Skinfaxi - 01.02.2015, Page 28
28 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Á rangur íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik hefur vakið verð-skuldaða athygli í körfuboltaheimin-um. Menn trúa varla sínum eigin augum þegar þeir sjá að íslenskt
landslið er á leið í úrslitakeppni Evrópumóts-
ins. Þar etur liðið kappi við bestu lið Evrópu
í riðli sínum sem verður leikinn í Berlín.
Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknatt-
leikssambands Íslands, segir að í mörg horn
sé að líta í undirbúningi landsliðsins fyrir
úrslitakeppnina í haust en að þetta sé ofsa-
lega spennandi og gaman. Hann segir þetta
frábært afrek og fyrir íslenskan körfubolta
þarf að nýta þetta tækifæri út í æsar.
„Ég er viss um að þetta mun nýtast hreyf-
ingunni í heild sinni vel og tíminn fram undan
er bara spennandi. Árið 2015 verður mjög
stórt og nóg við að fást hvert sem litið er. Öll
yngri landsliðin í drengja- og stúlknaflokkum
standa frammi fyrir miklum verkefnum.
A-landslið kvenna tekur þátt í nýju verkefni í
kringum Evrópukeppnina þar sem leikið verð-
ur heima og heiman og í undirbúningi sín-
um mun liðið leika æfingaleiki í júlí. Sjálf
forkeppni Evrópumótsins hefst í nóvember
og heldur svo áfram í febrúar á næsta ári.
Þetta er nýtt í evrópskum körfubolta og síðan
mun karlaliðið fara inn í svipað fyrirkomulag
frá og með árinu 2017, þar sem keppt er
heima og heiman. Núna hefur þetta bara
verið yfir sumarið og það hefur háð körfu-
boltanum sem íþrótt að vera með landslið
okkar í gangi á sumrin og þess á milli gerist
ekkert. Í kjölfar árangurs A-landsliðsins finn-
um við mikinn meðbyr og þá ekki síst frá
þjóðinni sjálfri en einnig úti í heimi. Það er
alveg sama hvar maður kemur, fólk er að
ræða það að Ísland sé á leiðinni í úrslita-
keppni Evrópumótsins. Þetta er einstakt
afrek og það hefur engin jafn fámenn þjóð
keppt á lokamóti á vegum FIBA. Það er því
klárlega verið að skrifa nýjan kafla í stóru
sögubókina ef við getum sagt svo,“ sagði
Hannes í spjalli við Skinfaxa.
- Hver er ástæðan fyrir því að liðið er komið í
úrslit á stórmóti sem þessu?
„Það er vegna þess, að ég tel, að við eigum
þvílíka snillinga sem hafa gefið sig af fullum
krafti í landsliðið á síðustu 10–12 árum, í verk-
efni sem í boði hafa verið. Stóra atriðið í þess-
ari umræðu er þetta stóra íslenska hjarta.
Við erum líka með hæfileikaríka körfubolta-
menn sem hafa verið að koma upp á síðustu
árum í gegnum yngri landsliðin okkar. Auð-
vitað er búið að vinna undirstöðuna úti í
körfuboltahreyfingunni þannig að vinna
síðustu 10–15 ára gerir það nú að verkum að
við erum komin þetta langt með A-landslið
karla í dag. Það hefur líka klárlega hjálpað
okkur að megnið af leikmönnum leikur nú
sem atvinnumenn á erlendri grundu. Við eig-
um að stefna að því að eignast fleiri atvinnu-
menn í framtíðinni. Að eignast fleiri atvinnu-
menn, bæði á meðal karla og kvenna, er það
sem mun koma íþróttinni á enn hærra plan.
Þetta á við allar íþróttagreinar því að auð-
vitað kemur það landsliðum okkur til góða
þegar leikmenn geta helgað sig alfarið íþrótt
sinni,“ sagði Hannes.
- Þessi framganga A-landsliðs karla hlýtur að
hafa verið mikil og góð auglýsing fyrir körfu-
boltann og hefur hjálpað ykkur í útbreiðslunni
til lengri tíma litið?
„Jú, klárlega og í útbreiðslunni sem slíkri. Við
erum búin að sýna þjóðinni hvað við höfum
verið að gera hin síðustu ár. Þessi árangur á
bara eftir að gera körfuboltann enn stærri.
Það er mjög ánægjulegt að sjá að körfubolt-
inn hefur verið ein vinsælasta íþróttagreinin
í landinu á undanförnum árum og við ætlum
að halda því áfram.“
- Hvaða verkefnum er nú unnið að fyrir stóra
verkefnið í Berlín?
„Það liggur fyrir í stórum dráttum en fyrsta
verkefnið verður þátttaka karla- og kvenna-
liðsins á Smáþjóðaleikunum sem verða hér
á landi í byrjun júní. Karlalandsliðið kemur
síðan aftur saman um miðjan júlí og þá taka
við æfingar og frekari undirbúningur. Í byrjun
ágúst verða hér heima tveir leikir við Hollend-
inga, svo verður farið á æfingamót í Eistlandi
og lokadæmið verður síðan æfingamót í Pól-
landi og þaðan farið beint til Berlínar. Allar
þjóðir, sem við leikum við á æfingamótun-
um, eru einnig að fara á úrslitakeppni
Evrópumótsins,“ sagði Hannes.
- Íslenskur körfubolti er nú líklega í þeim
sporum sem hann hefur aldrei staðið í áður.
„Svo sannarlega, þannig er það bara. Eitt er
mjög ánægjulegt í þessu ferli öllu. Það er að
stór hópur Íslendinga mun leggja leið sína
á mótið til að styðja íslenska liðið. Það fóru
rúmlega 500 aðgöngumiðar í forsölu hjá KKÍ
og svo vitum um 200–300 manns sem hafa
orðið sér úti um miða á mótið í Berlín í gegn-
um miðasöluna hjá FIBA og keppnishöldur-
unum. Þessi mikli áhugi Íslendinga sýnir
hversu stórt og mikið afrek þetta er.“
- Þegar svona er ástatt hlýtur vinnan í hreyf-
ingunni að vera skemmtileg og uppörvandi.
„Hún er það en það eru alltaf í gangi krefj-
andi verkefni og því verðum við að vera á
tánum gagnvart ýmsu öðru. Við viljum auð-
vitað nýta þennan meðbyr til að breiða út
boðskapinn til framtíðar litið og fá fleiri til
að iðka íþróttina. Þetta er mjög skemmtilegt
og krefjandi en margt sem verður að hafa í
huga. Nú fær íslenska liðið forsmekkinn af
því að taka þátt í úrslitakeppni á stórmóti
og vonandi tekst okkur það í náinni framtíð.
Stefnan er að stelpurnar fylgi í kjölfarið og
verði með á stórmótum á næstu árum. Ef allt
gengur upp hjá okkur eigum við að vera að
keppast um að komast á þessi stórmót og
komast sem vonandi oftast á þau. Við erum
að horfa á það til framtíðar að í síðasta lagi
2021 verði stelpurnar með á stórmóti,“ sagði
Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknatt-
leikssambands Íslands, í spjalli við Skinfaxa.
Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands:
Árangur
A-landsliðsins
mun nýtast
hreyfingunni í
heild sinni vel