Morgunblaðið - 22.04.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Morgunblaðið/Ómar
Hellisheiði Stikurnar meðfram veginum
skipta bílstjóra miklu í slæmu skyggni.
Malín Brand
malin@mbl.is
Mikið hefur mætt á hluta Suðurlandsvegar í
vetur enda veður verið með eindæmum
breytilegt. Snjómoksturstæki hafa rutt veg-
inn oftar en margir kunnugir muna og hefur
snjóhreinsunin gjarnan bitnað á snjóstikum
og vegstikum sem gegna mikilvægu hlutverki
á veginum sem ekki er upplýstur.
Í verstu færðinni hafa stikur einfaldlega
skotist tugi metra út fyrir veginn og sums
staðar er stikulaust á löngum köflum. Hafa
ökumenn margir kvartað, enda erfitt að
þræða stikulausan veginn í afleitu skyggni.
Starfsfólk Vegagerðarinnar hefur ekki verið
sent út til að skipta um stikur í nokkuð lang-
an tíma og segir Páll Halldórsson, rekstr-
arstjóri svæðismiðstöðvarinnar á Selfossi, að
ekki hafi þótt hættandi á að senda manns-
skap út í óveðrið til að skipta stikunum út.
Vorverk Vegagerðarinnar eru því ærin og í
gær voru verktakar og starfsmenn komnir
upp á Hellisheiði til að setja upp nýjar snjó-
og vegstikur. Kostnaðurinn er nokkur því
60% allra snjóstika eru brotin eða löskuð.
„Hver snjóstika kostar 3.485 krónur og rörið
kostar 2.061 krónu. Við giskum á að niður
komin stika kosti um 4.500 krónur ef þetta er
alveg endurnýjað og ætli það þurfi að end-
urnýja 60 prósent af stikunum sem alls eru í
kringum 2.000,“ segir Páll. Kostnaðurinn er
því á bilinu átta til níu milljónir króna með
mannskap og tækjakosti.
Tuttugu og fimm metrar eru á milli snjós-
tika á þessari leið og nær rörið (festingin)
fyrir hverja stiku fimmtíu sentímetra ofan í
jörðina. Sjálf fer stikan 15 sentímetra ofan í
keilulaga tappa með gúmmíi á milli til að
hægt sé að herða. Sé rörið ekki ónýtt má
laga það með því að fræsa ofan af því. Þá er
rörið híft örlítið upp og slípirokkur notaður á
efsta hluta þess.
Skipt um snjóstikur á Hellisheiði fyrir 9 milljónir
Stikum rutt út í móa í snjómokstrinum Sextíu
prósent stika ónýt Vorverk Vegagerðarinnar ærin
Andrésar andar leikarnir í skíða-
íþróttum verða haldnir í Hlíðarfjalli
við Akureyri dagana 22.-25. apríl.
Andrésarleikarnir eru stærsta
skíðamót landsins með um 700-800
keppendur á aldrinum 6-15 ára ár
hvert. Þeim fylgja þjálfarar, far-
arstjórar, foreldrar og fjölskyldur
og má því gera ráð fyrir að um
2.500 manns sæki leikana.
Um langt skeið hefur verið keppt
bæði í alpagreinum skíðaíþrótta
sem og skíðagöngu, en árið 2012
var í fyrsta skipti keppt á snjóbrett-
um og á sú grein án efa eftir að efl-
ast og stækka innan leikanna.
Einnig hefur verið keppt í svo-
kölluðum stjörnuflokki um nokk-
urra ára skeið, en þar keppa fatl-
aðir og/eða hreyfihamlaðir
íþróttamenn.
Aðstæður í Hlíðarfjalli eru nú
með ágætum þó oft hafi verið meiri
snjór í fjallinu. Búast mótshaldarar
við góðri þátttöku og miklu fjöri á
afmælisleikunum í ár. Nú þegar
hafa rétt tæplega 700 börn verið
skráð frá 19 félögum á Íslandi, en
auk þeirra eru nokkrir gestir frá
Noregi sem taka þátt.
Búist við yfir 700
þátttakendum í
Hlíðarfjalli
Ljósmynd/Pedrómynd
Sumarkomunni á
Seltjarnarnesi er
fagnað með við-
burðaríkum fjöl-
skyldudegi í
Gróttu á sum-
ardaginn fyrsta,
fimmtudaginn
23. apríl frá kl.
14-16. Hátíðin
höfðar til allra
aldurshópa og fer fram víða um
eyjuna, úti sem inni.
„Upplagt er að koma með skóflur
og fötur til að leika sér með í fjör-
unni og krækja sér í furðuverur til
að rannsaka undir leiðsögn líffræð-
inga í nýjum víðsjám í Fræðasetr-
inu,“ segir í tilkynningu frá bæn-
um.
Klukkan 13:30 verður boðið upp
á helgistund í Albertsbúð.
Allir viðburðir eru ókeypis.
Samkvæmt flóðatöflu er opið út í
eyjuna frá kl. 13:40-17:40, en fært
er út í eyjuna rúmlega það.
Björgunarsveitin Ársæll mun sjá
um að ferja fólk sem ekki á auðvelt
með að komast fótgangandi til og
frá Gróttu.
Friðlandið Grótta er lokað allri
umferð frá 1. maí til 15. júlí.
Seltirningar fagna
sumrinu í Gróttu
Gróttuviti.
Parki Interiors
Dalvegi 10-14
201 Kópavogi
Sími 595 0570
Mán-föst 09.00-18.00
Laugardaga 11.00-14.00
OPNUM
SCHMIDT
INNRÉTTINGADEILD ÍPARKA
NÚ ERU SCHMIDT INNRÉTTINGARNAR
LOKSINS FÁANLEGAR AFTUR Á ÍSLANDI.
KOMDU OG UPP
LIFÐU
ÓTAL SAMSETN
INGAR,
FRÁBÆR GÆÐI,
LITI,
FORM OG FEGUR
Ð.
www.parki.is/innrettingar