Morgunblaðið - 06.01.2015, Blaðsíða 5
Gerðir eru tveir leirskúlptúrar. Annar fyrir bílinn að utan
og hinn utan um innréttinguna.
Sá rauði lítur út eins og endanleg útgáfa en er laufléttur því hann er úr trefjagleri og undir vél-
arhlífinni er ekkert. Leirbíllinn er nokkuð þyngri.
málin mjög svipuð og á fyrri kyn-
slóð bílsins. Undantekningin er þó
greinilega sú að hann er mun lægri
en fyrri árgerð og töluvert breiðari.
Aðspurður hvers vegna ekki standi
„MUSTANG“ aftan á bílnum út-
skýrði hann að á sumum út-
færslum, eins og GT, væri bara
merkið en engir stafir. Fyrir því er
gild ástæða. „Með því að hafa sem
fæsta stafi lítur bíllinn út fyrir að
vera breiðari. Áherslan og athyglin
er því öll á línur bílsins,“ segir hann.
Eins og í flugstjórnarklefa
Doyle Letson er maðurinn að
baki hönnuninni á innra rými bíls-
ins. Rétt eins og Curic og félagar
unnu með leirmót að ytra byrði
bílsins var gert leirmót af inn-
anrýminu. „Í hreinskilni sagt þá var
það tækifæri lífs míns að fá að
hanna innanrými 50 ára afmæl-
isútgáfu Ford Mustang. Það er
meira en að segja það. Ég hef unn-
ið hjá Ford í rúmlega tuttugu ár og
það að fá að taka þátt í að skapa
þennan einstaka bíl er ótrúlegur
heiður og reynslan er dásamleg,“
segir Letson og mér varð ljóst að
allt það fólk sem ég hitti var al-
gjörlega í skýjunum með vinnuna
sína. Þannig á það að vera! „Þegar
hafist er handa við hönnun á bíl á
borð við Mustang er mikilvægt að
hlusta á það sem viðskiptavinir
segja og hvað þeir vilja. Við vissum
til að mynda áður en við byrjuðum
að Mustang yrði að hafa þennan
tvöfalda boga í mælaborðinu og að
hann yrði að vera samhverfur. Við
vissum líka að mælarnir yrðu að
vera stórir. Allt eru þetta atriði sem
við urðum að ganga út frá,“ segir
Letson. Það er því ljóst að hönn-
uðirnir vildu ekki koma dyggum
viðskiptavinum sínum úr jafnvægi
með hrikalegum breytingum. „Þá
spyr maður sig hvernig færa megi
hönnunina upp á næsta þrep og
halda um leið í sérkennin. Jú, við
ákváðum að nota efni sem væri
ekta og við völdum ál í innrétt-
inguna. Okkur fannst það dálítið
byltingarkennt að nota ekta ál,“
segir hann. Jú, það er sannarlega
framúrstefnulegt að hafa flenn-
istóran flöt úr áli og áferðin á álinu
er margbreytileg. „Við horfðum til
flugstjórnarklefa flugvélar við
hönnunina. Við vildum að bílstjór-
inn gæti sest inn í bílinn og liðið
eins og í flugtaki.“ Hönnunin er stíl-
hrein, enda sagði Letson að inn-
réttingin mætti alls ekki virka eins
og eitthvert glys. Það tókst sann-
arlega.
Bullitt í ýmsum myndum
Svo virðist vera að allar deildir
hönnunarinnar hafi haft ofarlega í
huga bílinn sem Steve McQueen ók
í kvikmyndinni Bullitt frá 1968. Sá
Mustang var um margt sérstakur
og má þar til dæmis nefna litinn.
Liturinn veitti litahönnuðunum
þremur innblástur og þær eru afar
stoltar af græna litnum sem er
býsna líkur hinum upprunalega
Bullitt-lit. „Litirnir okkar þurfa að
segja eitthvað og verða að vera ný-
stárlegir. Þeir verða að fanga aug-
að,“ segir Susan Lampinen lita-
hönnuður. Það er ekki bara græni
liturinn sem er nýr í afmælisútgáf-
unni heldur er það líka perluhvítur,
skærrauður, dökkrauður og gulur.
„Það var orðið æði langt síðan við
höfðum verið með gulan þannig að
við bjuggum til lit sem er mynd-
aður úr þremur lögum af gulum lit-
brigðum. Hann er skær og kemur
afskaplega vel út með svörtu felg-
unum,“ segir litahönnuðurinn
Marcy Fisher. Litirnir sjálfir segja
meira en fjölmörg orð og eiga án
efa eftir að gleðja augu unnenda
Ford Mustang, rétt eins og annað í
hönnun þessa sögulega bíls.
malin@mbl.is
Hinn eini og sanni leirbíll.
Króatinn Kemal Curic er útlitshönnuður bílsins. Hann er menntaður iðnhönnuður og
er ungur að árum en hefur unnið hjá fyrirtækinu í áratug.
Vinnuveggspjöld útlitshönnuða byggjast á þúsundum teikninga sem þeir þurftu að velja úr. Skref fyrir skref mótaðist hugmyndabíllinn og er ekki annað hægt að segja en að vel hafi tekist til.
Þær Marcy Fisher (ekki á myndinni), Michele Lubin Henney og Susan
Lampinen eru litahönnuðir Ford Mustang 2015.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2015
BÍLAR 5