Morgunblaðið - 13.01.2015, Síða 33

Morgunblaðið - 13.01.2015, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 2015 TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is 48 RAMMA STÆRSTA OPNUNARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI! E.F.I -MBL www.laugarasbio.isSími: 553-2075 SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS - bara lúxus AF ÓSKILAHUNDI Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Sagt er að hláturinn lengi lífið og í því ljósi má reikna með að áhorf- endur hafi lengt líf sitt allnokkuð þegar hljómsveitin Hundur í óskil- um tróð upp á Nýja sviði Borgar- leikhússins sl. föstudag með sjón- tónleika sína Öldin okkar. Verkið var upphaflega sýnt í Samkomu- húsinu á Akureyri í samstarfi við Leikfélag Akureyrar í október sl. en ráðgert er að sýna það a.m.k. næstu þrjár helgar sunnan heiða. Félagarnir Eiríkur Steph- ensen og Hjörleifur Hjartarson sem eru hljómsveitin Hundur í óskilum setja þetta nýja leik- og tónverk upp í tilefni af 20 ára afmæli sveit- arinnar og taka hér upp þráðinn þar sem frá var horfið í yfirreið sinni um Íslandssöguna. Í stað þess að fara yfir atburði nokkurra alda líkt og í verðlaunasýningunni Saga þjóðar, sem sýnd var við góðar við- tökur á árunum 2012 og 2013, er hér horft til atburða frá aldamótum 2000 fram á okkar dag. Og þar er svo sannarlega af nógu af taka. Engum hlíft Í upphafi kynna þeir félagar sýningu sína með þeim orðum að til hafi staðið að vera með megastórt „sjóv“ en þeir hafi hreinlega ekki haft efni á að leigja sér sinfóníu- hljómsveit, 20 dansmeyjar og vera með flott búningaskipti eftir að Hundur í óskilum Group fór á haus- inn eftir að hafa tekið þátt í útrás- inni og m.a. verið fyrst íslenskra sveita til að troða upp í Royal Al- bert Hall. Í staðinn eru þeir mættir á sviðið í einföldum spariklæðnaði með mörg og fjölbreytt hljóðfæri sín, sviðssjarma og húmorinn að vopni. Undir styrkri stjórn Ágústu Skúladóttur leikstjóra fara þeir yf- ir ris og fall fjármálakerfisins, búsáhaldabyltinguna, umdeildar ákvarðanir eins og byggingu Kára- hnjúkavirkjunar, hvalveiðar, Kristnitökuhátíðina, flutning Kei- kós til Íslands, komu skákmeist- arans Bobbys Fischer og ýmsar áberandi byggingar eins og Menn- ingarhúsið Hof sem þeir kalla „stal- íntertu“ og tónlistarhúsið Hörpu sem þeim finnst eins og „biluð diskóbrauðrist“. Þeir hlífa engum, hvort heldur það eru stjórmálamenn eða útrás- arvíkingar, og allra síst sjálfum sér. Allt er þetta borið á borð með gleðibrosi á vör í anda trúðsins sem gerði undirliggjandi ádeilu mun áhrifameiri fyrir vikið. Úr verk- færaboxi trúðsins kom líka endur- tekningin sem virkaði sérdeilis vel og batt sýninguna iðulega mjög skemmtilega saman. Áhorfendur skemmtu sér kon- unglega yfir upprifjun þeirra fé- laga á því fjármálasukki sem hér hefur ríkt, óhóflegri bjartsýni land- ans á ýmsum sviðum og fárán- legum mótsögnum í orði og gjörð- um landsmanna. Að mati undirritaðrar hefði að ósekju mátt stilla neðanbeltishúmornum aðeins í hóf, sérstaklega fyrir hlé, en þess ber að geta að salurinn var aug- ljóslega ekki sammála þeirri skoð- un og hló innilega. Mikil leikgleði Leikmynd Axels Hallkels Jó- hannessonar samanstendur af vörubrettum sem komið hefur ver- ið fyrir með haganlegum hætti þannig að þau minna m.a. á háhýsi og mynda líka svið með tröppum, auk þess sem brettin nýtast vel til að geyma hin mörgu hljóðfæri hljómsveitarinnar. Fjórir litlir