Morgunblaðið - 13.01.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015
Boyhood í leikstjórn Richards
Linklater var sigursæl á verðlauna-
hátíðinni og hlaut þrenn verðlaun.
Þykir kvikmyndin einstök að því
leyti að hún er tekin upp á 12 ára
tímabili. Linklater var valinn besti
leikstjórinn og var myndin valin
besta dramatíska myndin. Patricia
Arquette var svo valin besta leik-
kona í aukahlutverki fyrir hlutverk
sitt í Boyhood.
Julianne Moore hlaut verðlaun
fyrir besta leik kvenna í kvikmynd-
inni Still Alice í leikstjórn Richards
Glatzer. Grand Budapest í leik-
stjórn Wes Andresson fékk verð-
laun fyrir bestu grín- eða söngva-
myndina en svarta kómedían
Birdman var einnig sigursæl. Hlaut
Michael Keaton verðlaun fyrir best-
an leik í grín- eða söngvamynd auk
þess sem handritið að Birdman var
valið það besta.
Fargo með fimm tilnefningar
Í flokki sjónvarpsþátta og
-mynda hlaut Fargo flestar tilnefn-
ingar, fimm talsins. Var Fargo valin
besta stutta sjónvarpssería og Billy
Bob Thornton hlaut verðlaun sem
besti leikari í stuttri seríu.
The Affair hlaut verðlaun sem
besta dramatíska þáttaröðin og
Transparent sem besta gaman-
þáttaröðin.
AFP
Vinsæl Leikstjóri, leikarar og framleiðendur kvikmyndarinnar Boyhood stilltu sér upp með verðlaunagripina.
Kvikmyndin Boyhood
hlaut flest verðlaun
AFP
Flottur Leikarinn Michael Keaton hlaut verðlaun fyrir leik sinn í Birdman.
AFP
Koss Ruth Wilson var svo ánægð
með gripinn að hún kyssti hann.
AFP
Sátt Hin margverðlaunaða Julianne
Moore fékk verðlaun í safnið sitt.
Óhætt er að hvetja þá sem eiga leið
til Lundúna nú í vikunni að missa
ekki af hinni ómótstæðilegu sýningu
á verkum frá síðustu æviárum hol-
lenska meistarans Rembrandts.
Sýningin er í National Gallery og
lýkur um næstu helgi. Gagnrýn-
endur hafa allir gefið henni fullt hús
stiga og stjarna og segir rýnir The
Telegraph að enginn listamaður hafi
náð að túlka hlutskipti mannsins á
jafn áhrifaríkan hátt.
„Ef þú hefur einhvern áhuga á
Rembrandt, á myndlist eða listum
yfir höfuð, þá er þetta sýning sem þú
verður að sjá,“ skrifar rýnirinn og
telur tíu eða ellefu meistaraverk í
heimsklassa á sýningunni, nokkuð
sem sjaldan má sjá á sýningum.
The Telegraph birtir á vef sínum
lista yfir aðrar framúrskarandi sýn-
ingar sem nú er boðið upp á í Bret-
landi. Í Royal Academy er það sýn-
ing á skúlptúrum Allen Jones, í Tate
Modern er sýningin „Conflict, Time,
Photography“, og þá er mælt með
sýningu á nektarteikningum Egons
Schiele í Courtauld Gallery.
AFP
Eitt það besta Rýnir The Telegraph segir þetta málverk Rembrandts vera
eitt „stórkostlegasta hópportrett allra tíma“. Það er á sýningunni.
Sýning sem listunn-
endur missi ekki af
Í dag, þriðjudag, klukkan 15 ræðir
Soffía Sæmundsdóttir myndlist-
arkona við gesti á sýningu sinni,
„Brottför“, í SÍM-salnum, Hafn-
arstræti 16.
Þetta er þriðji hluti sýningaraðar
Soffíu, „Kleine Welt“ eða „Smá-
heimur“ sem varð til í vinnustofud-
völ í Lukas Künstlerhaus í
Ahrenshoop í Þýskalandi 2012. Á
sýningunni eru málverk, smáhlutir
og teikningar.
Soffía hefur verið virk í listinni
frá útskrift frá MHÍ árið 1991.
Ferðalangur Eitt verka Soffíu Sæ-
mundsdóttur á sýningunni í SÍM-salnum.
Soffía ræðir við
gesti á sýningunni
JK Rowling, höf-
undur Harry Pot-
ter-bókanna, hef-
ur svarað
Twitter- póstum
hins kunna útgef-
anda News
Corps, Rupert
Murdoch, fullum
hálsi. Hún gagn-
rýnir harðlega
þau orð hans að draga beri alla
múslima til ábyrgðar fyrir árásir
herskárra jihadista; að múslimar
beri allir ábyrgð þar til krabbamein
jihadista hafi veri upprætt.
