Vesturbæjarblaðið - 01.10.2006, Side 18

Vesturbæjarblaðið - 01.10.2006, Side 18
18 Vesturbæjarblaðið OKTÓBER 2006 Ý M I S Þ J Ó N U S T A Hreinsum allan fatnað, sængur, millidýnur og gardínur á athyglisverðu verði. EFNALAUGIN DRÍFA Hringbraut 119 • Rvk. ÖLL ALMENN PRENTUN SÍMI 561 1594 895 8298 HRÓLFSSKÁLAVÖR 14 NETFANG: NES@ISHOLF.IS AUGL†SINGASÍMI 511 1188 895 8298 Netfang: borgarblod@simnet.is borgarblod.is Þekking á efnahagsmálum er lyk- ilatriði til að ná árangri í stjórnmál- um. Ég hef á þingi reynt að nýta reynslu mína og menntun í málflutn- ingi um efnahagsmál með það fyrir augum að stuðla að efnahagslegum stöðugleika og aukinni velferð. Grundvallarhugmyndafræði mín er sú að til þess að tryggja aukna velferð, þurfi efnahagurinn að vera traustur. Sjálfstæðismenn hafa iðu- lega gumað sig af því að þeim sé best treystandi í efnahagsmálum. Undanfarin misseri hefur þjóðin hins vegar fundið það á eigin skinni hver stefna er í efnahags - og skatta- málum. Aukin óstöðugleiki og vax- andi skattbyrði nema hjá þeim sem eru í hópi hinna 10% tekjumestu. Málefni eldri borgara, menntamál og maturinn Málefni eldri borgara þurfa að vera sett í forgang, ekki síst þeirra eldri borgara sem tilheyra svokall- aðri millistétt. Í svar við fyrirspurn minni á Alþingi kom fram að væru greiðslur frá lífeyrissjóðum skatt- lagðar sem fjármagnstekjur í 10% skattþrepi í stað 37% þrepi tekju- skatts þá yrði tekjutap hins opin- bera um 3,3 milljarðar króna. Það er ekki há upphæð fyrir ríkissjóð sem nú veltir um 370 milljörðum króna á ári. Hækka þarf frítekjumark og afnema tekjutengingu við maka og draga úr skerðingarhlutföllum. Hér er um mikið réttlætismál að ræða. Framlög sveitarfélaga til grunn- skóla eru með því hæsta sem þekk- ist í heiminum enda hafa jafnað- armenn leitt uppbyggingu flestra grunnskóla landsins undanfarinn áratug, ekki síst í Reykjavík og í Hafnarfirði. Sé litið til fjárfestinga ríkisins í skólastigin sem það rekur, þ.e. framhalds- og háskólana, kem- ur aftur á móti í ljós að Ísland er fyr- ir neðan meðaltal OECD þjóðanna. Hér þarf því að bæta í. Lækkun matvælaverðs er einnig hagsmunamál sem þarf að koma í höfn. Samfylkingin vill lækka matar- reikning heimilanna um 200.000 kr. á ári. Almenningi munar svo sannar- lega um slíkar lækkanir. Við þurfum því að tryggja matvælastefnu sem bragð er af. Afnám fyrningar í kynferð- isafbrotum gegn börnum Á Alþingi hef ég lagt fram fjöl- mörg þingmál sem ég tel að veru- legur hljómgrunnur sé fyrir. Um 22.000 Íslendingar hafa skrifað und- ir áskorun þess efnis að samþykkja beri frum- varp mi t t um afnám fyrningar í kynferðisaf- brotum gegn börnum. Þá hef ég l a g t f r a m f r u m v a r p um óháðar rannsóknar- nefndir en slíkar nefnd- ir hefðu t.d. gert mikið gagn við að komast að því hverjar forsendur ríkisstjórnar- innar voru fyrir stuðningi við Íraks- stríðið og nú síðast um það að upp- lýsa um sannleikann í svokölluðum hlerunarmálum. Einnig má nefna þingmál um aukna vernd heim- ildarmanna fjölmiðla, lögfestingu Barnasáttmálans, lengingu fæðing- arorlofs, gjaldfrjálsan leikskóla og lagaákvæði um heimilisofbeldi. Ágúst Ólafur Ágústsson er með háskólapróf í