Skinfaxi - 01.02.2015, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Aðalfundur Keflavíkur, Íþrótta- og ung-
mennafélags, var haldinn 26. febrúar sl. Björg
Jakobsdóttir, stjórnarmaður í UMFÍ, ávarpaði
fundinn og sæmdi Kára Gunnlaugsson gull-
merki hreyfingarinnar. Kári hefur verið við-
loðandi íþróttahreyfinguna alla tíð. Hann
spilaði knattspyrnu með Íþróttabandalagi
Keflavíkur og Reyni á Árskógsströnd. Sat í
stjórnum Íþróttabandalags Keflavíkur (ÍBK)
og Knattspyrnufélags Keflavíkur (KFK) og var
síðasti formaður þess. Var hann einn af þeim
sem sameinuðu sex íþróttafélög í Keflavíkur-
bæ 1994 undir merkjum Keflavíkur og var í
fyrstu stjórninni. Hann er enn í stjórn félags-
ins og er að hefja þar sitt tuttugasta og ann-
að starfsár. Þar af hefur Kári gegnt varafor-
mennsku í 17 ár. Kári hefur tekið virkan þátt
í þingum UMFÍ og hefur m.a. verið formaður
kjörnefndar.
Einar Haraldsson var endurkjörinn for-
maður félagsins. Kári Gunnlaugsson og Birgir
Ingibergsson voru kosnir meðstjórnendur
til tveggja ára, Sveinn Adólfsson, Guðjón
Axelsson og Birgir Már Bragason voru kosnir
varamenn til eins árs.
Kjartan Másson var heiðraður með gull-
heiðursmerki Keflavíkur. Halldóra Björk Guð-
mundsdóttir úr fimleikadeild og Jón Sigur-
björn Ólafsson í körfu- og knattspyrnudeild
voru sæmd starfsmerki UMFÍ. Einar Birgir
Bjarkason hlaut Starfsbikar Keflavíkur.
„Það sem er fram undan hjá okkur er að
við erum að fara af stað með námskeið í
Nora-kerfinu, bæði fyrir stjórnendur og þjálf-
ara. Við erum einnig með umhverfisdaginn
okkar sem verður væntanlega í apríl þar sem
félagsmenn okkar og stjórnendur koma sam-
an og taka til í nærumhverfi sínu. Svo erum
Aðalfundur Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags:
Kári Gunnlaugsson sæmdur gullmerki UMFÍ
við farin að huga að Unglingalandsmóti og
Keflavíkurdagurinn verður síðan haldinn í
annað sinn í september nk.
Starfið gengur heilt yfir vel og stjórnir
deilda eiga hrós skilið fyrir glæsilega
frammistöðu hvað varðar utanumhald í fjár-
málum. Allar okkar deildir eru reknar réttum
megin við núllið og það er að myndast mjög
góð fjárhagsstaða í félaginu,“ sagði Einar
Haraldsson, formaður Keflavíkur.
Ungmennasamband Skagafjarðar hélt
95. ársþing sitt 7. mars sl. í Tjarnarbæ, félags-
heimili hestamannafélagsins Léttfeta á
Sauðárkróki sem einnig var gestgjafi að
þessu sinni.
Formannsskipti urðu í sambandinu þar
sem Sylvía Magnúsdóttir frá Hlíðarenda í
Óslandshlíð tók við af Jóni Daníel Jónssyni
sem gegnt hefur embættinu síðustu ár.
Baldur Daníelsson var fulltrúi frá UMFÍ á
ársþinginu og ávarpaði fundargesti.
Viðsnúningur varð á rekstri sambandsins
þar sem niðurstaða rekstrarreiknings sýndi
rúmlega eina milljón krónur í afgang í stað
rúmra sextán hundruð þúsunda í mínus árið
áður. Munaði þar mestu um aukna styrki
milli ára. Einnig má geta þess að UMSS sá
um Unglingalandsmótið sl. sumar. Þá var sam-
þykkt á þinginu að sækja
um að halda Unglinga-
landsmót UMFÍ 2018.
Nýja stjórn UMSS
skipa Sylvía Magnús-
dóttir formaður, Gunn-
ar Þór Gestsson, Þor-
valdur Gröndal, Guð-
mundur Þór Elíasson og
Steinunn Rósa Guðmunds
dóttir. Úr stjórn gekk Guðríður
Magnúsdóttir.
„Ég hef ekki komið að starfi UMSS áður
en ég hef setið í varastjórn Neista síðastliðið
ár. Mér finnst þetta mjög spennandi starf og
hlakka til að vinna með stjórninni að þeim
verkefnum sem fram undan eru. Ég hef mik-
inn áhuga og er viss um að ég mun fá góða
hjálp frá stjórninni til að komast inn í starfið.
Ég held að þetta sé gefandi starf, umhverfið
er heillandi og gott fólk í stjórninni.“
Sylvía Magnúsdóttir, nýr formaður UMSS:
Gefandi starf og heillandi umhverfi
Til vinstri: Kári
Gunnlaugsson og
Björg Jakobsdóttir,
stjórnarmaður
UMFÍ.
Til hægri:
Kjartan Másson og
Einar Haraldsson,
formaður Kefla-
víkur.
Sylvía Magnúsdóttir, nýr formaður UMSS.
Ungmennafélag
Kjalnesinga, UMFK,
hélt aðalfund sinn 26.
febrúar sl. í Fólkvangi á
Kjalarnesi. Á fundinum
var Ásdís Hallgríms-
dóttir kjörin nýr for-
maður. Aðrir í stjórn eru
Brynhildur Hrund Jónsdóttir,
varaformaður, Arnar Grétarsson, ritari,
Dagmar Dögg Þorsteinsdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir.
Ásdís sagði að starfsemin gengi vel og þátt-
taka í íþróttastarfi væri mikil. Íþróttafjörið
fyrir þá yngstu á skólatímanum fyrir hádegi
er alltaf vinsælt.
„Ég hef lítið komið nálægt starfinu í félag-
inu áður. Þetta er spennandi og ég hlakka til
að takast á við þetta verkefni. Á aðalfundinum
voru kosningar til formanns og stjórnar eitt
stærsta málið og svo fórum við einnig yfir
breytingar á lögum. Á næstunni liggur fyrir
að ráða íþróttafulltrúa, skipuleggja starfið
fyrir næsta starfsár og klára verkefnin sem
liggja fyrir með sóma. Vorhátíðin er fram und-
an og svo kemur félagið með rausnarlegum
hætti að Kjalarnesdögunum í sumar. Það er
því í nægu að snúast á næstunni,“ sagði Ásdís.
Ásdís Hallgrímsdóttir, nýr formaður UMFK:
Verkefnin næg og í nógu að snúast á næstunni
Ásdís Hallgrímsdóttir, formaður UMFK.