byggingarkranar setja sterkan svip á umhverfið og ekki skemmir fyrir að Eiríkur leikur á einn þeirra með skemmtilegum hætti. Lýsing Björns Bergsteins Guð- mundssonar þjónaði sýningunni vel og kom skemmtilega á óvart undir lokin. Hjörleifur og Eiríkur keyra sýninguna áfram af miklum krafti og leikgleði þannig að tveggja klukkustunda sýning þýtur hjá nánast á augabragði. Hjörleifur er uppistandari af guðs náð, enda hef- ur hann gott vald á tímasetningum auk þess að vera frábær eftir- herma, eins og sést best undir lok sýningar þegar hann dregur boð- skap verksins saman með því að rifja upp þekkt barnaleikrit í gervi eins ástælasta leikara þjóðarinnar. Eiríkur fór á kostum í laginu „Háska-þroska-miska-raska-rof“ þegar hann datt út úr spilamennsk- unni og gleymdi sér við að ýmist telja áhorfendur eða vinka þeim. Einnig var hann þrælskemmtilegur í fyrirlestri um fjármál sem fluttur var í anda bandaríska rapparans 50 Cent, sem skemmti sem kunnugt er gestum í fertugsafmæli Björgólfs Thors á Jamaíka árið 2007. Ótakmörkuð hugmyndaauðgi Einn af hápunktum kvöldsins var flutningur þeirra á eftirmælum sömdum í þulustíl. Líkt og áður eru textarnir, sem byggjast á rími og réttri stuðlasetningu, í aðal- hlutverki hjá þeim félögum. Iðu- lega tekst þeim Hjörleifi og Eiríki að koma áhorfendum sínum á óvart með því að tengja saman ólíkleg- ustu hluti eins og t.d. þegar lagið „Bohemian Rhapsody“ er flutt í danskri þýðingu á melódiku, rafgít- ar og trompet eða þegar lagið „Manchester, England, England“ úr söngleiknum Hárinu hljómar á íslensku sem „Keflavík, Njarðvík, Hafnir“. Auk þess var óborganlegt að heyra flutning þeirra og túlkun á 26. grein stjórnarskrárinnar. Hugmyndaauðgi þeirra félaga virðist engin takmörk sett eins og birtist best í þeim hugvitssamlegu hljóðfærum sem þeir hafa smíðað gegnum tíðina, en hljóðfærunum fjölgar enn í nýju sýningunni. Öldin okkar er sýning sem enginn ætti að missa af sem langar að hlæja dátt heila kvöldstund. Óborganleg skemmtun » Öldin okkar ersýning sem enginn ætti að missa af sem langar að hlæja dátt heila kvöldstund. Ljósmynd/Auðunn Níelsson Gleðibros „Allt er þetta borið á borð með gleðibrosi á vör í anda trúðsins sem gerði undirliggjandi ádeilu mun áhrifameiri fyrir vikið“ segir m.a. um sjóntónleik þeirra Hjörleifs Hjartarsonar og Eiríks G. Stephensen. Hasarmyndin Taken 3 með Liam Neeson í aðalhlutverki er sú kvik- mynd í bíóhúsum landsins sem skil- aði mestum miðasölutekjum yfir helgina. Henni tókst þar með að skáka Hobbitanum: Bardagi herj- anna fimm úr toppsætinu. Á sl. þremur vikum hafa tæplega 93 þús- und manns séð lokahluta þríleiksins um Hobbitann. Ein önnur ný mynd ratar inn á topp tíu listann þessa vikuna og það er njósnamyndin A Most Wanted Man þar sem Philip Seymour Hoffman heitinn fer með aðalhlutverkið. Hungurleikarnir eru sem fyrr vin- sælir en alls hafa rúmlega 35 þús- und manns séð Hunger Games: Mokingjay Part 1 sem byggist á fyrri hluta þriðju bókarinnar. Bíóaðsókn helgarinnar Bíólistinn 9.-11. janúar 2015 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Taken 3 Hobbit: The Battle of the five Armies Big Hero 6 Unbroken Night at the Museum 3 Horrible Bosses 2 Penguins of Madagascar A Most Wanted Man Love, Rosie Hunger Games: Mockingjay Part 1 Ný 1 2 3 4 5 7 Ný 6 8 1 3 5 2 4 4 8 1 3 8 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Hobbitanum skákað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.