lögfræði og hagfræði og er varaformaður Samfylkingar- innar. Hann býður sig fram í 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar Traustur efnahagur - aukin velferð Ágúst Ólafur Ágústsson. Mér finnst Reykjavík fallegust á haustin. Sérstaklega í stillunum sem eru algengar í október og nóv- ember - fjallahringurinn grár í vöng- um, sjórinn spegilsléttur og stærsti skógur landsins - trén í görðum Reykvíkinga - heldur sýningu á öllu haustlitaúrvalinu. Þetta er tíminn til að hjóla hring á stígnum, reika út í Gróttu eða upp á Öskjuhlíð - og nota hesta postulanna gegnum gamla bæinn vestan lækjar og aust- an. Maður býr sig rólegur undir veturinn á svona hausti og hlakkar til nýrra verka og úrlausnarefna. Fjöll, haf og gróður - eitt af brýn- ustu verkefnunum framundan er að opna nýja sýn á náttúruna og auðæfi hennar. Hin mikla virkjun fyrir austan veldur þáttaskilum. Sama hvaða skoðun hver hafði á sínum tíma eru flestir nú orðnir sammála um að við eigum aldrei aftur að þola slík umhverfisspjöll. Nú þarf að staldra við og skoða málin - meta hvert svæði fyrir sig á forsendum náttúrufars og verð- mæta sem felast í því óspilltu, rannsaka hvort aðrar aðferðir skila betri árangri en þessi sovéski stór- karlaskapur fyrir austan - til dæmis þjóðgarðar, friðlönd, þemagarðar, veiðilendur. Við eigum í íslenskri náttúru feikilegt dýrmæti og höf- um hreinlega ekkert leyfi til að eyði- leggja hana fyrir börnunum okkar, fyrir mannkyninu í heild - og fyrir sjálfum okkur. Við jafnaðarmenn höfum nú sett fram stefnu sem við köllum Fagra Ísland - og gerum ráð fyrir að næstu nokkur misseri verði ráðist í rannsóknir og landkönnun með svokallaðri „Rammaáætlun um náttúruvernd”. Að henni lok- inni væri verðmætustu náttúrsvæð- unum tryggð verndun þannig að þokkaleg sátt geti loksins skapast eftir næstum fjögurra áratuga borg- arastyrjöld hérlendis um ál, orku og náttúru. Svo er einfaldlega komið nóg af stóriðju. Atvinnulíf framtíðarinnar á að byggjast á öðru - á hátækni, þekkingariðnaði, vandaðri ferða- mennsku og nýsköpun í gömlu greinunum, sjávarútvegi og land- b ú n a ð i . Í sjálfbærum náttúrunytj- um og með því að virkja og styrkja frumkvæði fó lks ins í landinu. Náttúru- svæðin við borgina Við Samfylkingarmenn nefnum líka einstök svæði sem strax á að tryggja vernd. Meðal þeirra eru náttúruperlur við bæjardyr okkar Reykvíkinga - Brennisteinsfjöllin suður af og Grendalur við Hengil. Það skiptir miklu fyrir reykvískar fjölskyldur að geta notið ósnort- innar náttúru í næsta nágrenni, og á næstunni þarf að vernda skipu- lega öll helstu náttúru- og útivistar- svæði hér í kringum okkur. Eldfjallagarður á Reykjanesi er góð hugmynd hjá þeim í Land- vernd. Við þurfum líka að gæta þess að fjallasvæðið austuraf geti áfram veitt okkur gleði, fróðleik og lífsfyllingu. Mörgum hefur brugðið við ummerkin á Hengilssvæðinu, og Orkuveitan á núna að læra af mistökum þarna uppfrá, skipu- leggja betur mannvirkin og hlífa með öllu verðmætum náttúrusvæð- um. Svo skil ég ekkert í því að borg- arfulltrúarnir skuli ekki sýna meiri hugkvæmni við að greiða okkur för um sjálft borgarfjallið, Esjuna, með skipulagi, stígum, aðstöðu og kynningu! Náttúra og atvinnulíf, mennt- un og menning: Nóg að hugsa og vinna í vetur. En fyrst er að nota veðrið og taka einn hjólahring á stígnum. Norðurströndin, út á Nes, Sörlaskjólið og Ægisíðan - í Skerjó og inn í Nauthólsvík ... Mörður Árnason - sækist eftir 4.