Skinfaxi - 01.02.2015, Side 14
14 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Jón Karl Ólafsson
var endurkjörinn
formaður Ung-
mennafélagsins
Fjölnis á aðalfundi
félagsins sem hald-
inn var í Egilshöll í
Grafarvogi 12. mars
sl. Helga Jóhannes-
dóttir, stjórnarmaður
í UMFÍ, ávarpaði fundinn
og sæmdi við það tækifæri Jón Karl Ólafsson
starfsmerki UMFÍ. Auk Jóns Karls skipa stjórn
Fjölnis þau Birgir Gunnlaugsson, Ásgeir Heimir
Guðmundsson, Kristján Friðrik Karlsson,
Sveinn Ingvarsson, Laufey Jörgensdóttir og
Ólöf Inga Guðbjörnsdóttir.
„Almennt séð erum við bjartsýn og gríðar-
lega ánægð með starfið. Við erum með góða
stöðu á félaginu og höldum uppi ábyrgri fjár-
málastjórn. Afreksstarf verður sífellt kostnaðar-
samara og það er umræðuefni víða hvernig
menn ætla að leysa það. Þetta er ekki bara
hjá okkur heldur í öllum félögum sem menn
eru að glíma við sama vandamálið. Við höld-
um, þegar á heildina er litið, úti öflugu ung-
mennastarfi, við sjáum stækkun í öllum deild-
um og fyrir það getum við verið kát,“ sagði
Jón Karl.
Jón Karl segir byggingu nýs fimleikahúss í
Ungmennafélagið Þróttur hélt aðalfund
sinn 26. febrúar sl. Með sanni má segja að
fundurinn fari í sögubækurnar því á annað
hundrað manns mætti á fundinn og er alveg
greinilegt að áhugi bæjarbúa á Ungmenna-
félaginu er mikill. Helgi Gunnarsson, fjármála-
stjóri UMFÍ, ávarpaði fundinn fyrir hönd
UMFÍ.
Farið var yfir skýrslu stjórnar og ársreikn-
ingur lagður fram til samþykktar. Svava Arnar-
dóttir formaður gaf ekki kost á sér til for-
manns og var Gunnar Helgason kosinn í
hennar stað. Aðrir í stjórn eru Íris Pétursdótt-
ir, Ingimar Jón Kristjánsson, Irma Þöll Þor-
steinsdóttir og Kristján Árnason. Í varastjórn
eru Guðmann R. Lúðvíksson og Magga Lena
Kristinsdóttir.
„Starfið leggst gríðarlega vel í mig en upp-
gangur hefur verið töluverður í félaginu og
er gaman að taka þátt í honum áfram. Ég er
búinn að vera lengi viðloðandi þetta félag en
ég skráði mig í það
1985 þegar ég var tólf
ára gamall. Ég hef áður
gegnt formennsku í félaginu
svo að ég veit nokkurn veginn að hverju ég
geng. Ég hef verið viðloðandi félagið meira
eða minna, í nefndum og öðrum störfum,“
sagði Gunnar.
Gunnar sagðist hafa verið tilbúinn að
taka aftur að sér formennskuna enda mikill
ungmennafélagsmaður. Hann sagði starfið
stöðugt og öflugt og starf félagsins að lang-
mestu leyti tengt íþróttum.
„Við tókum í notkun 2012 gríðarlega
mikla íþróttaaðstöðu sem bylti umhverfinu
hjá félaginu. Þá voru tekið í notkun gras-
svæði á stærð við tvo knattspyrnuvelli. Þetta
svæði höfum við verið að nýta okkur til fulls.
Við erum fullir tilhlökkunar í því starfi sem
fram undan, en það er margt í boði í því
sambandi,“ sagði Gunnar.
Gunnar Helgason, nýkjörinn formaður Þróttar:
Gaman að taka þátt í uppgangi félagsins
fullum gangi og þegar það verður tekið í notk-
un verður það mikil lyftistöng fyrir fimleika-
deildina. Fjölnir á í viðræðum við borgaryfir-
völd um byggingu á nýju íþróttahúsi sem
myndi þá að öllum líkindum rísa við Borgar-
holtsskóla. Jón Karl sagði félagið glíma við
húsnæðisvanda og því brýnt að koma upp
nýju íþróttahúsi. Í hverfinu, þar sem íbúar eru
um tuttugu þúsund, er aðeins eitt löglegt
Jó Karl Ólafsson endurkjörinn formaður Fjölnis:
Félagið heldur úti öflugu ungmennastarfi
íþróttahús, í Dalhúsum. Þetta gengur ekki til
lengdar en samkvæmt nýju skipulagi hverfis-
ins á að bæta við 3–4 þúsund nýjum íbúðum
á næstu árum.
„Nýtt íþróttahús í Grafarvoginum er búið
að vera lengi í umræðunni. Þegar hverfið var
að byggjast upp voru byggðir litlir íþrótta-
salir við alla skóla sem nýtast illa í starfi
íþróttafélags í alvöruíþróttarekstri. Við eigum
í viðræðum við borgina og Borgarholtsskóla
en samkvæmt skipulagi á að byggja húsið við
þann skóla. Hugmyndafræðin snýst um að fá
í gegn að Borgarholtsskóli og Fjölnir geti í
sameiningu komið að því að nýta þessa við-
bótaraðstöðu. Viðræður eru á góðu róli en
það er alltaf erfitt að fá aðila til að skrifa undir
síðasta pappírinn. Allir eru sammála um að
þörf sé á þessu og að þetta verði hagkvæm
niðurstaða fyrir alla aðila,“ sagði Jón Karl.
Aðspurður almennt um framtíðina segir
Jón Karl að Fjölnir sé stórveldi í íþróttum og
að félagið ætli að halda þeirri stöðu.
„Við ætlum að eflast og verða enn sterkari,
það er ekkert annað í kortunum hjá okkur.
Við horfum bjartsýn fram á veginn,“ sagði
Jón Karl.
Gunnar Helgason, formaður Þróttar.
Helga Jóhannes-
dóttir, stjórnar-
maður í UMFÍ, og
Jón Karl Ólafsson,
formaður Fjölnis.