Skinfaxi - 01.02.2015, Page 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
M
argir hafa kynnst borðtennis-
íþróttinni með einum eða
öðrum hætti. Hjá mörgum er
borðtennis dægrastytting, þar
sem vinir og vandamenn hitt-
ast og spila saman. Borðtennisborð eru víða
í grunn- og framhaldskólum landsins og jafn-
vel í fyrirtækjum. Borðtennis er vinsæl íþrótta-
grein á heimsvísu og er m.a. gríðarlega út-
breiddur í Asíu. Frá Evrópu hafa einnig kom-
ið mjög sterkir spilarar.
Sterkasti borðtennisspilari á Íslandi er án
efa Guðmundur Stephensen en hann afrek-
aði það að verða Íslandsmeistari tuttugu ár
í röð. Hann lék í nokkur ár á erlendri grundu
við góðan orðstír og náði m.a. að komast í
198. sæti á heimslistanum í borðtennis árið
2011. Reykjavíkurfélögin Víkingur og KR hafa
í gegnum tíðina starfrækt sterkar borðtennis-
deildir og eins hafa félög víða um land rekið
deildir.
Sigurður Valur Sverrisson, formaður Borð-
tennissambands Íslands, segir það mark-
vissa stefnu að halda úti góðri útbreiðslu á
borðtennisíþróttinni hér á landi og kynning-
ar í þeim efnum séu alltaf í gangi.
Norðurlandsdeild stofnuð
„Við héldum námskeið í haust í Eyjafirði og
í framhaldinu var stofnuð svokölluð Norður-
landsdeild. Í deildinni taka þátt Ungmenna-
félagið Samherji, Ungmennafélagið Æskan
og Askur. Til stóð að Magni yrði einnig með
en ekki varð af því að þessu sinni. Deildin
er farin af stað, leikið er heima og heiman
og þetta lofar góðu. Það er stefnan hjá
Borðtennissambandinu að koma svona
deildum á fót víðar um land. Við lítum til
Austfjarða og Snæfellsness í þeim efnum
sem komandi verkefni. Það eru margir sem
vilja fá námskeið og við viljum helst halda
þau í samvinnu við íþróttafélögin á hverjum
stað. Þannig nýtast þessi námskeið best, til
framtíðar litið,“ sagði Sigurður Valur í samtali
við Skinfaxa.
Sigurður Valur sagði dæmið fyrir norðan
mjög spennandi og hann vonaðist eftir því
að liðum myndi fjölga á næsta ári. Gaman
yrði að fá lið Magna en félagið er frægt frá
fornu fari og átti á sínum tíma landsliðsfólk.
Aukning hjá fyrirtækjum
- Svo virðist sem að fólk sé alls staðar að leika
borðtennis sér til skemmtunar?
„Já, það er alveg rétt enda er ekki mikið mál
að setja upp borð og spila. Það eru hins
vegar fáir sem kunna reglurnar til hlítar en
þær hafa tekið ýmsum breytingum á síðustu
15 árum. Formlega eru iðkendur um 700
talsins hér á landi en vissulega er borðtennis
spilaður úti um allt land. Mér hefur fundist
m.a. aukning í því að fyrirtæki komi borðum
upp hjá sér svo að starfsmenn geti spilað.
Borðtennissambandið getur tekið með sér
borð til að halda námskeið og kynningar
en sambandið fékk styrk úr íþróttasjóði
til borðakaupa í þessum tilgangi,“ sagði
Sigurður Valur Sverrisson.
Stefnan er að koma á
deildum víða um land
Sameiginlegt markmið borðtennishreyfing-
arinnar er að Íslendingar eigi hverju sinni
afreksfólk í borðtennis sem skipar sér í
fremstu röð. Markmiðið er að tryggja mögu-
leika afreksfólks framtíðarinnar til að ná
settu marki, stuðla að bættum aðstæðum
iðkenda og auka menntun, færni og kunn-
áttu þjálfara á Íslandi. Í því felst að efla hæfni
og færni allra þeirra sem koma að afreks-
starfi borðtennishreyfingarinnar í nútíð, en
ekki síður þeirra sem vinna fyrst og fremst
við uppbyggingu afreksfólks framtíðarinn-
ar. Til þess að ná markmiðum sínum setur
borðtennishreyfingin sér tímabundnar og
markvissar áætlanir um frammistöðu á stór-
mótum svo sem HM og EM. Borðtennissam-
band Íslands setur sér markmið og kynnir
þau fyrir borðtennishreyfingunni og afreks-
sviði ÍSÍ. BTÍ stefnir til langframa að því að
styðja við einstaklinga og félög þannig að
þau geti styrkt sig og unnið að langtíma-
markmiðum. Árangur í keppni er metinn
sem skref til aukinna afreka.
Í afreksstefnu Borðtennissambands Íslands segir:
Sigurður Valur Sverrisson, formaður Borð-
tennissambands Íslands
„Formlega eru
iðkendur um 700
talsins hér á landi
en vissulega er
borðtennis spilaður
úti um allt land.“
„Það er
ekki mikið
mál að
setja upp
borð og
spila.“