Morgunblaðið - 22.04.2015, Síða 10

Morgunblaðið - 22.04.2015, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is F orsetafrúr Bandaríkj- anna hafa yfirleitt ekki verið í sérstöku uppá- haldi hjá tískurýnum þar í landi eða annars staðar. Ef horft er áratugi aftur í tím- ann virðast aðeins tvær hafa getið sér orð fyrir stíl og tískuvitund. Jackie Kennedy á sjöunda áratug liðinnar aldar og Michelle Obama á fyrsta og öðrum áratug þessarar. Stór sólgler- augu, litlir hattar og nettar chanel- dragtir voru aðalsmerki Jackie. Þótt Michelle þyki smart í tauinu og tísku- rýnar falli á stundum í stafi yfir klæðaburðinum er óneitanlega erfitt að henda reiður á stílnum. Látum „alls konar“ duga. Sá stíll fer henni reyndar ljómandi vel. Kannski hafa forsetafrúr Banda- ríkjanna öðrum hnöppum að hneppa en tískuhnöppum og lái þeim hver sem vill. Ábyggilega Hillary Clinton til dæmis. „Myndirðu spyrja karl þessarar spurningar?“ svaraði hún snefsin einhverju sinni þegar þátta- stjórnandi spurði hver væri hennar eftirlætis-fatahönnuður. Eftirlætis fatahönnuður Wright Hvernig skyldi forsetafrúin, Claire Underwood, bregðast við, væri hún spurð? Vel mætti ímynda sér hana halla höfðinu ofurlítið aftur á bak, horfa ísköldum augum og með vanþóknun niður á spyrilinn áður en hún svaraði mjúkum rómi að honum kæmi slíkt einfaldlega ekkert við. En kannski ekki. Kannski hentaði henni að svara greiðlega og beita um leið persónutöfrum sínum eins og henni er lagið. Raunveruleikinn er samt sá að Claire Underwood svarar þessu engu. Enda bara til í óraunveruleik- anum (líklega eins gott), nánar til- tekið í bandarísku sjónvarpsþátt- unum Spilaborg, House of Cards, en þriðja spyrpan er á dagskrá RÚV um þessar mundir. Spurningin er ekki í handritinu. Hins vegar má gera því skóna að eftirlætisfatahönnuður Robin Wright, sem fer með hlutverk frú Underwood, sé hennar eigin per- sónulegi stílisti, Kemal Harris. Að minnsta kosti var Harris fengin til að taka við keflinu af Tom Broecker sem var búningahönnuður í fyrstu og ann- arri þáttaröðinni. Lotuáhorf á klækjarefi Þættirnir hverfast um valda- brölt í Washington, pólitíska refskák og klækjabrögð. Fremst í flokki í aðdáunarverðri óskammfeilninni eru hjónin Frank (Kevin Spacey) og Claire Underwood, sem í þriðju syrp- unni eru komin til valda í Hvíta hús- inu. Þegar efnisveitan Netflix setti alla þrettán þættina í loftið á einu bretti bárust fregnir af því að margir hefðu lagst í lotuáhorf, slíkur var spenningurinn. Konur um og yfir fer- tugu eru þó ekki síður spenntar fyrir fataskáp forsetafrúarinnar en fram- vindu sögunnar. Robin Wright og Claire Under- wood eru báðar tæplega fimmtugar, bera höfuðið hátt og sig með eindæm- um vel, hávaxnar, þráðbeinar í baki og svo tígulegar í hreyfingum og göngulagi að undrum sætir – og að- dáun. Líka fyrir að stíga aldrei feil- spor á feikilega háum pinnahælunum. Trúlega hefur hjálpað Underwood að Wright starfaði sem fyrirsæta áður en hún lagði út á leiklistarbrautina. En víkjum að forsetafrúnni og föt- unum hennar. Valdaklæðnaður Í fyrstu tveimur syrpunum ein- kenndist fatnaður hennar af virðu- leika og látleysi, var eilítið litlaus því þemað var svart, grátt og hvítt, herralegar skyrturnar upp í háls og pilsin, yfirleitt svört og níðþröng, náðu niður fyrir hné. Heildarmyndin var óaðfinnanleg. Markmið Brockers var að klæða hina metnaðarfullu Un- derwood til valda; í herralegar