Skinfaxi - 01.02.2015, Qupperneq 19
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 19
M ikill metnaður og frábær ástundun hefur komið Jóni Margeiri Sverris-syni í hóp þeirra bestu í heiminum
úr röðum fatlaðra sundmanna. Þjóðin öll var
stolt yfir afreki hans þegar hann vann til gull-
verðlauna á Ólympíumóti fatlaðra í London
2012. Jón Margeir, sem keppir undir merkjum
Ungmennafélagsins Fjölnis, varð ólympíu-
meistari í 200 metra skriðsundi í flokki S14 á
heimsmeti sem er enn í gildi. Auk þess á
hann heimsmetið í 800 og 1500 metra skrið-
sundi í sínum flokki.
Markmiðin eru skýr
Jón Margeir hefur ekki látið deigan síga,
hann stefnir enn hærra, verkefnin eru næg
fram undan og hann hefur sett stefnuna á
Ólympíumótið í Ríó 2016. Undirbúningur er
þegar hafinn og markmiðin eru skýr.
Jón Margeir Sverrisson, Fjölni, og Thelma
Björg Björnsdóttir, ÍFR, voru undir lok síðasta
árs kosin íþróttafólk ársins 2014 hjá Íþrótta-
sambandi fatlaðra. Þetta var í fjórða sinn sem
Jón Margeir hlýtur nafnbótina. Árangur Jóns
á árinu 2014 var einkar glæsilegur þar sem
hann setti tvö ný heimsmet og fjögur Evrópu-
met. Hann setti að auki samtals tíu Íslands-
met í 25 metra laug og sjö í 50 metra laug.
Stífar og erfiðar æfingar
„Núna einbeitir maður sér að stífum og erfið-
um æfingum og því að byggja sig sem best
upp fyrir heimsmeistaramótið sem verður
haldið í Glasgow í júlí. Ég geri ekkert annað
í dag en að æfa og keppa í sundi og fara í
líkamsræktina. Ef veturinn væri ekki svona
erfiður væri ég búinn að fara út að hjóla.
Til að standa sig á stórmótum og ná því að
standa jafnfætis þeim bestu verður maður
alfarið að geta helgað sig sundinu. Það tekst
mér og það skiptir öllu máli,“ sagði Jón Margeir.
Æfir með þeim sterkustu
Jón Margeir hefur æft sund frá því að hann
var sjö ára gutti. Í upphafi var hann hjá Ösp
en í kringum níu ára aldurinn gekk hann í
Fjölni og hefur verið þar síðan. Hann æfir
eingöngu með ófötluðum sundmönnum í
dag og eins og hann orðar það sjálfur, það
skiptir öllu máli að fá að æfa með sterkustu
sundmönnum landsins.
Stefnir á gullverðlaun
Þegar Jón Margeir er inntur eftir markmiðum
sínum segir hann þau vera að standa sig vel í
þeim verkefnum sem hann tekur þátt í.
„Markmið mín eru þau að standa mig vel
á Heimsmeistaramótinu og á Ólympíumót-
inu. Ég stefni að því að vinna til gullverð-
launa á þessum mótum báðum.“
- Hvað hefur sundíþróttin gert fyrir þig í lífinu?
„Það er svo afar margt. Sundið heldur mér í
formi en þetta er mjög erfið íþrótt. Það þarf
mikinn aga, skipulagningu og góða ástund-
un til að ná árangri. Aðalgrein mín er skrið-
sund og svo hef ég einnig verið að synda
flugsund, bringusund og baksund. Ég hef
upp á síðkastið hvílt mig á flugsundi og ein-
beiti mér í staðinn að bak- og bringusundi.“
Jón Margeir Sverrisson,
heimsmethafi í sundi:
Skiptir öllu að geta
alfarið einbeitt sér
að sundinu
- Hver er stærsta stund þín á ferlinum til þessa?
„Það er ógleymanlegt þegar ég fékk gull-
verðlaunin á Ólympíumótinu í London. Silfur-
verðlaunin á HM og gullverðlaun á EM standa
líka upp úr. Þetta er búinn að vera frábær tími
og margs að minnast. Ég ætla að njóta mín í
sundinu áfram en síðan hef ég áform um að
snúa mér að þríþrautinni eftir Ólympíuleik-
ana í Ríó. Þríþrautin finnst mér spennandi
og hún á örugglega eftir að henta mér. Það
eru bara spennandi tímar fram undan,“ sagði
Jón Margeir Sverrisson.