Skinfaxi - 01.02.2015, Qupperneq 17
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 17
öllum greinum
af nálinni en aðstæður þar eru í einu orði
sagt frábærar. Við ætluðum okkur að gera
góða hluti og þeir eru að ganga eftir,“ sagði
Sigurður.
Aukin fjölbreytni og þátttaka
Sigurður sagði að markmiðið með samstarf-
inu væri að auka fjölbreytni í greinum og að
auka þátttöku ungmennanna. Hann segir að
þessum markmiðum hefði verið náð á fyrstu
mánuðunum.
„Þetta á bara eftir að eflast enn frekar og
fjölbreytnin um leið. Það sem er líka gaman
í þessu er að íþrótta- og tómstundaskólinn
er rekinn á fjórum stöðum í Borgarbyggð, í
Borgarnesi, á Hvanneyri, Kleppsjárnsreykjum
og Varmalandi. Það er starfsemi á öllum þess-
um stöðum þannig að krakkarnir fara í tóm-
stundastarfið strax og skóla lýkur. Á öllum
þessum stöðum bjóðum við upp á t.d. list-
greinar, leiklist og svo að sjálfsögðu upp á
íþróttaæfingar. Auk þessa fara krakkarnir líka
á æfingar í Borgarnesi. Foreldrar eru mjög
ánægðir með þetta og ekki síður fjölbreytn-
ina í því sem í boði er. Það eru ekki bara jaðar-
íþróttir heldur er komið eitthvað nýtt sem
ánægja ríkir með,“ sagði Sigurður.
Byggt upp hægt og rólega
Í þessu samstarfi tekur UMSB líka við félags-
miðstöðvunum í Borgarnesi og á Bifröst. Að
sögn Sigurðar verður starfsemin þar byggð
upp hægt og rólega.
„Það er spennandi að sjá hvernig þetta
samstarf þróast. Ég held að samstarfið eigi
bara eftir að vaxa og dafna og verða enn
betra í framtíðinni,“ sagði Sigurður Guð-
mundsson, tómstundafulltrúi UMSB,
í spjallinu við Skinfaxa.