Rowling spyr á móti hvort hún
beri þá ábyrð á Murdoch þar sem
hún sé kristin. Hún bæri þá einnig
ábyrgð á spænska rannsóknarrétt-
inum og ofbeldisverkum kristinna
öfgamanna.
Samkvæmt The Independent
hafði Murdoch verið gagnrýndur
eftir að hann þótti senda ónærgætin
skilaboð á Twitter eftir gíslatöku í
Ástralíu á dögunum. Hann sendi
fleiri pósta á Twitter eftir morðin í
París, eftir að hafa sagt alla múslima
bera ábyrgð; sagði mikla ógn vofa
yfir heimsbyggðinni og að „pólitísk-
ur rétttrúnaður stuðlaði að afneitun
og hræsni“.
Rowling benti þá á að átta sinnum
fleiri múslimar en kristnir hefðu ver-
ið drepnir af íslamískum hryðju-
verkamönnum.
Svarar tísti
Murdochs
JK Rowling
Osmo Vänskä, fyrrverandi að-
alstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, hafði lokið við upptökur á
fjórum af sjö sinfóníum Sibeliuas-
ar með The Minnesota Orchestra í
Bandaríkjunum, til útgáfu á veg-
um BIS Records, þegar langvinnar
launadeilur stöðvuðu starf hljóm-
sveitarinnar í sextán mánuði.
Vänskä lét þá enn fremur af störf-
um eftir deilur við framkvæmda-
stjórn hljómsveitarinnar þar sem
hann hafði látið þung orð falla.
Upptökur Minestota-sveit-
arinnar með Vänskä höfðu notið
mikillar hylli og meðal annars
hlotið Grammy-verðlaun sem besta
klassíska upptaka ársins, auk þess
að vera tilnefndar til annarra
Grammy-verðlauna. The New
York Times greindi frá því í gær
að nú hefði verið ákveðið, í kjölfar
þess að starfsemi hljómsveit-
arinnar væri aftur komin í lag og
Vänskä tekinn við tónsprotanum
að nýju, að lokið yrði við upptökur
þeirra þriggja sinfónía sem eftir
eru, til útgáfu. „Þetta er verkefni
sem skiptir okkur miklu máli og
það verður ánægjulegt að geta
lokað hringnum,“ er haft eftir
Vänskä.
Morgunblaðið/Jim Smart
Virtur Osmo Vänskä lýkur við að hljóðrita allar sinfóníur Sibeliusar með
The Minnetota Orchestra í vor. Fyrri upptökur unnu Grammy-verðlaun.
Vänskä stýrir upp-
tökum á sinfóníunum
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 17/1 kl. 13:00 Lau 7/2 kl. 13:00 Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst.
Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 8/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00
Lau 24/1 kl. 13:00 Lau 14/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00
Sun 25/1 kl. 13:00 Sun 15/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00
Lau 31/1 kl. 13:00 Lau 21/2 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00
Sun 1/2 kl. 13:00 Sun 22/2 kl. 13:00
Táknmálstúlkuð sýning 28.febrúar kl 13
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Fim 15/1 kl. 20:00 8.k. Sun 25/1 kl. 20:00 Fös 6/2 kl. 20:00
Sun 18/1 kl. 20:00 Sun 1/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00
Fim 22/1 kl. 20:00 Fim 5/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00
Sígilt meistarastykki Ibsen í nýrri þýðingu Hrafnhildar Hagalín
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Fim 29/1 kl. 20:00
Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00
Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 20:00
5 stjörnu sýning að mati gagnrýnanda
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 16/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00
Lau 17/1 kl. 20:00 Fim 29/1 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00
Mið 21/1 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00
Fös 23/1 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 20:00
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Kynfræðsla Pörupilta (Nýja sviðið)
Mið 14/1 kl. 10:00 Fim 15/1 kl. 11:30 Fös 16/1 kl. 13:00
Mið 14/1 kl. 11:30 Fös 16/1 kl. 10:00
Fim 15/1 kl. 10:00 Fös 16/1 kl. 11:30
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Ekki hætta að anda (Litla sviðið)
Fim 15/1 kl. 20:00 Frums. Mið 28/1 kl. 20:00 6.k. Fim 12/2 kl. 20:00 10.k
Sun 18/1 kl. 20:00 2.k Lau 31/1 kl. 20:00 Aukas. Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas.
Mið 21/1 kl. 20:00 3.k. Sun 1/2 kl. 20:00 7.k. Sun 15/2 kl. 20:00 11.k
Fim 22/1 kl. 20:00 4.k. Fim 5/2 kl. 20:00 8.k. Mið 18/2 kl. 20:00 12.k
Sun 25/1 kl. 20:00 5.k. Fös 6/2 kl. 20:00 9.k
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Dúkkuheimili –★★★★ , S.B.H. Mbl.