Skinfaxi - 01.05.2015, Blaðsíða 27
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 27
B
lak barst til Íslands á árunum
1933–1934. Iðkun þess hófst
a.m.k. árið 1934 hjá Íþróttafélagi
verkamanna í Reykjavík. Blak
náði engum teljandi vinsældum
fram undir 1970 en var þó víða iðkað, eink-
um á Akureyri og Laugarvatni. Fyrsta opna
blakmótið fór fram á Akureyri 1969 og árið
eftir var Íslandsmótið haldið í fyrsta sinn.
Árið 1974 léku Íslendingar fyrsta landsleik
sinn í blaki við Norðmenn á Akureyri. Sama
ár hófst keppni um Íslandsmeistaratitil í
kvennaflokki , og 1975 var tekin upp deilda-
skipting í Íslandsmótinu.
Blaksamband Íslands, BLÍ, var stofnað 11.
nóvember 1972. Iðkendur í dag eru alls um
3000 talsins. Í fyrra réði BLÍ erlenda þjálfara
fyrir karla- og kvennalandsliðin. Í framhald-
inu var sett af stað vinna með ungum og
efnilegum blakmönnum á aldrinum 13–15
ára og standa vonir um að sú vinna eigi eftir
að skila sér vel þegar fram í sækir.
Iðkendum hefur fjölgað
„Íþróttin hefur á síðustu tíu árum verið í
ágætum vexti. Iðkendum hefur fjölgað um
eitt þúsund og það er ágætt. Það sem veldur
fjölguninni meðal annars er aukinn áhugi
vinkvenna, í saumaklúbbum, og skólafélaga.
Svo eru fleiri sem byrja í íþróttinni á ungum
aldri og æfa ekkert annað. Félög í Kópavogi, í
Neskaupstað og í Mosfellsbæ hafa haldið vel
utan um starf yngri flokka sem skiptir gríðar-
lega miklu máli. Fólk er líka að vakna til vitund-
ar um hvað þetta er skemmtileg íþrótt en hún
er geysilega vinsæl úti í hinum stóra heimi,“
sagði Jason Ívarsson, formaður Blaksam-
bands Íslands, í samtali við Skinfaxa.
Víða hægt að leika blak
Jason segir að það hafi hjálpað til við iðkun
blaksins að víða var hægt að koma fyrir velli
til að spila. Bendir hann á Neskaupstað sem
lengi hafi verið uppeldisstöð og vagga blaks-
ins, en þar hentaði íþróttahúsið vel fyrir blak.
Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands:
„Það er víða hægt að leika blak og það er
kannski þess vegna meðal annars að fleiri
eru farnir að stunda blak.
Það eru nýir aðilar að koma inn eins og t.d.
Haukar í Hafnarfirði sem eru búnir að stofna
blakdeild. Eins er í Keflavík, á Blönduósi og á
Hvammstanga sem er mikið gleðiefni. Árang-
ur stelpnanna í strandblakinu á Smáþjóða-
leikunum vakti athygli og góða kynningu.
Karla- og kvennaliðin unnu einnig til verð-
launa á leikunum og allt hefur þetta sitt að
segja. Strandblakið er í töluverðri sókn hér á
landi og vellir eru víða komnir upp, allt í kring-
um landið,“ sagði Jason.
„Ég er mjög bjartsýnn á framhaldið og
árangurinn á Smáþjóðaleikunum var framar
öllum vonum. Umgjörðin og framkvæmdin
á blakinu, bæði inni og úti, vakti mikla athygli
en fólk, sem hafði ekki áður komið á blakleiki,
var stórhrifið af að koma í höllina hjá okkur.
Það var fullt hús áhorfenda á öllum leikjum
íslensku liðanna sem sýnir okkur mikinn
meðbyr í garð blaksins. Við þurfum að nýta
okkur þennan meðbyr og fá fleiri til starfa í
hreyfingunni, það skiptir máli. Öldungablak-
ið er einn af stærstu íþróttaviðburðum sem
haldnir eru hér á land en þá koma á annað
þúsund blakmenn saman langa helgi til að
spila. Þessi mót bara vaxa og stundum kom-
ast færri að en vilja. Nú eru erlend lið farin að
spyrjast fyrir um mótið sem segir sína sögu.
Það er gaman þegar vel gengur,“ sagði Jason.
Þurfum að nýta
okkur meðbyrinn
„Fólk er að vakna til vitundar um hvað þetta
er skemmtileg íþrótt en hún er geysilega vinsæl
úti í hinum stóra heimi.“
Jason Ívarsson,
formaður Blak-
sambands Íslands.