Skinfaxi - 01.05.2015, Blaðsíða 3
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 3
D agana 25.–27. mars sl. var ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði haldin í sjötta sinn og nú í Stykkishólmi. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var „Margur verður af aurum api – réttindi og skyldur ungs fólks á vinnumarkaði“.
Ungmennafélag Íslands hefur ávallt lagt áherslu á lýðræðislega
þátttöku ungs fólks og hefur ráðstefnan vakið mikla lukku meðal
þátttakenda. Ungmennaráð UMFÍ fékk til liðs við sig VR-skóla lífs-
ins, en tilgangur skólans er að fræða og upplýsa ungt fólk um rétt-
indi sín og skyldur til að styrkja stöðu þess á vinnumarkaði. Hluti af
VR-skóla lífsins er vinnustofur á vegum Dale Carnegie.
Að þessu sinni sóttu um áttatíu þátttakendur ráðstefnuna, bæði
ungmenni sem starfa í ungmennaráðum víðs vegar um landið og
starfsmenn sem sjá um málefni ungmenna í sveitarfélagi sínu.
Ráðstefnan
Á l y k t u n
Ungmennaráðstefna UMFÍ, Ungt fólk
og lýðræði, haldin í Stykkishólmi
25.–27. mars 2015, skorar á sveitar-
félög að leita meira til ungmenna og
taka tillit til skoðana þeirra á málefnum
samfélagsins, einkum þeim er varða
ungmennin sjálf. Heiti ráðstefnunnar
var „Margur verður af aurum api“ með
það að markmiði að fræða og skapa
umræðu um skyldur og réttindi ungs
fólks í atvinnulífinu. Við skorum á
atvinnurekendur að standa vörð um
réttindi starfsmanna sinna og þá sér-
staklega ungs fólks. Mikilvægt er að
báðir aðilar séu meðvitaðir um réttindi
og skyldur sínar. Þegar ráðstefnugestir
fóru að bera saman bækur sínar kom í
ljós að allt of algengt er að brotið sé á
ungu fólki sem er að taka sín fyrstu
skref á vinnumarkaði. Þetta má að vissu
leyti rekja til vanþekkingar og þarfar á
meiri fræðslu. Því skorum við á stéttar-
félög að koma til móts við þessa þörf og
auka fræðslu til beggja aðila, atvinnu-
rekenda og starfsmanna. Þátttaka á
ráðstefnunni var bundin því skilyrði að
hafa lokið námskeiði hjá VR-skóla lífs-
ins. Það námskeið fór fram á netinu og
veitir grunnskilning á reglum og hefð-
um atvinnulífsins og undirbýr fyrir verk-
legan hluta sem fram fór á ráðstefnunni
undir handleiðslu þjálfara frá Dale Carn-
egie. Slík fræðsla er gríðarlega mikilvæg
og ætti að leggja áherslu á að hún fari
skipulega fram í efri bekkjum grunn-
skóla samhliða öðrum grunnþáttum í
fjármálalæsi. Ungt fólk á ráðstefnunni
vill koma á framfæri áhyggjum sínum af
kynjuðum útlitsstöðlum sem gera ítrek-
að vart við sig innan hinna ýmsu greina
atvinnulífsins. Það er ekki eðlilegt að
umsækjendur um starf séu metnir vegna
kyns eða útlits umfram raunverulega
getu til að sinna því starfi sem sótt er um.
Ungt fólk
og lýðræði