skyrt- ur frá Theory, Burberry kápur og flíkur frá Prada, L’Wren Scott, Gucci, Armani, Ralph Lauren og Narciso Rodriguez. „Við vildum vera algjörlega pott- þétt, lykilorðin voru klæðskerasniðið, þröngt – og óaðfinnanlegt. Auk þess þurfti Underwood að skera sig frá öðrum í þáttunum í klæðaburði,“ sagði Broecker í viðtali við tímaritið Elle. Hugtakið valdaklæðnaður kom fram um það leyti sem bækurnar, Dress for Success og The Woman’s Dress for Success Book komu út um 1970, en það vísar til fatastíls og hár- greiðslu sem ætluð eru til að konan virðist traust, áreiðanleg og hæf í krefjandi starfsumhverfi. Í stórum dráttum var valdaklæðnaður kvenna með herralegu ívafi. Frú Underwood kemst þó aldrei nálægt því að vera herraleg, hún er bara ekki þannig vaxin. Stílisti þriðju syrpu „Valdaklæðnaður fyrri þátta heyrir sögunni til,“ tilkynnti nýi stíl- istinn, Kemal Harris, og áhorfendur áttu allt eins von á hamskiptum for- setafrúarinnar hvað klæðnaðinn varðaði. En svo varð ei, breytingin fólst fremur í fínlegum blæbrigða- mun, eða eins og Harris sagði: „Ég vildi að fötin bæru svolítil merki um varnarleysið í persónuleika Under- wood og undirstrikuðu jafnframt kvenleika hennar. Með mýkri litum, ljósari efnum og efnismeiri pilsum held ég að það hafi tekist.“ Harris kveðst hafa skellt skolla- eyrum við hugmyndum eins leikstjór- ans um að fatnaðurinn drægi fram al- úðleika í fari forsetafrúarinnar. Alúðleiki hafi enda ekki verið hennar Klæðaburður klækjakonu Konur yfir fertugu eru margar hverjar ekki síður spenntar fyrir klæðaburði Claire Underwood, forsetafrúar Bandaríkjanna, í þátttunum Spilaborg, en marg- slungnum söguþræðinum sem hverfist um valdabrölt í Washington. Heiðurinn af fatnaði hennar í þriðju syrpunni á Kemal Harris, stílisti Robin Wright. Flagð undir fögru skinni Robin Wright sem hin undirförla Claire Under- wood, forsetafrú Bandaríkjanna, sem líkt hefur verið við lafði Macbeth. Samkvæmiskjóll frá Ralph Lauren Frú Underwood býr sig upp á fyrir veislu í Hvíta húsinu til heiðurs Petrov forseta Rússlands. Dagur jarðar, sem haldinn er hátíðleg- ur 22. apríl ár hvert, verður í dag helg- aður fræðslu um umhverfismál. Árið 2009 gerðu Sameinuðu þjóðirnar þennan dag að Alþjóðlegum degi móð- ur jarðar og hefur dagurinn síðan verið haldinn hátíðlegur á hverju ári. Og nú hafa Sameinuðu þjóðirnar lýst árið 2015 ár jarðvegs undir einkunnarorð- unum „Heilbrigður jarðvegur, heilbrigt líf“. Lögð er áhersla á mikilvægi jarð- vegsins í matvælaframleiðslu, vatns- miðlun og til að milda áhrif loftslags- breytinga. Vistræktarfélag Íslands, Garðyrkju- félag Íslands og Sprotamiðstöð Ís- lands bjóða öllum náttúruunnendum að fagna Degi jarðar og hlýða á upp- lýsandi erindi í kvöld kl. 19.30 í hús- næði Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1, gengið inn frá Ármúla. Vistræktarlausnir nefnist erindi Ei- vind Bjorkavag, vistræktarhönnuðar, Jarðvegsmyndun, eyðing og endur- heimt, er erindi Jóhanns Þórissonar, vistfræðings, Viktoría Gilsdóttir, kenn- ari, flytur erindið Ormamoltugerð í heimahúsi, og Richard Nelson upp- finningamaður er með erindið Lausnir til sjálfbærrar matvælaframleiðslu. Endilega ... ... fagnið Degi jarðar og fræðist um umhverfismál Morgunblaðið/RAX Sandfok á hálendinu Jarðvegseyðing er talin eitt alvarlegasta umhverfis- vandamál á Íslandi. Næstum 40% af landinu er örfoka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.