Skinfaxi - 01.02.2015, Síða 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Á
haustmánuðum á síðasta ári undir-
rituðu Borgarbyggð og Ung-
mennasamband Borgarfjarðar
samstarfssamning um tómstunda-
starf 6 til 16 ára barna í Borgar-
byggð. Tilgangurinn með samn-
ingnum er að auka fjölbreytni í tómstunda-
starfi fyrir börn á grunnskólaaldri, fjölga þátt-
takendum í skipulögðu félags- og tóm-
stundastarfi og að stuðla að því að vinnu-
dagur barnanna verði sem heildstæðastur.
Hlutverk UMSB samkvæmt samningnum
er að sjá um og skipuleggja íþrótta- og tóm-
stundaskóla fyrir börn í 1.–4. bekk, starfsemi
félagsmiðstöðva fyrir unglinga, sumarfjör
fyrir börn í 1.–7. bekk og vinnuskóla fyrir börn
í 8.–10. bekk.
Íþrótta- og tómstundaskóli
Helsta nýmælið í tómstundastarfi samkvæmt
samningnum er stofnun íþrótta- og tóm-
stundaskóla. Starfsemi skólans verður byggð
upp í góðu samstarfi við íþróttafélögin sem
halda úti æfingum fyrir börn á þessum aldri.
Ætlunin er að geta boðið börnunum upp á
að æfa þær greinar sem þau vilja en um leið
að kynna fyrir þeim aðrar greinar sem í boði
er að æfa í sveitarfélaginu.
Auk íþróttaæfinga er stefnt að því að bjóða
upp á fjölbreytt tómstundastarf, svo sem leik-
list, myndlist, tónlist, skátastarf, útivist, kynn-
ingu á starfsemi björgunarsveitanna og
fleira. Með stofnun skólans er leitast við að
jafna tækifæri barna í sveitarfélaginu til
íþrótta- og tómstundaiðkunar.
Íþrótta- og tómstundaskóli UMSB:
Sjáum mikla aukningu í
Samstarfið gengur mjög vel
Sigurður Guðmundsson, sem hóf störf sem
tómstundafulltrúi í nóvember sl., var inntur
eftir því hvernig tómstundastarfið gengi en
hann hefur mikla reynslu á sviði íþrótta- og
æskulýðsmála.
„Samstarfið er tiltölulega rétt nýhafið en
það gengur mjög vel í alla staði. Það skemmti-
legasta í þessu öllu saman er að þátttaka í
íþróttum hefur aukist. Við getum nefnt sem
dæmi þátttöku nemenda í 1.–4. bekk í Borg-
arnesi. Þar voru þátttakendur 20 fyrir áramót
en núna eru þeir rúmlega 40 talsins. Við sjá-
um mikla aukningu í öllum greinum í kjölfar
stofnunar íþrótta- og tómstundaskólans en
UMSB sér um allt utanumhald. Með þessu
verður foreldrum ljóst hvað er í boði sem
skiptir miklu máli. Við bjóðum ekki einungis
upp á íþróttir heldur líka listgreinar eins og
listasmiðju, leiklist og leikræna tjáningu.
Ennfremur erum við í samstarfi við tónlistar-
skólann með hóptíma í tónlist. Golfið er nýtt
„Við bjóðum ekki
einungis upp á
íþróttir heldur líka
listgreinar eins og
listasmiðju, leiklist
og leikræna tjáningu.
Ennfremur erum við í
samstarfi við tónlistar-
skólann með hóptíma
í tónlist.“
Sigurður Guðmundsson,
tómstundafulltrúi UMSB.