Skinfaxi - 01.02.2015, Page 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 1. tbl. 2015
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson,
jonkristjan@umfi.is.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Þorgeir
Baldursson, Jörgen Nilsson, Skapti Hallgrímsson,
Páll Friðriksson, Sigurður Guðmundsson, Snorri
Örn Arnaldsson, Mosfellingur o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Örn Guðnason formaður,
Gunnar Gunnarsson,
Berglind Ósk Agnarsdóttir,
Pétur Arason og
Jóhanna Hreiðarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa og kynningarfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Örn Guðnason, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Hrönn Jónsdóttir, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Ragnheiður Högnadóttir,
Baldur Daníelsson,
Kristinn Óskar Grétuson,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir.
Forsíðumynd:
Kolbeinn Höður Gunnarsson úr Ungmenna-
félagi Akureyrar hefur verið áberandi á hlaupa-
brautinni undanfarið og sett hvert metið á
fætur öðru á innanhússmótum. Þessi ungi
frjálsíþróttamaður, sem verður tvítugur í júlí
næstkomandi, er mikið efni sem vert er að
gefa auga í framtíðinni. Mikill metnaður og
gífurleg ástundun æfinga hafa komið þessum
unga pilti á þann stall sem hann er á í dag.
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.
E kki verður annað sagt en að góð frammistaða frjálsíþrótta-fólks í upphafi ársins gefi fyrir-
heit um gott ár. Frábær árangur hef-
ur náðst á nokkrum innanhússmót-
um þar sem ný Íslands- og Evrópu-
met hafa litið dagsins ljós og miklar
framfarir hafa sýnt sig hjá mörgum.
Þessi árangur í byrjun keppnistíma-
bils segir að búast megi við enn frek-
ari framförum þegar á árið líður.
Bætt aðstaða og betri þjálfun eru
líklega meginástæða fyrir bættum
árangri og margir nýir og upprenn-
andi einstaklingar eru að koma fram
í sviðsljósið. Aníta Hinriksdóttir er
tvímælalaust í hópi bestu íþrótta-
manna landsins, aðeins 19 ára
gömul, og á eflaust glæsta framtíð
fyrir höndum á hlaupabrautinni.
Evrópumet unglinga og góð
frammistaða í keppni við bestu
hlaupara heims í 800 metra hlaupi
á dögunum eru afrek til að gleðjast
yfir og hvetja hana áfram í næstu
verkefnum.
Við getum verið stolt af afrekum
Anítu, ferill hennar er rétt hafinn, og
hún á eflaust eftir að verða mikið í
sviðsljósinu á næstu árum. Við
eigum ennfremur marga aðra mjög
efnilega íþróttamenn, fleiri en oft
áður, sem eiga eftir að láta æ meira
að sér kveða á næstu misserum.
Í þessum hópi eru ekki síst íþrótta-
menn af landsbyggðinni og er það
gleðileg þróun. Það eru bara spenn-
andi tímar fram undan.
Það sem hefur vakið athygli upp
á síðkastið er glæstir sigrar ung-
mennafélagsliða í bikarmótum í
boltagreinum. Umgjörðin utan um
úrslitakeppnir í þessum greinum
hefur verið glæsileg í alla staði og
verið þeim sem að þeim hafa komið
til mikils sóma og framdráttar.
Grótta á Seltjarnarnesi hóf bikarinn
á loft í fyrsta skipti í kvennaflokki í
handknattleik en markviss upp-
bygging og sterk hefð handboltans
á Nesinu eru sannarlega farin að
bera ríkulegan ávöxt. Þarna er upp-
rennandi lið sem mun blanda sér í
baráttuna um Íslandsmeistaratitil-
inn. Karlalið Stjörnunnar í körfu-
knattleik hampaði bikarmeistara-
titli eftir æsispennandi slag við KR
sem af mörgum er talið eitt sterk-
asta liðið í körfunni nú um stundir.
Stjarnan hefur heldur betur sett
svip á körfuboltann á síðustu árum
og uppskar þarna laun erfiðisins.
Loks vann Afturelding í Mosfells-
bænum sigur í bikarkeppni kvenna
í blaki. Þar á bæ hefur verið unnið
mikið starf í þessari íþrótt sem skilar
sér síðan alla leið.
Sól hækkar á lofti og vorið er ekki
langt undan og allt að vakna til lífs-
ins. Þetta er í huga margra einn
skemmtilegasti tími ársins og
keppni í útiíþróttum að fara af stað
fyrir alvöru. Knattspyrnumenn bíða
spenntir eftir að flautað verði til
leiks og þá eru atburðir sem UMFÍ
stendur fyrir ávallt áberandi. Lands-
mót UMFÍ 50+ verður haldið á
Blönduósi í lok júní og Unglinga-
landsmót um verslunarmanna-
helgina á Akureyri.
Það er ástæða til að hlakka til
sumarsins, njóta útiverunnar og
þeirra viðburða sem í boði eru.
Fyrirheit um gott ár
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
F ulltrúar frá sambandsaðilum Ungmennafélags Íslands áttu vinnufund með starfs-
fólki UMFÍ í Þjónustumiðstöð
hreyfingarinnar í Reykjavík þann
30. janúar sl. Fundurinn var vel
heppnaður og árangursríkur.
Viðar Halldórsson félagsfræðing-
ur hélt áhugavert erindi um
áherslur í þjálfun sem hann
byggði á leiðarvísi er gefinn hef-
ur verið út og ber heitið Fram-
tíðin. Á eftir spunnust skemmti-
legar umræður. Því næst kynnti
Sigurður Guðmundsson, tóm-
stundafulltrúi UMSB, samstarf
Ungmennasambands Borgar-
fjarðar og Borgarbyggðar. Í
hádeginu voru höfuðstöðvar
Íslenskrar getspár í Laugardal
heimsóttar undir leiðsögn Stefáns
Konráðssonar framkvæmdastjóra.
Eftir hádegi fór fram kynning á
verkefnum UMFÍ og umræður
voru í kjölfarið. Fundinum lauk
síðan með opnum umræðum og
samantekt.
Vinnufundur starfsfólks UMFÍ og
sambandsaðila UMFÍ
Starfsfólk UMFÍ og sambandsaðila UMFÍ ásamt nokkrum gestum sem tóku
þátt í deginum, í höfuðstöðvum Íslenskrar getspár í Laugardal.