Skinfaxi - 01.02.2015, Page 15
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 15
Héraðssambandið Skarp-
héðinn hélt 93. héraðsþing
sitt í félagsheimilinu á
Flúðum 15. mars sl. Um
100 þingfulltrúar og
gestir mættu á þingið.
Góð mæting var þrátt
fyrir að þinginu hafi ver-
ið frestað til sunnudags
vegna veðurs. Kjartan
Lárusson, Umf. Laugdæla,
var sæmdur gullmerki HSK og er þetta í 12.
sinn sem það er afhent.
Örn Guðnason, stjórnarmaður í UMFÍ,
ávarpaði héraðsþingið og sæmdi þrjá ein-
staklinga starfsmerki UMFÍ, en það voru
Bergur Pálsson, Umf. Selfoss, Guðmunda
Ólafsdóttir, Umf. Vöku, og Lárus Ingi Frið-
finnsson, Íþróttafélaginu Hamri. Karl Gunn-
laugsson, GF, var sæmdur heiðurskrossi ÍSÍ
og er þetta í sjöunda sinn sem félagsmaður
innan HSK hlýtur þann heiður.
Um 30 tillögur voru samþykktar á þinginu.
Rekstur sambandsins var jákvæður um 1,6
milljón kr. Þess má geta að sambandið er
skuldlaust og eigið fé þess um 18 milljónir.
Breytingar urðu á stjórn sambandsins.
Bergur Guðmundsson ritari gaf ekki kost á
sér til endurkjörs en í hans stað kom inn
Helgi S. Haraldsson. Einnig lét Fanney Ólafs-
dóttir af störfum sem meðstjórnandi og í
hennar stað kom Helga Kolbeinsdóttir. Aðrir
í stjórn eru Guðríður Aadnegard, formaður,
Guðmundur Jónasson, gjaldkeri, og Örn
93. héraðsþing HSK á Flúðum:
Það er jákvæðni alls staðar og mikill kraftur
Guðnason, varaformaður. Þá kom Rut Stefáns-
dóttir inn sem varamaður fyrir Jóhannes Óla
Kjartansson. Í varastjórn eru, auk Rutar, Anný
Ingimarsdóttir og Gestur Einarsson.
Íþróttafólk í þeim 22 íþróttagreinum sem
stundaðar eru innan sambandsins var heiðr-
að og úr þeirra hópi var Dagný Brynjarsdóttir
valin íþróttamaður HSK 2014.
Ýmis sérverðlaun voru veitt á þinginu.
Íþróttafélagið Dímon var stigahæsta félagið,
Umf. Baldur fékk unglingabikar HSK og knatt-
spyrnudeild íþróttafélagsins Hamars hlaut
foreldrastarfsbikar HSK. Þá var Guðni Guð-
mundsson, íþróttafélaginu Garpi, valinn öðl-
ingur ársins.
Samkvæmt venju fór sleifarkeppni HSK
fram á þinginu og þar sigraði Sigþrúður
Harðardóttir, Umf. Þór. Þá var Sæmundur
Steingrímsson, Umf. Þór, útnefndur mat-
maður þingsins.
„Þetta var gott þing og þrátt fyrir að við
hefðum þurft að seinka því um einn dag
vegna veðurs var mætingin ótrúlega góð.
Eins og kom fram á þinginu gengur rekstur
héraðssambandsins mjög vel, við skiluðum
hagnaði og skuldum ekkert. Það skiptir öllu
máli að starfa í svona umhverfi. Nefndastörf
á þinginu gengu vel og tvö ný félög voru
tekin inn, Lyftingafélagið Hengill og Íþrótta-
félagið Mílan. Það er skemmtilegt að segja
frá því að mjög margir sterkir kandídatar
komu til greina sem íþróttamaður HSK sem
segir hvað við eigum margt öflugt og efni-
legt íþróttafólk,“ sagði Guðríður Aadnegard.
Guðríður segir starfið í heild sinni ganga
mjög vel, það sé mikil starfsemi og mikil
virkni. Það sé ekki síst að þakka iðkendum,
foreldrum, þjálfurum og styrktaraðilum og
að án þessara aðila yrði starfið ekki eins
öflugt og raun ber vitni.
„Starfið heldur bara áfram og við stefnum
að því að mæta með öfluga hópa á Lands-
mót UMFÍ 50+ og Unglingalandsmótið í sum-
ar. Við héldum fjármálaráðstefnu á síðasta ári
sem gekk afar vel og það kom fram á þinginu
að fólk vill gjarnan fá fleiri ráðstefnur sem nýt-
ast vel í starfinu. Það er gaman í starfinu þeg-
ar vel gengur. Það er jákvæðni alls staðar og
mikill kraftur og hrein forréttindi að fá starfa
við þessar aðstæður og með þessum frá-
bæra fólki,“ sagði Guðríður.
Lárus Ingi Frið-
finnsson, Guð-
munda Ólafsdóttir
og Bergur Páls-
son, ásamt Erni
Guðnasyni, stjórn-
armanni UMFÍ.
Sími 470 8100 / Fax 4708101 / sth@sth.is / www.sth.is