Skinfaxi - 01.02.2015, Síða 31
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Íþrótta- og leikjadagur Félags áhugafólks um
íþróttir aldraðra, FÁÍA, var haldinn í íþróttahús-
inu í Austurbergi í Breiðholti 18. febrúar sl.
Þetta var í 30. sinn sem þessi dagur er haldinn
og var mikil og góð stemning á hátíðinni. Vel
var mætt á hátíðina og skein gleði og ánægja
úr hverju andliti. Á íþrótta- og leikjadeginum
komu fram nokkrir hópar af Stór-Reykjavíkur-
svæðinu og úr Reykjanesbæ og sýndu atriði
við góðar undirtektir áhorfenda.
Þess má geta að fyrsti íþróttadagur Félags
áhugafólks um íþróttir aldraðra var haldinn
1985 en fyrstu sex árin komu eldri borgarar
saman og gerðu sér glaðan dag á gervigras-
vellinum í Laugardal. Mikil vakning hefur orð-
ið í íþróttum og hreyfingu almennt meðal
eldri borgara hin síðustu ár og er ljóst að hún
mun aðeins vaxa enn frekar á næstu árum.
„Það er alltaf ánægjulegt að koma saman
á þessum degi og þetta er jafnan stór dagur
í okkar huga. Starfið innan Félags áhugafólks
um íþróttir aldraðra stendur með blóma og
við erum þakklát fyrir samstarfið með Ung-
mennafélagi Íslands sem hefur veitt okkur
mikinn og góðan stuðning í gegnum tíðina,“
sagði Þórey S. Guðmundsdóttir, formaður FÁÍA.
Íþrótta- og
leikjadagur FÁÍA
haldinn í 30. sinn:
Alltaf jafn ánægjulegt að koma saman
Íþróttafólk ársins 2014
Skíðakappinn Sævar Birgisson í
Skíðafélagi Ólafsfjarðar var kjörinn
íþróttamaður Fjallabyggðar. Þetta var
fjórða árið í röð sem Sævar hlýtur þessa
nafnbót. Kjör á Íþróttamanni Fjalla-
byggðar er samstarfsverkefni UÍF og
Kiwanisklúbbsins Skjaldar.
Ólöf María Einarsdóttir
í Golfklúbbnum Hamri í
Dalvíkurbyggð var kjörin
íþróttamaður UMSE. Ólöf
María náði frábærum
árangri á síðasta ári og er
tvímælalaust í hópi efnileg-
ustu kylfinga landsins.
Hafdís Sigurðardóttir var valin
íþróttamaður UFA og Akureyrar.
Hafdís setti m.a. þrjú Íslandsmet og
vann fjölda Íslandsmeistaratitla á
árinu.
Boccia-
maðurinn
Kristbjörn
Óskarsson
í Völsungi
var valinn íþróttamaður Húsavíkur
2014. Kjörinu var lýst við athöfn í
Íþróttahöllinni á Húsavík. Kiwanis-
klúbburinn Skjálfandi stóð að kjörinu.
Íþróttamaður Hattar árið 2014 var
fótboltakonan Heiðdís Sigurjóns-
dóttir. Heiðdís lék 5 leiki með U19
landsliði Íslands sem tryggði sér þátt-
tökurétt í milliriðli fyrir úrslitakeppni
EM sem fram fer í Ísrael.
Bjarni
Bjarnason,
Hestamanna-
félaginu
Trausta, var útnefndur Íþróttamaður
Bláskógabyggðar. Hápunktur ársins
var þegar Bjarni og Hera frá Þórodds-
stöðum sigruðu í 250 m skeiði á Lands-
móti hestamanna á Hellu og settu þar Íslands- og heimsmet.
Ástrós Brynjarsdóttir var valin
Íþróttamaður Reykjanesbæjar
árið 2014. Ástrós hlaut einnig
verðlaunin í fyrra en hún var
valin taekwondokona Íslands
árin 2012, 2013 og nú í ár.
Knattspyrnufólkið Daníel
Leó Grétarsson og Guðrún
Bentína Frímannsdóttir voru
kjörin íþróttamaður og íþrótta-
kona Grindavíkur 2014 við
hátíðlega athöfn í Hópsskóla á
gamlársdag.
Knattspyrnukonan Guð-
munda Brynja Óladóttir
og taekwondomaðurinn
Daníel Jens Pétursson,
bæði í Umf. Selfoss, eru
íþróttakona og íþróttakarl
Árborgar 2014.