-6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar 11. nóvember Fagra Reykjavík - Fagra Ísland Mörður Árnason. Kristrún Heimisdóttir sem býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Samfylk- ingarinnar er ekki algjör nýgræðing- ur í pólitík þó þetta sé í fyrsta skipti sem hún tekur þátt í prófkjöri. “Ég tók þátt í fyrstu sigrum Röskvu í Háskóla Íslands á sínum tíma, var eindreginn stuðningsmað- ur Reykjavíkurlistans þegar hann varð til og tók þátt í stofnfundi Sam- fylkingarinnar árið 2000. Ég trúði á sameininguna og væri sennilega ekki einu sinni í flokki ef Samfylking- in hefði ekki orðið til - ég er af þeirri kynslóð.” Kristrún er 35 ára gömul og lög- fræðingur að mennt. Hún starfaði um árabil sem lögfræðingur Samtaka iðnaðarins. Mun reynslan úr atvinnu- lífinu nýtast henni ef hún kemst á þing? “Það er ekki nokkur vafi. Ég hef þá grjóthörðu skoðun að það vanti atvinnustefnu á Íslandi og miklu meira samráð við atvinnulífið í stíl við það sem tíðkast á Norðurlöndum og annars staðar í Evrópu. Íslending- ar þurfa að leggja áherslu á alvöru verðmætasköpun en ekki bara skuld- um vafinn hagvöxt. Þar skiptir máli uppbygging hátækni bæði í grónum atvinnugreinum eins og sjávarútvegi og landbúnaði og í nýjum greinum. Þannig sköpum við eftirsótt störf, bætum lífsgæði og styrkjum landið í alþjóðlegri samkeppni. Nú er kom- ið í ljós að hátækniiðnaður dróst saman á árinu 2005 á Íslandi og þar er fyrst og fremst rangri opinberri stefnu um að kenna.” Nú fara í hönd spennandi Alþingis- kosningar þar sem margir telja mikið í húfi. Verður ekki Samfylkingin rjúfa álögin og vinna kosningar? “Jú - ég er reyndar þeirrar skoðun- ar að Samfylkingin hafi verið lýðræð- islegur sigurvegari síðustu kosninga. Hún var hástökkvarinn! En ef ég verð í liðinu sem þingmannsefni næsta vor mun ég ganga fram með sama hugarfari og ég gerði í fótboltan- um í KR á sínum tíma. Í tuttugu og fimm ár vann KR ekki titil í meistara- flokki - hvorki karla né kvenna. Við ste lpurnar rufum þann m ú r 1 9 9 3 með fyrsta Íslandsmeist- aratitli okkar og fé lagið g l a d d i s t með okkur. Þ a ð þ a r f marksækni, sjálfstraust og frábæran undirbúning til að vinna sigra og ég veit að Samfylkingin er margfalt betur undirbúin núna en nokkru sinni fyrr. Ég hef tekið þátt í gríðarlega vandaðri stefnumörkun í Framtíðarhópi og fullyrði að sem forystuafl í ríkisstjórn mun Sam- fylkingin þora og geta gert brýnar umbætur í málefnum fjölskyldunnar, heilbrigðiskerfi, öldrunarþjónustu og menntamálum um leið og efna- hagsmálum verður stýrt farsællegar en verið hefur frá síðustu kosning- um. Við erum búin að vinna heima- vinnuna og reikna öll dæmin. Næst er að klára stóra dæmið”. Kristrún Heimisdóttir - býðir sig fram í 5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hátækni í grónum og nýjum atvinnugreinum Kristrún Heimisdóttir.

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.