Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2015, Page 28

Skinfaxi - 01.05.2015, Page 28
28 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands S amstarfsráð um forvarnir er samstarf 24 félagasamtaka sem standa fyrir forvarnaverkefnum meðal barna og unglinga. Fræðsluverkefnið „Bara gras?“ hefur það markmið að fræða foreldra og aðra, sem starfa með börnum og unglingum, um kanna- bis eða „gras“ (götuheiti marijuana) sem virð- ist nú í mikilli uppsveiflu meðal íslenskra ung- menna. Kannabis er samheiti fyrir öll fíkni- efni sem eru unnin úr kannabisplöntunni sem við þekkjum flest sem hass, hassolíu og marijuana en auk þess eru ýmis efnasambönd úr plöntunni nú framleidd og markaðssett til neyslu. Fræða á fólk um skaðsemi þessara efna, ein- kenni neyslunnar og um mikilvægi foreldra í forvörnum. Foreldrar og forráðamenn barna og unglinga eru hvattir til að láta málið til sín taka með því að taka afstöðu gegn allri neyslu kannabis. Fræðslan er sett fram með málþing- um í heimabyggð þar sem aðilar úr hverju byggðarlagi, starfsfólk frá lögreglu, heilbrigðis- stofnunum, tómstundastarfi og meðferðar- stofnunum miðlar upplýsingum til íbúanna. Einnig er með þessu brugðist við ýmsum rangfærslum um kannabis sem m.a. er að finna á netinu og ungmenni eiga greiðan að- gang að. Þar er gert lítið úr áhættunni sem fylgir neyslu kannabisefna, þetta er „bara gras“ segja margir unglingar og trúa því að THC-fíkniefnið í kannabisplöntunni sé sak- laust náttúruefni sem lækni sjúkdóma! Við megum ekki láta blekkjast af rang- færslum um kannabisefni. Unga fólkið þarf stuðning okkar gegn hópþrýstingi og það þarf réttar upplýsingar. Afstaða foreldra skipt- ir miklu og hefur gildi í forvörnum. Foreldrar þurfa því að vera vel á verði og ræða við börn sín og aðra foreldra um málið. Til þess þurfa þeir stuðning, meiri upplýsingar og hvatn- ingu til að láta forvarnir til sín taka. Verkefni Samstarfsráðsins er að setja upp málþing í heimabyggð þar sem þessari þekkingu er miðlað. Það er öllum ljóst að ef barni líður ekki vel er það síður móttækilegt fyrir fræðslu um áhættuna af neyslu þessara efna. Ef börn búa við langvarandi vanlíðan þróa þau gjar- nan með sér einhvers konar áhættuhegðun. Sé barnið komið í slíkar aðstæður getur það staðið berskjaldað gegn markaðssókn þeirra sem bjóða þeim vímuefni. Ólýsanleg er kvöl foreldra þegar þau þurfa að horfa á barn sitt takast á við afleiðingar vímuefnaneyslu sem barnið jafnvel hóf í fikti eða vanþekkingu í þeirri trú að um hreina náttúruafurð og skaðlaust efni væri að ræða. Efni sem sumir fullorðnir með fullri meðvitund vilja helst lögleiða. Forvarnagildi samstarfs foreldra er óum- deilanlegt og virkt tengslanet foreldra er mikil- vægt forvarnatæki sem stuðlar að auknum lífsgæðum fólks. Nauðsynlegt er að gera þennan þátt forvarna sýnilegan með einum eða öðrum hætti. Það geta foreldrar m.a. gert með því að taka upp umræður um forvarnir í vinahópi barna sinna, innan bekkjarins, í skólaráðum grunnskólanna, á vettvangi frí- stundastarfs og í foreldraráðum framhalds- skóla. Með því er hægt að auka áhrif foreldra í forvörnum og veita þeim um leið meira eignarhald á því sem fram fer í skólum og tómstundastarfi. Látum kannabisneysluna ekki laumast inn og ná til barnanna okkar – byrgjum brunninn! Helga Margrét Guðmundsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Guðni Ragnar Björnsson, uppeldis- og menntunarfræðingur. Foreldrar – þetta er ekki bara gras!

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.