úr gæslunni. Við bjuggum okkur til einfalda reglu þar, en við máttum vera í rólunni milli strætisvagna, þ.e. við skiptumst á að róla og skiptum alltaf þegar vagninn kom eftir götunni. Ég var í leikskólanum Drafnar- borg einhvern tíma hjá hjá Bryn- dísi Zoëga, og vann svo þar í tvö sumur sem unglingur. Það hefur ekki verið leiðinlegt því ég starfa í dag sem leikskólastjóri í Hafn- arfirði. Í dag fást börn og unglingar helst ekki til þess að fara út í búð, hvað svo sem veldur. Ég var hins vegar eins og mörg önnur börn send út í búð til að kaupa mjólk og brauð með miða sem kaupmaðurinn las á og síð- an náði hann í vöruna og setti í poka, og afganginn, ef einhver var, setti hann í budduna. Þetta var öruggt og gott kerfi! Kökkur í hálsinum við flutninginn Það er ofarlega í minningunni þegar ég flutti með fjölskyldunni frá Öldugötu upp í Hvassaleiti. Þegar búið var að setja alla búslóðina á vörubílspallinn man ég að að mér þótti mjög spenn- andi að fá sitja aftan á pallinum frá Öldugötunni og í Hvassaleit- ið. En ég var samt með kökk í hálsinum þegar við fjarlægðumst húsið og ég vinkaði Guðmundi frænda sem stóð á tröppunum fyrir framan húsið. Það hefur greinilega verið eftirsjá eftir leik- félaganum, og Öldugötunni. Við systkinin á efstu hæðinni, f.v.: Emil, Jakob, Hjördís og Kristjana. Við systkinin við eitthvað tilefni ásamt frændum okkar Guðmundi og Ólafi William, sem er frændi minn í móðurætt, sonur Sveinbjörns, elsta bróður mömmu. Ég og frændi minn og leikfélagi í bernsku, Guðmundur K.G. Kolka. Í dag. Ég til vinstri ásamt systur minni Kristjönu.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.