Morgunblaðið - 13.01.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015
H-Berg ehf | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is
Hollar vörur
úr náttúrunni í
hæsta gæðaflokki
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Bylgja hrottafenginna árása reið yfir
Nígeríu um síðastliðna helgi. Alls lét-
ust tuttugu og þrír í þremur aðskild-
um árásum í fylkjunum Borno og
Yobe í norðausturhluta landsins.
Enginn hefur lýst voðaverkunum á
hendur sér en færst hefur í aukana
að hryðjuverkasamtökin Boko Ha-
ram noti konur og ungar stúlkur í
sjálfsvígsárásir.
Tíu ára stúlka sprengd
Í fyrri árásinni hafði sprengjubelti
verið komið fyrir á stúlku, sem talið
er að hafi verið um tíu ára gömul, og
henni vísað á fjölfarinn stað. Svo
virðist sem fjarstýrður búnaður hafi
verið notaður til að virkja sprengju-
beltið með þeim afleiðingum að
nítján manns létu lífið og enn fleiri
særðust. Vitni að atburðinum segja
að líkami stúlkunnar hafi farið í
tvennt við sprenginguna og telja þau
hana ekki hafa vitað hvað væri fest
við líkama hennar. Í síðari árásinni
voru það tvær konur, önnur talin
vera fimmtán ára og hin tuttugu og
þriggja ára, sem báru sprengjubelti
inn á fjölsóttan markað í bænum Pot-
iskum og urðu þar fjórum að bana.
Svo virðist sem sömu aðferð hafi ver-
ið beitt en eftir að fyrra sprengju-
beltið hafði sprungið reyndi konan
sem bar það síðara að flýja með
litlum árangri.
Um tvö þúsund drepin
Þar að auki sprakk bílsprengja
skömmu síðar í sama bæ með þeim
afleiðingum að tveir létust en árás-
irnar koma aðeins rúmri viku eftir
eina mannskæðustu árás Boko Ha-
ram frá því uppreisn þeirra hófst árið
2009. Liðsmenn samtakanna réðust
þá á bæinn Baga í norðausturhluta
landsins en talið er að allt að tvö þús-
und manns hafi verið drepin þar.
Ógrynni líka, of mörg til að telja að
sögn sjónvarvotta, liggja enn á víð og
dreif um bæinn. Flestir hinna myrtu
eru börn, konur og eldra fólk, sem
gat ekki hlaupið nógu hratt undan
skothríð hryðjuverkamannanna. Tal-
ið er að samtökin, sem berjast fyrir
því að stofnað verði múslímskt bók-
stafstrúarríki í norðurhluta Nígeríu,
hafi auk þess ráðist inn í sextán þorp
í nágrenni Baga í vikunni og valdið
þar dauða og eyðileggingu.
Frá því uppreisn Boko Haram
hófst er talið að þrettán þúsund
manns hafi verið drepin. Nígeríski
herinn hefur legið undir miklu ámæli
fyrir vanmátt sinn gegn hryðjuverka-
samtökunum en hermennirnir hafa
margir hverjir neitað að berjast sök-
um þess hversu illa búnir þeir eru
gegn þungvopnuðum hryðjuverka-
mönnunum. Þá hafa vestræn ríki ver-
ið gagnrýnd af heimamönnum fyrir
það hversu lítinn stuðning þau hafa
sýnt í baráttunni gegn Boko Haram.
Nota stúlkur til hryðjuverka
Þrjár sprengjuárásir aðeins viku eftir eina af blóðugustu árásum Boko Haram
Þrettán þúsund hafa verið drepin síðan uppreisn samtakanna hófst árið 2009
AFP
Særður Bæjarbúar flýta sér með særðan mann á sjúkrahús í bænum Potiskum í norðausturhluta Nígeríu um helgina.
Sænska öryggislögreglan, SÄPO,
hefur á síðustu árum afstýrt
tveimur hryðjuverkaárásum að
sögn yfirmanns SÄPO, Anders
Thornberg. Þetta er meðal þess
sem kom fram í samtali hans við
sænska fjölmiðla en Thornberg
segir þó mikilvægt að óttast ekki
að slíkar tilraunir verði gerðar
áfram á næstu árum. Samkvæmt
upplýsingum frá sænsku öryggis-
lögreglunni hafa allt að þrjú
hundruð Svíar farið til þess að
taka þátt í átökum í Sýrlandi og
víðar. Þar af eru hundrað og
þrjátíu þeirra þekktir hjá SÄPO.
Í dag er fylgst með um áttatíu
manns í Svíþjóð sem hugsanlega
eru taldir tengjast hryðjuverka-
samtökum.
