Morgunblaðið - 13.01.2015, Side 4

Morgunblaðið - 13.01.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Þetta var með alversta móti á sunnudaginn og í gripahúsunum sást ekki stafna á milli vegna meng- unarmisturs,“ segir Sigvaldi H. Ragnarsson, bóndi á Hákonar- stöðum á Efra Jökuldal. Mikil brennisteinsmengun mældist þar á sunnudaginn og menn sem voru á ferð í grennd við Kárahnjúka sögðu að mikil móða hefði verið til landsins og þeir hefðu nánast keyrt á vegg. Á sunnudag mældist gildi brenni- steins, SO2, um 7.800 míkrógrömm í rúmmetra á handmæli á Eiríks- stöðum á Jökuldal. Við slíkt ástand er fólki ráðlagt að halda sig innan- dyra og loka gluggum. Sigvaldi segir að kalt hafi verið og stillt en vindur norðvestlægur við gosstöðvarnar í Holuhrauni. Við slíkar aðstæður virtist mengunin verða hvað mest, en reynt sé að loftræsta húsin. Í gær var gott veður og bjart eystra. „Í fjárhúsunum mætir brenni- steinsmengunin hlýju og röku lofti og pakkast einhvern veginn saman. Um tíma á sunnudaginn var eins og að horfa inn í rými sem væri fullt af lyktarlausum útblæstri frá dísilvél,“ segir Sigvaldi. Hann segist ekki gera sér grein fyrir hvaða áhrif þessar aðstæður hafi á féð, sem allt er á húsi, en segir að það kæmi sér ekki á óvart að ungviði sem nú er á fyrsta vetri gengi hraðar úr sér en ella vegna lungnavandamála. Ryðhúð á járni Þá segir hann að mengunin hafi greinilega ýmiss konar önnur áhrif og skapi vandamál sem ekki hafi áð- ur verið þekkt í sveitinni. „Við erum langt inni í landi og hér hefur eig- inlega aldrei ryðgað nokkur skap- aður hlutur. Hér eru hálfrar aldar gömul bárujárnsþök sem varla hefur séð á, en í haust, þegar eldgosið var búið að malla í rúman mánuð, fórum við að taka eftir því að farið var að falla á þau. Einnig er járn sem áður var glansandi komið með ryðhúð og þar sem var smáskemmd á tækjum er komin útfelling út af brennistein- inum í loftinu,“ segir Sigvaldi á Há- konarstöðum. Ljósmynd/Halla Eiríksdóttir Vetur Hákonarstaðir í fannferginu í febrúar fyrir ári. Mistur frá eldgosinu lá yfir Jökuldal og Hrafnkelsdal á sunnudag en bjart var í gær. Sást ekki stafna á milli í húsunum  Mengunarmistur í fjárhúsum á Hákonarstöðum á Efra Jökuldal  Fellur á járn á Jökuldal þar sem aldrei ryðgaði áður  Kæmi ekki á óvart að kindur á fyrsta vetri þyrftu að glíma við lungnavandamál „Það er ekki hægt að segja að smá- fuglarnir á Jökuldal eigi gleðilegt ár,“ skrifaði Skarphéðinn Þórisson, líffræðingur á Náttúrustofu Austurlands á Egilsstöðum, til fuglavina á sunnudaginn. Smá- fuglar hafa fundist dauðir í Hrafn- kelsdal og telur Skarphéðin að mengun frá eldgosinu í Holuhrauni sé líklegasta orsökin eða þá einhver önnur eitrun. Gísli Pálsson, bóndi á Aðalbóli í Hrafnkelsdal, fann tvo dauða auðnutittlinga við fjárhús sín heima við bæ rétt fyrir jól og Páll bróðir hans fann þrjá við Aðalból II hinn 2. janúar. Aðalból er um 60 kílómetra austnorðaustan við gosstöðvarnar. Nokkuð sem menn muna ekki eftir Óljósar fréttir voru um dauða fugla nærri gosstöðvunum í haust en Skarphéðinn sagðist í gær ekki hafa upplýsingar um fjölda fugla eða tegundir. Þá rifjaði hann upp að í haust fundust dauðar mýs úti í haganum bæði í Nesjum og í Lóni um svipað leyti og mikil mengun mældist á Höfn í Hornafirði. „Að finna smáfugla dauða úti um hvippinn og hvappinn er nokkuð sem menn muna ekki eftir og miðað við fyrri ár hefur ekkert verið að veðri,“ segir Skarphéðinn. „Mér finnst líklegt að fleiri dauðir fuglar séu lengra frá bæjum, því þeir hverfa fljótt í fönnina ef snjóar eða hreyfir vind. Mér finnst full ástæða til að hafa áhyggjur af þessu því menn vita ekki hversu mikil meng- un er í þessum dölum, sem liggja inn að hálendinu og mengunin get- ur auðveldlega sigið niður í þá,“ segir Skarphéðinn. Sjálfvirkir mælar til að mæla mengunina eru á Egilsstöðum og Vopnafirði og reyndist mengun þar margfalt minni heldur en á hand- virka mælinum á Eiríksstöðum á Jökuldal á sunnudaginn. Skarphéð- inn segist hafa heyrt á bændum að þeir hafi áhyggjur af skepnum sín- um og brýnt sé að fylgjast vel með framvindunni. Hann segir að á náttúrustofunni sé reynt að safna upplýsingum, en að náttúrustofurnar séu ekki með skilgreind verkefni í þessu sam- bandi. aij@mbl.is Ekki gleðilegt ár hjá smáfuglum  Auðnutittlingar finnast dauðir í Hrafnkelsdal  Gosmengun líkleg skýring Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is „Um áraraðir hefur verið vísir að sér- námi í læknisfræði á Íslandi. Við sam- einingu sjúkrahúsanna í Reykjavík skapaðist grundvöllur fyrir að efla sérnám í nokkr- um greinum, með- al annars lyflækn- ingum,“ segir Friðbjörn Sig- urðsson, fram- haldsmenntunar- stjóri í lyflækn- ingum á Land- spítala. Hann segir sérnáms- lækna, sem eru nú um 25 talsins á lyflækningasviði, ákaflega mikilvæga starfskrafta á öllum sjúkrahúsum. „Hvað lyflækningar á Landspítala varðar, þá voru viss vandamál. Hús- næðið var afar óhentugt, lyflækning- ar á þremur stöðum í Reykjavík, bráðamóttökur í tveimur húsum og ekkert almennilegt göngudeildarhús. Þá var ef til vill viss skortur á skiln- ingi á vanda lyflækninga, sem alls staðar í heiminum hafa átt við vanda að etja vegna aukinna verkefna og fjölgunar aldraðra,“ segir Friðbjörn. Eftir bankakreppuna jókst vandinn hins vegar hratt og sumarið 2013 náðu lyflækningar Landspítalans botninum. „Það verður eiginlega hrun og svið- ið er forsíðufrétt í öllum fjölmiðlum,“ segir Friðbjörn. Þá gekk erfiðlega að fá unglækna og aðra til starfa á sviði lyflækninga. Í september 2013 gáfu þeir Björn Zoëga, þáverandi forstjóri Landspít- alans, og Kristján Þór Júlíusson, heil- brigðisráðherra, út yfirlýsingu sem sneri að því að endurreisa lyflækn- ingasvið Landspítalans. Var ákveðið að setja framhaldsmenntun ung- lækna í lyflækningum í forgang. Það reyndist vera heillaríkt spor. Öll starfsemi sviðsins efldist „Við töldum að með því að efla ung- læknana myndum við efla sérfræði- læknana líka og reyndar alla starf- semi sviðsins, og sú varð raunin,“ segir Friðbjörn. Hann segir að starfs- ánægja hafi stóreflst á lyflækninga- sviðinu með endurreisn sérnámsins. Sérstök fjárveiting fékkst til sér- námsins frá heilbrigðisráðherra árið 2013, en hún skipti sköpum fyrir verkefnið; hægt var að útvega kennsluefni og leita eftir erlendum samstarfsaðilum. Umgjörð um sér- námið var stórefld, m.a. með ráðn- ingu fimm kennslustjóra í hlutastarf og ráðinn var skrifstofustjóri. „Það verður að segjast að þetta hefur gengið mjög vel. Vissulega er- um við ekki komin út úr öllum vanda, en nú erum við komin með fullmann- að prógramm, námslæknar vilja vinna hjá okkur og við erum búin að endurskipuleggja námið frá grunni.“ Þurfti utanaðkomandi aðila „Okkur var ljóst, verandi svona lítil þjóð og land, að við þyrftum utanað- komandi aðila til að horfa yfir öxlina á okkur,“ segir Friðbjörn en boðið verður upp á fyrri hluta sérnáms á spítalanum. Hann segir ástæðu þess að einungis er boðið upp á fyrri hluta námsins hérlendis vera mikilvægi þess að námslæknar haldi utan og sjái hvernig hlutirnir eru gerðir ann- ars staðar. Ýmsum möguleikum um samstarf var velt upp að sögn Friðbjörns. Meðal annars í Bandaríkjunum, á Norðurlöndum og í Bretlandi. „Við komumst að þeirri niðurstöðu að það væri best að tengjast Bret- unum. Þeir eru með mestu hefðina í kennslu og sérnámi og mikla um- gjörð í kringum námið,“ segir Frið- björn en farið var í samstarf við The Royal College of Physicians sem tók mjög vel í málaleitan Íslendinganna, að sögn Friðbjörns. „Sendinefnd fór á fund í Bretlandi í október. Það var ákveðið að fylgja þessu eftir og höfum við átt nokkra símafundi með þeim,“ segir Frið- björn en Tómas Þór Ágústsson, kennslustjóri lyflækninga á Land- spítalanum, hefur þar sinnt lykilhlut- verki. Reiknað er með að formlegt samstarf hefjist nú í sumar en áður þarf töluverða undibúningsvinnu, t.d. munu Bretarnir halda námskeið hér, þar sem leiðbeinendur hljóta sér- staka þjálfun. Friðbjörn segir að Bretarnir taki svo námið út í framhaldinu og veiti því vonandi vottun. „Við þurfum mik- ið á því að halda að fá alþjóðlega vott- un á þetta nám. Þegar okkar náms- læknar fara utan mun það líta allt öðruvísi út að einhver utanaðkomandi aðili votti að þetta sé gott nám sem við erum að bjóða upp á,“ segir Frið- björn. Bretarnir eru með sérfræði- próf sem þeir hafa boðið að tekin verði að miklu leyti hér á Íslandi, að sögn Friðbjörns. Umskipti á lyflækningasviði  Starfsánægja hefur stóreflst frá 2013 á lyflækningasviði Landspítalans með endurreisn sérnámsins  Boðið verður upp á fyrri hluta sérnáms hérlendis í samvinnu við The Royal College of Physicians Morgunblaðið/ÞÖK Lyflækningar Bretarnir munu taka út námið sem fer fram hérlendis. Friðbjörn Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.