Þúsundir Svía
söfnuðust saman
víða í Svíþjóð
um helgina til
þess að sýna
Frökkum sam-
stöðu eftir voða-
verkin sem unn-
in voru í París í
síðustu viku þar
sem sautján
manns létu lífið. Þess má geta að
forsætisráðherra Svíþjóðar, Stef-
an Löfven, tók þátt í samstöðu-
fundinum í París á sunnudaginn
líkt og fjölmargir aðrir þjóðar-
leiðtogar, þar á meðal forsætis-
ráðherrar allra landa á Norður-
löndum fyrir utan Ísland.
davidmar@mbl.is
Hryðjuverkum
afstýrt í Svíþjóð
Segir fylgst með áttatíu Svíum
Stefan Löfven
Samskipti Kúbu og Bandaríkjanna
hafa farið batnandi undanfarna
mánuði en kúbverskir ráðamenn
hafa nú látið lausa alla þá fimmtíu og
þrjá fanga sem þeir höfðu lofað
bandarískum yfirvöldum að sleppa
úr haldi. Raúl Castro, forseti Kúbu,
tók við embættinu árið 2006 af bróð-
ur sínum, Fidel Castro, sem sagði af
sér vegna slæmrar heilsu.
Alan Gross er einn þeirra Banda-
ríkjamanna sem sleppt var úr haldi
en hann hlaut fimmtán ára dóm á
Kúbu árið 2011 fyrir að dreifa fjar-
skiptabúnaði meðal gyðinga er hann
vann þar sem verktaki. Barack
Obama Bandaríkjaforseti sagði frá
því fyrir um mánuði að Bandaríkin
myndu koma aftur á stjórnmála-
sambandi við Kúbu eftir fimm ára-
tuga hlé. Þá sagði hann að slakað
yrði á viðskiptaþvingunum og að
Bandaríkin myndu opna sendiráð í
höfuðborg Kúbu, Havana.
davidmar@mbl.is
Fimmtíu og þrír
fangar lausir úr haldi
Stjórnvöld á Kúbu stóðu við loforðið
Frjáls Alan Gross er einn þeirra
fanga er sátu í kúbversku fangelsi.
AFP
Bræðurnir Chér-
if og Saïd Kou-
achi, sem stóðu
að hryðjuverka-
árásinni á háðs-
tímaritið Charlie
Hebdo fyrir
tæpri viku, ferð-
uðust til Jemen í
gegnum Óman
árið 2011 og
hlutu þar vopna-
þjálfun á eyðurmerkursvæði þar
sem samtökin AQAP, einn skæðasti
undirhópur al-Kaída, hefur sterk
ítök. Þetta staðfestu ráðamenn í
Jemen fyrir skemmstu.
Samtökin hafa staðið í miklu
stríði við stjórnarherinn í Jemen að
undanförnu auk þess sem dróna-
árásir Bandaríkjamanna hafa sett
strik í reikning þeirra.
FRAKKLAND
Bræðurnir hlutu
þjálfun í Jemen
Chérif Kouachi
Forsætisráð-
herra Frakk-
lands, Manuel
Valls, segir það
hafið yfir allan
vafa að árásar-
mennirnir þrír í
París hafi átt sér
vitorðsmann og
leit standi yfir að
honum. Þá kveð-
ur Valls það ljóst
að Amedy Coulibaly, sem drap lög-
reglukonu í París á fimmtudag og
fjóra gyðinga í matvöruverslun á
föstudag, hafi fengið utanaðkom-
andi aðstoð.
Öryggisgæsla hefur því verið
hert til muna og verða um það bil
tíu þúsund hermenn kallaðir út til
þess að sinna öryggisgæslu á við-
kvæmum stöðum í Frakklandi að
sögn varnarmálaráðherra Frakk-
lands, Jean-Yves Le Drian.
Öryggi hert og vit-
orðsmanns leitað
Manuel Valls
Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson
er ekki eini
þjóðarleiðtoginn
sem gagnrýndur
hefur verið fyrir
að þekkjast ekki
boð Frakka um
þátttöku í sam-
stöðugöngu sem
haldin var í París
á sunnudaginn. Hvorki Barack
Obama Bandaríkjaforseti, Joe Bi-
den varaforseti né John Kerry
utanríkisráðherra mættu í gönguna
og hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum
fengið sinn skerf af gagnrýni á
samskiptamiðlum. Kerry hefur tjáð
sig um málið en hann gefur lítið
fyrir umfjöllunina og segir hann
Bandaríkin hafa boðið fram aðstoð,
t.a.m. leyniþjónustu.
Obama gagnrýndur
fyrir að mæta ekki
Barack Obama